Morgunblaðið - 23.03.2022, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 23.03.2022, Qupperneq 17
MINNINGAR 17 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MARS 2022 ✝ Yngvinn Valdimar Gunnlaugsson fæddist í Reykja- vík 27. september 1951. Hann lést 7. mars 2022 á Land- spítalanum. Hann var sonur Gunnlaugs Valdi- marssonar og Sonju Einars- dóttur. Þau eru bæði látin. Bróðir Yngvins er Einar, kona hans er Þóra M. Sigurð- ardóttir. Yngvinn var kvæntur Jó- hönnu Th. Þorleifsdóttur, f. 19. júlí 1952, þau eignuðust þrjú börn: 1) Jóhann Svan, f. 30.5. 1977, d. 14.10. 1996. 2) Maríu, f. 22.3. 1982, gift Róberti Geir Gíslasyni og eiga þau tvö börn, Jóhann Dag og Anitu Rós. 3) Helgu Sigríði, f. 24.4. 1983, og á hún eina dóttur, Petrínu Jónu. Yngvinn vann hjá Orkuveitu Reykjavíkur þar til hann lét af störfum 2018. Yngvinn var virkur í skátastarfi og einnig var hann frímúrari. Útför hans fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 23. mars 2022, kl. 13. Elskulegur bróðir minn Yngvinn er látinn. Mig langar að skrifa nokkur minningarorð um hann og rifja upp æsku okk- ar í nokkrum orðum. Við ólumst upp á Skólavörðuholtinu, en á þeim árum var þar bragga- hverfi sem breski herinn hafði reist á stríðsárunum. Bragginn okkar var í röð bragga sem stóðu á milli Leifsstyttunnar og innkeyrslunnar til Tækniskól- ans frá Frakkastíg. Skólavörðu- holtið var okkar leikvöllur fyrstu fimm æviár Yngvins en fyrstu tíu æviár mín. Það má segja að Skólavörðuholtið hafi verið mikið ævintýraland fyrir okkur bræður. Frá því að Yngvinn var u.þ.b. tveggja ára dröslaðist ég með hann í kerru um holtið og ósjaldan fórum við að heimsækja starfsfólkið í Listvinahúsi Guðmundar Ein- arssonar frá Miðdal sem stóð þar sem nú stendur nýjasta álma Tækniskólans. Þar feng- um við stundum að standa og horfa á fólkið framleiða leir- styttur, eins og t.d. rjúpuna með ungana sína og hrafninn o.fl. Báðum megin við Leifs- styttuna hafði verið grjótnám, þar sem grjót var tekið til upp- fyllingar t.d. við Reykjavíkur- höfn. Við þetta grjótnám mynd- uðust sléttar flatir báðum megin við styttuna sem síðan voru tyrfðar og urðu hin bestu leiksvæði okkar krakkanna á holtinu. Við Yngvinn þurftum ekki að ferðast langar leiðir á holtin til að fara að leika okkur í fótbolta á þessum grasfötum því gaflinn á bragganum okkar, sem var nr. 36, var við grjót- kantinn á annarri grasflötinni. Þarna lékum við okkur á sum- ardögum við alls konar leiki. En svo kom að því að braggahverf- ið skyldi rifið og foreldrar okk- ar fengu úthlutað húsnæði í blokk við Gnoðarvoginn. Þar gekk Yngvinn í barnadeild Vogaskóla og lauk þar barna- skólaskyldunni, ég lauk skóla- skyldunni í Langholtsskóla og síðan gagnfræðaprófi í fram- haldsdeild Vogaskóla 1964, sem nú er Menntaskólinn við Sund. Ég man hve stoltur ég var þeg- ar Yngvinn sagði mér að hann hefði ákveðið að læra bólstrun. Eftir það nám vann hann við bólstrun í allnokkur ár áður en hann hóf störf hjá Vatnsveitu Reykjavíkur þar sem hann átti alla tíð farsælan starfsferil og lauk hann starfsævinni þar. Leiðir okkar Yngvins skildi um nokkurra ára bil, þar sem við Þóra fluttum til Hornafjarðar og bjuggum þar í um 10 ár, en leiðir okkar lágu svo saman aft- ur og var það mikið gæfuspor fyrir okkur báða og fjölskyldur okkar. Við áttum saman margar ánægjustundir, og minnist ég sérstaklega ánægjulegra heim- sókna þeirra til okkar austur í Hraunborgir. Við vitum að for- eldrar okkar, Jóhann Svanur sonur Yngvins og Jóhönnu sem lést aðeins 19 ára að aldri hinn 14. október 1996 og Sonja dóttir okkar Þóru sem lést 49 ára hinn 9. júní 2019, ásamt því fólki okkar sem farið hefur á undan honum, sitja núna í „blómabrekkunni“ og bíða þess að taka þar vel á móti honum. Yngvinn bróðir mun færa þeim öllum okkar bestu kveðj- ur. Við kveðjum þig bróðir sæll með miklum söknuði og biðjum góðan Guð að veita Jóhönnu og fjölskyldu góðan styrk. Einar og Þóra. Kynni sem takast á miðjum aldri geta orðið djúpstæð og innileg ekkert síður en gömlu kynnin sem gleymast ei. Þannig var um okkur sem þáðum boð um að gera gott hjónaband betra á LH-helgi aldamótaárið 2000. Í tilfinningarúsinu eftir helgina þótti okkur öllum sjálf- sagt að vera sett í úrvinnsluhóp fimm hjóna sem þekktust lítið sem ekkert fyrir fram. Ekki ór- aði okkur fyrir því þá að það kærleiks- og mannræktarstarf stæði enn 22 árum síðar. Svo mikið er hægt að segja að leyndarmálið í þessum sam- skiptum snýst um aðferðir við að tjá tilfinningar og hlusta vel. Yngvinn Gunnlaugsson, sem við kveðjum nú, var ekki í vand- ræðum með að tjá sig í okkar hópi. Hann var opinn, glaðbeitt- ur og ákveðinn, góður sögumað- ur og hafði frá mörgu að segja með lifandi dæmum úr veiði- skap, skáta- og kirkjustarfi, bræðrareglu og veituvinnu. Frá upphafi okkar kynna talaði Yngvinn einstaklega fallega til konu sinnar og um hana: – Jó- hanna mín, sagði hann með innileik. Eða: – Við Jóhanna mín. Og víst er um það að Yngvinn og Jóhanna voru ákaf- lega samrýnd hjón og höfðu deilt súru og sætu frá því þau voru kornung og kynntust í skátunum. Skátastarfinu fylgir mikil útilegu- og ferðamenning sem þau báru með sér inn í starf hópsins. Það varð því að reglu að hvíla sig á fundum yfir sumarið en fara þess í stað í stutta ferð um sveitir landsins. Eitt skiptið fórum við í ógleym- anlega ferð til Skotlands undir styrkri fararstjórn þeirra tveggja. Yngvinn átti þar góðan vin og þau Jóhanna þekktu vel til í þessu fagra nágrannalandi. Árið 2020 tóku Yngvinn og Jóhanna forystu fyrir því að haldið yrði upp á 20 ára starf þessa hjónahóps sem þá hafði setið saman hundrað fundi! En Covid-19 setti aftur og aftur strik í þann reikning. Við vor- um öll orðin tuttugu árum eldri en þegar við kynntumst fyrst og kusum að fylgja ráðlegging- um heilbrigðisyfirvalda, varast mannamót utan nánustu fjöl- skyldu framan af, þiggja þre- falda bólusetningu þegar hún bauðst og fresta samkomum til betri tíma. Nú þegar vorið var fram undan stóð til að halda upp á afmælið með tveggja ára seinkun. En þá tók Covid enn eina rispuna og felldi „á snöggu augabragði“ yngsta karlmann- inn í hópnum okkar! Það kom eins og reiðarslag yfir okkur öll. En þó mest yfir okkar kæru Jóhönnu. Um leið rifjast upp að Yngv- inn og Jóhanna höfðu ekki að- eins deilt með okkur vinunum gleðiefnum sínum heldur einnig þeim djúpa harmi sem fylgdi því að missa son sinn, Jóhann, aðeins 19 ára úr bráðasjúk- dómi. Ekkert okkar átti von á því að Yngvinn færi með jafn skjótum hætti. Yngvinn, sem alltaf fylgdi hressandi andblær og lífsgleði. Yngvinn, sem sagði svo skemmtilega frá. Traustur vinur og jákvæður. Gott að hitta og gleðjast með. Lífs- reyndur. Mannvinur. Þannig hafa lýsingar á honum streymt um hópinn okkar. Við sendum Jóhönnu, dætr- um þeirra Yngvins og barna- börnum innilegustu samúðar- og kærleikskveðjur og teystum því að minningarnar um þenn- an góða mann sefi sorg þeirra. Blessuð sé minning Yngvins Gunnlaugssonar. Steinunn og Einar Karl, Guðný og Lúðvík, Björn og Kolbrún, Magnús og Guðbjörg. Yngvinn vinur minn, skáta- bróðir og frímúrarabróðir er farinn heim eins og við skátar segjum. Hann fór alltof snemma eftir stutt en erfið veikindi. Við kynntumst fyrst fyrir um 60 árum, þá ungir skátar. Fóst- bræðraflokkurinn var okkar leikvangur. Farið var í útilegur, skátamót og margt skemmti- legt brallað. Þroskuðumst við mikið undir stjórn hæfileikaríks flokksforingja, Ólafs Ásgeirs- sonar. Á landsmóti skáta 1962 vann flokkurinn flokkakeppni mótsins og höfum við ávallt verið stoltir af þeim sigri. Þarna bundust traust vinabönd sem aldrei rofnuðu þótt sam- skiptin hafi ekki alltaf verið mikil á fullorðinsárum. Á skáta- mótum síðustu áratuga höfum við hitt þau Jóhönnu og rifjað upp gamlar og góðar minning- ar. Nú síðustu ár höfum við starfað í bakhópi fyrir fundi eldri skáta, súpufundina sem svo eru kallaðir, haldnir einu sinni í mánuði. Þar hafa Yngv- inn og Jóhanna verið máttar- stólpar í því starfi. Greiðvikni, glaðværð, frumkvæði og hjálp- semi þeirra beggja hafa komið vel fram í því starfi. Yngvins verður sárt saknað í þeim hópi. Nú að leiðarlokum þökkum við áratuga vináttu og tryggð. Jóhönnu, dætrum og fjölskyld- um þeirra sendum við hlýjar samúðarkveðjur. Verðum með ykkur í anda á kveðjustund þar sem við erum stödd erlendis. Hvíl í friði kæri vinur og megi hinn hæsti höfuðsmiður taka vel á móti þér. Margrét og Matthías Guðm. Pétursson. Skátahreyfingin er um margt sérstakur félagsskapur, sumum finnst hann jafnvel skrýtinn. Þau sem hafa starfað lengi sem skátar og hafa þekkst lengi mynda sérstök bönd sem erfitt er að útskýra og reyndar ekki nauðsynlegt að útskýra. Sam- eiginleg reynsla unglingsára verður gersemi fullorðinsára. Orðtakið „eitt sinn skáti, ávallt skáti“ er meitlað í okkar stein. Við sem erum orðin eldri erum nokkuð sammála um að það mikilvægasta sem skátastarfið skilur eftir er vináttan. Þannig var það með kynni okkar við Yngvin. Við vorum nokkur sem mynduðum bakhóp að skipu- lögðu starfi eldri skáta í Reykjavík, sem við kölluðum Endurfundi skáta. Hér var ald- eilis allt á fullu og okkar maður í essinu sínu, – gamla rögg- semin, dugnaðurinn og glað- værðin. Hann var miðjan í öllu; gera og græja, grobba, gantast og hlæja og auðvitað taka lagið. Hann var yndislegur. Yngvinn gerðist kornungur skáti og við sum munum hann jafnvel á Landsmóti skáta á Þingvöllum 1962. Vinahópur hans var í skátunum, tómstundirnar og allur hugurinn líka. Yngvinn kynntist meira að segja æsku- ástinni sinni, henni elsku Jó- hönnu okkar, í skátunum og áttu þau lífið saman í stríðu sem blíðu alla tíð þangað til í dag, að höggið þunga ríður af. Sorgin er mikil og treginn er þungur en það er ljós þarna á bak við. Hugur okkar er hjá Jó- hönnu, dætrunum og fjölskyld- unni allri. Bakhópurinn og Endurfundir skáta í Reykjavík þakka sam- fylgdina. Haukur Haraldsson. Yngvinn V. Gunnlaugsson Veröldin snýst um að vera ekki eins í dag og hún var í gær og hún hlýðir í engu þrá okkar eftir einhverju varanlegu. Kannski að íhaldssemi okkar spretti af þessari tilhneigingu hennar. Í mótvægi við þetta eðli tilver- unnar reynum við að finna eitt- hvað varanlegt, tryggt og nota- legt og skemmtilegt. Þar komu til sögunnar Guð- mundur og Guðný; þau hafa kannski verið með eitthvað svip- að í huga við stofnun Mokka fyr- ir meira en sextíu árum. Við kveðjum nú Guðnýju, nokkrir fastagestir, sem hún trakteraði ætíð með ókeypis kaffi á stórhátíðum eins og við Guðný Guðjónsdóttir ✝ Guðný Guð- jónsdóttir fæddist 10. júlí 1927. Hún lést 7. mars 2022. Útför Guðnýjar var gerð 14. mars 2022. jól og áramót. Úr þessum hópi gesta, sem margir hverjir rekja tengsl sín við Mokka enn lengra aftur, ein sextíu ár jafnvel, þegar manni sem blaðsöludreng var kurteislega bent á að hér mætti ekki ónáða gesti með blaðasölu, því blöð- in væru keypt á staðnum, hefur vissulega kvarnast, sumir dáið, aðrir leitað á önnur mið eða hætt að mæta; eftir stendur að í síbreyti- legum heimi bjuggu Guðný og Guðmundur okkur griðastað, sem haldist hefur óbreyttur lungann úr ævi okkar. Fyrir það erum við þakklátir en líka margt annað. Blessuð sé minning Guðnýjar, blessuð sé minning þeirra hjóna. Við vottum dætrum, syni og venslafólki samúð okkar. Fyrir hönd kaffifélaganna, Bárður R. Jónsson. Kveðja frá Júdófélagi Reykjavíkur og Júdó- sambandi Íslands Fallinn er í valinn Svavar Marteinn Carlsen, mikil öðling- ur og júdógarpur, en hann lést laugardaginn 19. febrúar 2022. Svavar var tvímælalaust einn af frumherjum júdóíþróttarinnar á Íslandi sem og lyftingaíþrótt- arinnar en þar hafði hann verið mjög virkur í keppni. Hann átti sinn feril í júdóíþróttinni á sjö- unda og áttunda áratug síðustu aldar. Þá var blómaskeið júdós- ins á Íslandi og menn gerðu garðinn frægan á erlendri grund. Svavar byrjaði tiltölu- lega seint að æfa, en hann hætti líka seint og tók sín síð- ustu verðlaun á Íslandsmeist- aramóti rúmlega fertugur. Geri aðrir betur. Hann var fyrsti Ís- landsmeistarinn í júdó en það Svavar Marteinn Carlsen ✝ Svavar Mar- teinn Carlsen fæddist í Reykjavík 10. apríl 1938. Hann lést á Landa- kotsspítala 19. febrúar 2022. Foreldrar Svav- ars voru Svava Lár- usdóttir og Carl Anton Carlsen. Saman áttu þau fimm börn en þau misstu yngsta son sinn af slys- förum á barnsaldri. Samtals eiga þau 44 barnabörn og barnabarnabörn. Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hins látna. var árið 1970 í opnum flokki og hann varð jafn- framt fyrstur Ís- lendinga til að vinna til verðlauna á Norðurlanda- móti er hann vann til silfurverðlauna á stofnári Júdó- sambands Íslands 1973. Hann var um langt árabil ósigrandi í sínum flokki og ókrýndur konungur júdósins á Íslandi. Íslandsmeistari varð hann margsinnis, bæði í þungavigt og opnum flokki, og vann auk þess til fjölda ann- arra verðlauna á öðrum inn- lendum sem erlendum mótum. Verðlaunagripir hans verða örugglega ekki taldir á fingr- um beggja handa. Svavar var skemmtilegur í viðkynningu og góður félagi og það sem meira var; hann var júdómaður af guðsnáð. Mikill kappi hefur nú kvatt þennan heim og fundið sér annan keppnisvöll í nýjum heimkynnum. Við félagar hans minnumst hans með söknuði og virðingu og þökk fyrir allt sem hann gerði fyrir júdóíþróttina á Ís- landi og sendum ástvinum hans hugheilar samúðarkveðj- ur. Blessuð sé minning hans. F.h. Júdófélags Reykjavík- ur, Bjarni Friðriksson, Runólfur Gunnlaugsson. F.h. Júdósambands Ís- lands, Jóhann Másson. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓNÍNA JÚLÍUSDÓTTIR, Nína, húsmóðir og fyrrverandi forstöðumaður, síðast til heimilis á Kópavogsbraut 1a í Kópavogi, lést föstudaginn 11. mars. Útför hennar fer fram frá Kópavogskirkju fimmtudaginn 24. mars og hefst klukkan 13. Elín Richards Þorvaldur J. Sigmarsson Richard Örn Richardsson Elín María Sigurðardóttir Björgvin Richardsson Ásdís Birgisdóttir Ása Richardsdóttir Hjálmar H. Ragnarsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MAGDALENA MARGRÉT ÓLAFSDÓTTIR, lést á Hjúkrunarheimilinu Grund 14. mars. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey. Sérstakar þakkir fyrir góða umönnun á deild A3 á hjúkrunarheimilinu Grund. Berglind Björnsdóttir Eiríkur Þorsteinsson Birna Björnsdóttir Mirman Scott Zoll barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ELÍSABETH G. JÓSEFSDÓTTIR BANNA hjúkrunarfræðingur, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli í Reykjavík föstudaginn 18. mars. Útförin fer fram í Kópavogskirkju föstudaginn 25. mars klukkan 10. Þórarinn H. Þorbergsson Unnur Elín Jónsdóttir Gabríela E. Þorbergsdóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.