Morgunblaðið - 23.03.2022, Síða 18

Morgunblaðið - 23.03.2022, Síða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MARS 2022 Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Ýmislegt Prentun Bílamerkingar Bílar Nýr 2021 Nissan Leaf e+ 62 kWh Tekna 3ja ára evrópsk verksmiðjuábyrgð. Með öllu sem hægt er að fá í þessa bíla. Reykgrár og hvítur til afhen- dingar strax. 800.000 undir tilboðsverði um- boðs á aðeins 4.990.000,- www.sparibill.is Hátúni 6 A – sími 577 3344. Opið kl. 10–18 virka daga. Raðauglýsingar Raðauglýsingar Fundir/Mannfagnaðir Fundarefni: 1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 12. gr. samþykkta félagsins. 2. Tillaga um breytingu á samþykktum félagsins. Fyrirhugaðar breytingar leiða af lagabreytingum og fela að litlu leyti í sér efnislegar breytingar á ákvæðum gildandi samþykkta félagsins. 3. Önnur mál löglega upp borin. Tillögur og önnur fundargögn liggja frammi á skrifstofu félagsins tveimur vikum fyrir aðalfundinn. Framboð til stjórnarkjörs skal berast stjórn félagsins eigi síðar en 7 dögum fyrir aðalfund. STJÓRN VINNSLUSTÖÐVARINNAR HF. Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl.9:00-12:30, nóg pláss - Morgun- stund kl.9:00, heitt á könnunni, hafragrautur í boði - Jóga með Grétu kl.12:15 & 13:30 - Opin vinnustofa kl.13:30, leiðbeinandi á staðnum - Söngstund með Helgu Gunnars kl.13:45 - Kaffi kl.14:30 - 15:20 - Bókaspjall með Hrafni kl.15:00 - Nánri upplýsingar í síma 411-2702 - Allir velkomnir. Árskógar 4 Opin vinnustofa kl. 9-12. Bónusbíllinn, fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.55. Pílukast kl. 13. Innipútt kl. 14. Hádegismatur kl. 11.30- 12.30. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni, Allir velkomnir. Sími: 411-2600. Boðinn Handavinnustofa opin frá kl. 12:30. Sundlaugin er opin frá kl. 13:30-16:00. Bólstaðarhlíð 43 Morgunkaffi í kaffihorninu kl. 10 .Tálgað með Valdóri fellur niður í dag. Frjáls spilamennska kl. 12:30-15:45. Opið kaffihús kl. 14:30. Fimmtudagspartý frá 18-20,Svavar Knútur, léttar veitingar og skráning hjá Hildi eða Röggu í síðasta lagi 23. mars, allar upplýsingar í síma 535-2760. Breiðholtskirkja Eldri borgara starf "Maður er manns gaman" í Breiðholtskirkju kl. 13:15 í dag verður handavinna, spil og spjall. Byrj- um kl. 12 með kyrrðar- og fyrirbænastund og eftir það er boðið uppá súpu og brauð gegn vægu gjaldi. Allir hjartanlega velkomnir. Bústaðakirkja Opið hús á miðvikudag frá kl 13-16. Spil, handavinna og kaffið góða frá Sigurbjörgu. Gestur dagsins er Kristín Þorkelsdóttir myndlistarkona. Hún ætlar að segja frá verkum sínum í máli og myndum. Hlökkum til að sjá ykkur, starfsfólk Fossvogsprestakalls. Garðabær 9.00 pool-hópur í Jónshúsi. 9.00 leirnámskeið í Smiðjunni 10.00 gönguhópur frá Jónshúsi 10.30 skák og scrabble í Jónshúsi 11.00 stóla-jóga í Kirkjuhvoli 12.30-15.40 bridds í Jónshúsi 13.00 gönguhópur frá Smiðju 15.00/15.40/16.20 vatnsleikfimi í Sjál. 16.30 Zumba Gold í Kirkjuhvoli Gerðuberg Opin handavinnustofa frá kl. 08:30, heitt á könnunni. Memmm, fjölskyldumorgnar frá kl. 10:00. Döff, Félag heyrnarlausra frá kl. 13:00. Félagsvist frá kl. 13:00. Öll velkomin. Gjábakki Kl. 8.30 til 11.30 opin handavinnustofa og verkstæði. Kl. 10 til 11boccia - opinn tími. Kl. 13 til 14.30 bingó. Kl. 13 til 15.30 postu- línsmálun. Kl.13 til 16 pílukast í hreyfisal. Kl. 17 aðalfundur hjá íþróttafélaginu GLÓÐ. Guðríðarkirkja. Kl. 12:00 Helgistund , fyrirbænir og söngur. Stóla- jóga og hugleiðsla . Matur í safnaðarheimilinu kr. 1000.- kaffisopi og spjall. Hlökkum til að sjá ykkur. Gullsmári 13 Myndlist kl.09:00. Postulínsmálun kl.13:00. Kvenna- bridge kl.13:00. Hraunbæ 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi milli 9:00-11:00. Ganga með Evu kl 10:00-11:00, allir velkomnir. Útskurður með leiðbeinanda kl. 9:00-12:00 500 kr. skiptið. Hraunsel Billjard kl. 8 -16. Stóla yoga kl. 10:00. Línudans kl. 11. Bingó kl. 13. Handverk kl. 13. Gaflarakórinn kl. 16 Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8:30-10:30. Framhalds- saga kl. 10:30. Handavinna – opin vinnustofa 13:00-16:00. Bridge kl. 13:00. Styttri ganga ef veður og færð leyfa kl. 13:30. Hádegismatur kl. 11:30 – 12:30, panta þarf fyrir hádegi deginum áður. Korpúlfar Borgum: Gönguhópar frá Borgum, tveir styrkleikahópar. Eitthvað fyrir alla. Einnig gengið inni í Egilshöll kl. 10:00. Kvikmynda- sýning kl. 13:00. Hádegisverður kl. 11:30-12:30. Kaffiveitingar kl. 14:30- 15:30. Gleðin býr í Borgum. Samfélagshúsið Vitatorgi Heitt á könnunni - Postulínsmálun í handverksstofu kl. 09:00-12:00. Bókband í smiðju kl.09:00-12:30. Myndlist í handverksstofu kl.13:00-16:00. Bókband í smiðju kl.13:00- 16:30. Hinn sívinsæli dansleikur með Vitatorgsbandinu er svo á sínum stað frá kl. 14:00-15:00 og síðdegiskaffið. Allar nánari upplýsingar í síma 411 9450. Allir hjartanlega velkomnir til okkar. Seltjarnarnes Kaffikrókur frá kl. 9.-11.30. Leir Skólabraut kl. 9. Botsía Skólabraut kl. 10. Billjard Selinu kl. 10. Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12. Timburmenn Valhúsaskóla kl. 13. Gler á neðri hæð félagsheimilisins kl. 13. Handavinna, samvera og kaffi í salnum á Skólabraut kl. 13. Á MORGUN FIMMTUDAG VERÐUR PÁSKAEGGJABINGÓ Í SALNUM Á SKÓLABRAUT kl. 13.30. Munið skráninguna í bæjarferðina 5. apríl. Hótel Holt. Vantar þig fagmann? FINNA.is Mikið er sárt að hugsa til þess að við fáum aldrei að hitta þig aftur, kíkja í kaffi um helgar og heyra nýjustu sögurnar úr sveitinni, ræða pólitík og tölum nú ekki um Gísla Martein. En þú ert örugg- lega hvíldinni feginn og ert nú laus við allar þjáningarnar minn kæri en við vorum samt engan veginn tilbúin að sjá á eftir þér. Við eigum dásamlegar minningar um okkar vinskap og þær munum við ávallt varðveita og geyma í hjartanu elsku Ingi okkar. Mín skemmtilegasta minning er þegar við Nonni (Ingi kallaði hann alltaf Nonna) vorum að koma austur síðasta vor, nema Nonni var að fara að vinna á Flúð- um og ætlaði að skutla mér fyrst í bústaðinn. Þér fannst það nú mesta rugl og komst og sóttir mig við Skeiðavegamót og ég hélt að þú myndir skutla mér beint í bú- staðinn … en nei, það voru teknir allir hliðarvegir á leiðinni og sögur sagðar af fólki og bæjum. Svo þeg- ar við nálguðumst Hellu kom púk- inn upp í þér, svo það var stoppað í bakaríinu á Hellu til að spjalla við karlana sem þar voru í kaffi, því þú vildir endilega koma af stað kjaftasögum. Við hittum þarna nokkra sveitadúdda sem voru fastagestir þarna og það var mikið spjallað og jú nokkrar augnagotur enda var það það sem þú vildir. Þú fórst líka með mig á markaðinn á Hellu þar sem allt er til og þar skoðuðum við alls konar hluti og höfðum gaman af. Daginn eftir komstu svo og sóttir mig og fórst með mig í kaffi á N1 á Hvolsvelli til að halda áfram með kjaftasög- urnar. Þetta var svo gaman og vil ég þakka þér þessar skemmtilegu minningar sem ég mun hlæja að í mörg ár. Alveg sama hvort spurt var að veðri, færð, skutli eða öðru, þá var svarið alltaf „já ég kem“ eða hugs- að í lausnum. Þú varst alltaf vinur í raun og það var alltaf svo gaman Ingi Guðjónsson ✝ Ingi Guð- jónsson fæddist 4. janúar 1943. Hann lést 4. mars 2022. Útför Inga fór fram 14. mars 2022. að spjalla við þig um líf þitt, vinnu og upp- lifanir. Takk fyrir allar klósettferðirnar hjá litlu ungunum mín- um hérna á árum áð- ur þegar ég var að byggja bústaðinn og takk fyrir alla hjálp- ina í gegnum tíðina okkar kæri vinur. Við munum alltaf sakna þín og hugsa til þín. Hvíl í friði elsku vinur. Jón Helgi og Inga. Það er erfitt að hugsa til þess að þú sért farinn frá okkur, Ingi frændi. Þú sem varst alltaf svo hress og góður við okkur systkinin. Ég, Lilja, minnist þess helst hvað mér þótti alltaf gaman að fara í heimsókn til þín á Hvolsvöll og fara á leikvöllinn á móti heimili þínu, það þótti mér nú bara stærsti leik- völlur í heimi. Þegar ég hugsa til baka líður mér eins og ég sé mætt þangað aftur. Samband ykkar systkinanna var alltaf náið og sam- gangurinn mikill, sérstaklega þeg- ar við börnin vorum yngri. Núna metum við allar samverustundirn- ar og minningarnar mikils. Með tíð og tíma fór heimsóknum út á land um helgar að fækka, tímarnir breytast og mennirnir með, en þeg- ar tækninni fleygði fram þá var gott að vita að þú fylgdist með okk- ur. Þú skrifaðir til dæmis alltaf fal- legar athugasemdir við það sem við settum á samfélagsmiðla og sam- gladdist okkur við minnsta tilefni. Við hugsum fallega til þín, geymum allar góðu minningarnar og þökk- um þér fyrir allt. Elsku Gunna, Gunni, Lára, Hemmi, Ingi, Gróa, barnabörn og barnabarnabörn, við vottum ykkur okkar dýpstu samúð. Klukkur tímans tifa telja ævistundir ætíð lengi lifa ljúfir vinafundir. Drottinn veg þér vísi vel þig ætíð geymi ljósið bjart þér lýsi leið í nýjum heimi. (Hákon Aðalsteinsson) Þín Lilja og Kolfinnur Ernir Kjartansbörn. Góður samferða- maður, frændi og vinur, Hinrik Páls- son, andaðist á Dval- arheimilinu Jaðri í Ólafsvík mánudaginn 21. febrúar sl. Það kom okkur sem þekktum hann ekki á óvart því undanfarin ár hafa ekki verið honum auðveld, heilsunnar vegna. En Hinni lét heilsuleysið ekki hefta sig, fór dag- lega í gönguferðir og sund meðan orkan leyfði. Það var gaman að fylgjast með honum þegar hann dressaði sig upp, fór í yfirferð um nágrennið og hirti upp dósir og flöskur sem hann seldi og gaf síðan andviðið til góðra málefna. Lífið hans Hinna var ekki alltaf auðvelt, barnungur var hann látinn í fóstur og skilinn frá tvíburabróður sínum Guðmundi og eldri systkinum sem öll eru nú látin. Aðskilnaðurinn mun hafa haft meiri áhrif á Hinna en hann gerði sér grein fyrir fyrr er á síðari árum. Hinni giftist og eignaðist dóttur og bjó nokkur ár í Miklaholts- hreppi, kom síðan aftur til Ólafs- víkur. Hann var duglegur að bjarga sér; vann á nokkrum stöðum, var á Hinrik Pálsson ✝ Hinrik Pálsson fæddist 13. september 1938. Hann lést 21. febr- úar 2022. Útförin var gerð 5. mars 2022. sjó og við fiskvinnu, lengst hjá Bakka sf., þar sem hann undi hag sínum vel, hann var vel liðinn af ung- um og gömlum. Hinni keypti sér íbúðarhús í Ólafsvík og bjó þar, fyrst ásamt uppeldis- móður sinni Ágústu, síðar einn þar til hann flutti á Dvalar- og hjúkrunarheimilið Jaðar. Á Jaðri leið vini okkar vel, hann undi við velvild, sagði alla boðna og búna til að gera allt fyrir sig. Útgerðarmenn komu með verkefni fyrir hann; fiskitauma og öngla sem hann setti upp af miklu kappi. Það var augljóst að á Jaðri átti Hinni gott heimili, allir hugs- uðu vel um hann. Og hann vissi hvað hann vildi, var ákveðinn í að vilja ekki lyfjagjöf við covid, ætlaði bara að taka við því sem að höndum bæri. Hinni var svo heppinn að eiga einstaka frænku, Helgu, sem hugs- aði um hann eins og bróður, hún fór með hann til sólarlanda, tók hann með sér til Reykjavíkur og lét hann finna að henni þótti vænt um hann. Og nú er komið að leiðarlokum, ferðin í Sumarlandið hafin. Við þökkum Hinna mínum samfylgd- ina og vitum að það verður vel tekið á móti honum. Samúðarkveðjur til Helgu og annarra ættingja. Jenný, Bára og Kristín.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.