Morgunblaðið - 23.03.2022, Page 20
20 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MARS 2022
110
50 ÁRA Rósa er fædd og uppalin
á Eskifirði en býr í Reykjavík. Hún
er með BA-gráðu í bókasafns- og
upplýsingafræði frá Háskóla Ís-
lands. Hún er sérfræðingur í
skráningu á Landsbókasafni
Íslands – Háskólabókasafni.
Rósa hlaut riddarakross fálka-
orðunnar í fyrra fyrir sjálfboða-
störf í þágu Móðurmáls, samtaka
um tvítyngi, við skráningu og miðl-
un barnabóka á öðrum tungu-
málum en íslensku.
„Ég byrjaði með Bókasafn Móð-
urmáls, sem er fyrir börn sem áttu
íslensku ekki að móðurmáli, árið
2016. Við erum núna komin með
um 8.000 skráðar bækur á 86
tungumálum. Bókasafnið var stað-
sett í kjallaranum heima hjá mér til
2020. Þá var ég tilnefnd aðal-
ræðismaður Ítalíu og þá flutti ég
bókasafnið á skrifstofuna sem ég er
með.
Það er mun þægilegra fyrir fólk að þurfa ekki lengur að koma í kjallarann
hjá mér heldur getur mætt á afgreiðslutíma, sem er reyndar bara tveir
tímar á viku, en það er alltaf brjálað að gera. Lánþegar koma bæði beint til
okkar og svo lánum við líka til bókasafna um allt land. Fólk er mjög duglegt
að færa mér bækur, sem það hefur fundið á ferðalögum og þannig höfum við
eignast góðan safnkost. Ég reyni samt alltaf að kaupa einhverjar bækur á
hverju ári fyrir gjafafé. Bókasafnið er algjörlega sjálfboðaliðarekið. Ég fæ
mömmu til að hjálpa mér og hún er mér innan handar þegar bókasafnið er
opið.“ Rósa er jafnframt varaformaður samtakanna Móðurmáls.
FJÖLSKYLDA Börn Rósu eru Aurora Erika, f. 2000, og Aron Flavio, f.
2002. Foreldrar Rósu eru Jón E. Guðmundsson, f. 1944, fv. verslunarmaður,
og Guðný Hallgerður Ragnarsdóttir, f. 1953, fv. skrifstofumaður á Landspít-
ala. Þau eru búsett í Reykjavík.
Rósa Björg Jónsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Mundu að öllu frelsi fylgir ábyrgð og
að frelsi þitt nær aðeins að garði granna
þíns. Spall við ókunnuga getur leitt til
skemmtilegra hluta.
20. apríl - 20. maí +
Naut Mundu að lesa smáa letrið í öllum
þeim skjölum sem fyrir þig eru lögð til und-
irritunar. Brostu framan í heiminn, þú hefur
ótal ástæður til þess.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Einföldun á þínu nánasta umhverfi
hefur í för með sér ýmsa möguleika og tíma-
sparnað. Komdu þér í einhverja hreyfingu.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Þér kann að sýnast langt á milli þess
sem þú hefur og þess sem þig dreymir um.
Svo er þó ekki ef þú skoðar hlutina betur.
Reyndu að halda þig við sannleikann.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Einhver rennir til þín hýru auga og gef-
ur þér undir fótinn. Passaðu að gera þér lífið
ekki of erfitt, það má biðja um hjálp.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Þér finnst stundum gott að loka þig
af og vinna í ró og næði. Þú hefur einhverjar
áhyggjur sem tengjast börnum. Þær áhyggj-
ur eru algerlega óþarfar.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Þú hefur átt í ákveðnum erfiðleikum
sem nú eru að baki. Að vera sátt/ur í eigin
skinni er dásamleg tilfinning, njóttu hennar.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Einhver þér eldri og reyndari
getur gefið þér góð ráð í dag. Hver og einn
þarf að gera það sem hann telur rétt hverju
sinni. Beygðu þig undir forystu aðila sem þú
virðir.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Deilur um peninga geta spillt
vináttu. Njóttu þess að gera vel við þig og
forðastu að reyna að gera öllum til geðs, það
er ekki hægt að þjóna tveimur herrum.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Það skiptir öllu máli að vera opinn
og sveigjanlegur þegar einhverjar breytingar
verða á lífi manns. Þú færð skemmtilegar
fréttir af fjölgun í fjölskyldunni.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Það er að brjótast um í þér að
skipta um lífsstíl. Af hverju ekki að prófa
það? Ef einhver biður þig um álit veit sá hinn
sami að hægt er að treysta innsæi þínu.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Þú hefur lengi ætlað að koma málum
þínum á framfæri en hefur ekki haft tíma til
þess. Þér finnst gaman að taka áhættu og
færð fljótlega tækifæri til þess.
Ó
li Stefáns Runólfsson
fæddist 23. mars 1932 í
Húsavík við Stein-
grímsfjörð í Stranda-
sýslu. Hann ólst þar
upp og vann sín bernsku- og ung-
lingsár við landbúnaðarstörf.
Hann gekk í barnaskóla þar í
sveitinni, lauk síðar iðnskólaprófi í
rennismíði og síðar meistararétt-
indum í þeirri iðn árið 1965.
Óli vann að ýmsum iðnaðar-
störfum áður en hann fór í iðnnám
s.s. við trésmíðar og múrverk en hóf
svo verknám í rennismíði hjá Agli
Vilhjálmssyni hf. Vann hann þar að
námi loknu uns hann keypti renni-
verkstæðið af Agli árið 1984, ásamt
sex vinnufélögum sínum. Verk-
stæðið var í þeirra rekstri til ársins
2004 en þá var það selt. Óli var for-
maður fyrirtækisins öll árin sem það
starfaði.
Félagsmál brenna á honum og
var hann m.a. í stjórn félags járn-
iðnaðarmanna í nokkur ár. Hann
sótti ýmsar ráðstefnur, samkomur
og atburði fyrir félagið og hlaut
gullmerki félagsins fyrir störf sín.
Óli hefur skrifað nokkrar greinar
í blöð og tímarit, aðallega um kjör
eldri borgara. Hann fór til Austur-
Þýskalands í boði verkalýðsfélaga,
það var áður en múrinn féll. „Það
var mjög uppbyggileg ferð og
áhugaverð. Hún sýndi margt um af-
komu fólks og hvernig var búið að
verkalýðnum.“ Óli skrifaði tveggja
blaðsíðna grein um ferðina sem birt-
ist í dagblaðinu Tímanum 17. og 18.
febrúar 1983.
Hjónin eignuðust sumarbústað í
landi Hallkelshóla í Grímsnesi árið
1996. „Þá tók við mikið starf í end-
urbótum og viðhaldi og eru margar
góðar minningar þar með börnum
og barnabörnunum. Mér finnst
gaman að vera í mannlegum sam-
skiptum og fylgjast með því sem er
að gerast, bæði heima og erlendis.
Göngutúrar eru hressandi og sund
mikil heilsubót, þá er dansinn mikið
stundaður. Einnig hef ég gaman af
vísum og hef aðeins lagt það fyrir
mig að kveða vísur.“ Óli er að auki
mjög handlaginn og þúsundþjala-
smiður.
Óli Stefáns Runólfsson, meistari í rennismíði – 90 ára
Stórfjölskyldan Hólaborgarhátíð í sumarbústaðalandinu um verslunarmannahelgi.
Dansinn mikið stundaður
Farmall Cub Óli gerði upp traktorinn alveg sjálfur.
Á ferðalagi Óli ásamt dætrunum sínum. Hjónin Guðbjörg og Óli stunda mikið dans.
Til hamingju með daginn