Morgunblaðið - 23.03.2022, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 23.03.2022, Qupperneq 23
ÍÞRÓTTIR 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MARS 2022 _ Andrea Rán Hauksdóttir varð í fyrrinótt fyrst Íslendinga til að spila deildaleik í mexíkósku knattspyrn- unni þegar lið hennar Club América sótti heim lið Toluca. Andrea kom inn á sem varamaður á 80. mínútu í 4:0-sigri América, sem er frá Mexíkóborg, en Sara Luebbert, lánsmaður frá Chicago Red Stars í Bandaríkjunum, skoraði tvö marka Ameríca í leiknum. América er í fjórða sæti deildarinnar með 25 stig úr ellefu leikjum, fimm stigum á eft- ir toppliðinu Monterrey, en núna stendur yfir seinni hluti tímabilsins, Clausura. _ Enski knattspyrnumaðurinn Sam- mie McLeod er kominn til liðs við Þór á Akureyri frá norðurírska fé- laginu Portadown. McLeod er 21 árs gamall miðjumaður sem lék m.a. með U18-ára liði Leicester City en hefur síðan spilað með enskum ut- andeildaliðum, leikið með Colches- ter í ensku D-deildinni og nú síðasta árið með Portadown. _ Bandaríkjamaðurinn Phil Mickel- son verður ekki á meðal keppenda á Masters-mótinu, fyrsta risamóti árs- ins í golfi, en hann hefur unnið mót- ið í þrígang og keppt á því á ári hverju síðustu 29 ár. Mickelson, sem er 51 árs, lét umdeild ummæli falla um Sádi-Arabíu á dögunum, þar skaut hann föstum skotum á mannréttindi Arabíuríkisins. Mickel- son hefur ekkert keppt síðan hann lét ummælin falla en hann gaf í skyn í yfirlýsingu á dögunum að hann myndi taka sér hlé frá at- vinnugolfi. _ LeBron James var sterkur fyrir Lakers á gamla heimavellinum í Cle- veland þegar liðin mættust þar í NBA-deildinni í körfubolta í fyrri- nótt. James skoraði 38 stig, tók 11 fráköst og gaf 12 stoðsendingar og Lakers vann mikilvægan útisigur, 131:120. Lakers er í níunda sæti Vesturdeildar og er í harðri baráttu um að komast í um- spilið þegar tíu leikjum er ólokið. Liðin í sjöunda til tíunda sæti fara í umspil um tvö sæti í sjálfri úrslitakeppn- inni. Lakers er nú þremur sigurleikjum á undan San Antonio Spurs sem er í ellefta sæti. Eitt ogannað Klara Bühl skoraði dýrmætt mark fyrir Bayern München þegar liðið tapaði 1:2 gegn París SG í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistara- deildar kvenna í knattspyrnu á Alli- anz-vellinum í München í gær. Mar- ie-Antoinette Katoto, framherji París SG, reyndist Bayern Münch- en erfið viðureignar í gær en hún skoraði bæði mörk franska liðsins í leiknum. Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leikinn í hjarta varn- arinnar hjá Bayern München en síð- ari leikur liðanna fer fram í París í Frakklandi hinn 30. mars. Bayern í erfiðri stöðu AFP/Christof Stache Skalli Kadidiatou Diani og Glódís Perla Viggósdóttir eigast við í gær. Útlit er fyrir að Sveindís Jane Jóns- dóttir landsliðskona í knattspyrnu geti leikið með þýska toppliðinu Wolfsburg þegar það mætir enska toppliðinu Arsenal í átta liða úrslit- um Meistaradeildar Evrópu í Lond- on í kvöld. Sveindís hefur misst af tveimur síðustu leikjum Wolfsburg vegna meiðsla en fór með liðinu til London í gær. Leikið verður á Em- irates-leikvanginum, sem rúmar 60 þúsund áhorfendur, en Arsenal leik- ur vanalega heimaleikina á Meadow Park í Borehamwood en hann rúm- ar fimm þúsund áhorfendur. Sveindís með á Emirates? Morgunblaðið/Eggert London Sveindís Jane Jónsdóttir gæti spilað gegn Arsenal. SKOTLAND Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is „Þetta hefur verið svolítið upp og nið- ur,“ sagði María Catharina Ólafs- dóttir Gros, 19 ára knattspyrnukona frá Akureyri, í samtali við Morgun- blaðið. María gekk í raðir skoska stórliðsins Celtic frá uppeldisfélaginu Þór/KA í júlí á síðasta ári. „Auðvitað var smá erfitt að flytja frá mömmu og pabba, allri fjölskyld- unni og frá öllum sem ég þekki og í land þar sem ég þekki ekki neinn. Þetta hefur samt á sama tíma verið mjög gaman. Ég hef átt mér þann draum að verða atvinnukona í fót- bolta síðan ég var sjö ára og ég vildi láta drauminn rætast. Þetta hefur verið ævintýri og ég sé ekki eftir því að hafa farið út. Ég fór á fund með Celtic og umboðsmanninum og ég var flutt út tveimur vikum seinna. Þetta gerðist hratt,“ sagði María sem deilir íbúð með fimm liðsfélögum í Glasgow. „Ég bý með fimm öðrum stelpum í liðinu. Mér finnst það mjög gaman og við höfum kynnst vel og erum góðar vinkonur. Það getur samt verið erfitt og ég fæ heimþrá annað slagið og ég sakna mömmu og pabba. Þetta er samt mjög mikið atvinnumanna- umhverfi,“ sagði hún. María og landsliðsmarkvörðurinn Cecilía Rán Rúnarsdóttir eru jafn- aldrar og góðar vinkonur. Cecilía samdi við Örebro í Svíþjóð á síðasta ári og ákvað María að slá til í kjölfar- ið. „Það var alltaf draumurinn að fara ung út. Vinkona mín Cecilía Rán fór ung út og þegar ég sá að hún sló til langaði mig rosalega til þess líka.“ Eini nemandinn í liðinu María stundar fjarnám við Verk- menntaskólann á Akureyri samhliða því að vera atvinnukona í fótbolta. Hún viðurkennir að það geti verið krefjandi, sérstaklega þar sem hún er sú eina í liðinu sem stundar nám. „Það getur verið mjög erfitt, sér- staklega þegar maður kemur heim þreyttur eftir æfingu og þarf að læra. Ég er sú eina sem er í skóla hérna þannig að hinar þurfa ekkert að læra. Það þarf mikinn sjálfsaga til að láta þetta ganga upp,“ sagði María og við- urkenndi síðan að hún öfundaði stundum liðsfélaga sína sem geta lagt sig eftir langa æfingu, á meðan hún þarf að opna skólabækurnar. Þekkist á götum Glasgow Karlalið Celtic er stórveldi í skoskri knattspyrnu og hefur 51 sinni orðið skoskur meistari og einu sinni Evrópumeistari. Kvennaliðið var hins vegar stofnað 2007 og hefur enn ekki orðið skoskur meistari en liðið hefur í þrígang hafnað í öðru sæti. „Þetta er frekar stórt kvenna- megin en ekki eins stórt og karla- megin. Það vita allir í Glasgow hverj- ir spila með kvennaliðinu,“ sagði hún og svarar játandi hvort fólk þekki hana á götum borgarinnar. „Já og það er bara gaman,“ sagði Akureyr- ingurinn. Á meðan karlaliðið leikur á Celtic Park sem tekur rúmlega 60.000 áhorfendur í sæti leikur kvennaliðið á Excelsior-vellinum í Airdrie, hálf- tíma akstursfjarlægð frá miðborg Glasgow. Völlurinn tekur 10.000 áhorfendur og er María sátt við völl- inn, en bendir þó á að það sé of langt fyrir stuðningsmenn Celtic að sækja heimaleiki til Airdrie. „Hann er mjög fínn en eina vandamálið er að hann er svolítið langt frá Glasgow og því erf- itt fyrir stuðningsmenn að mæta á leiki. En grasið er mjög fínt og þetta er flottur völlur.“ María hefur skorað fimm mörk í 26 leikjum með Celtic á leiktíðinni og einnig lagt upp nokkur mörk á liðs- félaga sína. Hún er ánægð með eigin frammistöðu til þessa, en mikil sam- keppni er um stöður í liðinu. „Það kom sérstaklega góður kafli eftir jólin þar sem ég var að skora og leggja upp. Heilt yfir get ég verið ánægð. Ég er enn mjög ung. Það er mikil samkeppni í þessu liði og það á enginn öruggt sæti í byrjunarliðinu. Maður þarf að hafa mikið fyrir því að fá að byrja og hópurinn er stór. Þjálf- arinn vill hafa mikla samkeppni, sem er mjög fínt og gerir mig að betri leikmanni.“ Vonbrigði í deildinni Celtic er í þriðja sæti skosku úr- valsdeildarinnar með 45 stig eftir 21 leik. Liðið er ellefu stigum frá topp- liði Glasgow City og tíu stigum á eftir Rangers en Rangers á tvo leiki til góða. María viðurkennir að það séu vonbrigði að vera svo langt á eftir toppliðunum. „Þetta eru rosalega mikil von- brigði. Við unnum bæði liðin í bik- arnum en töpuðum svo á móti þeim í deildinni. Það var mjög svekkjandi. Celtic, Rangers og Glasgow City eru þrjú bestu liðin og eru langt á undan hinum liðunum. Hin liðin geta samt verið sterk og komið manni á óvart og maður þarf að vinna fyrir öllum sigrum. Þessi þrjú bestu lið eru svip- að góð og Valur og Breiðablik heima,“ sagði María sem varð skosk- ur deildabikarmeistari með Celtic í desember eftir sigra á bæði Rangers og Glasgow City. „Það var mjög skemmtileg upp- lifun, sérstaklega því það er langt síð- an Celtic vann titil síðast. Auðvitað langar okkur að vinna alla þrjá titl- ana sem eru í boði en það er frekar langsótt í deildinni en við erum enn þá í hinum bikarnum. Markmiðið okkar núna er að vinna hann líka,“ sagði María en Celtic mætir Aber- deen í átta liða úrslitum skoska bik- arsins 1. apríl. Hún er samningsbundin Celtic í eitt tímabil til viðbótar en hún úti- lokar ekki að róa á önnur mið eftir leiktíðina. „Eins og er þá lifi ég bara í núinu en ef það kemur eitthvað spennandi upp þá skoða ég það,“ sagði María Catharína. María lét drauminn rætast - Leikur sitt fyrsta tímabil í atvinnumennsku með skoska liðinu Celtic - Deilir íbúð með fimm liðsfélögum - Fimm mörk og deildabikartitill Ljósmynd/Celtic Celtic María Ólafsdóttir Gros hefur spilað alla leiki liðsins í vetur og verið í byrjunarliðinu í meirihluta þeirra. Celtic er í þriðja sæti deildarinnar. Hafþór Sigrúnarson og Unnar Rún- arsson skoruðu báðir tvívegis fyrir SA þegar liðið hafði betur gegn SR í fyrsta leik liðanna í einvíginu um Ís- landsmeistaratitilinn í íshokkí karla í Skautahöllinni á Akureyri í gær. Leiknum lauk með 6:5-sigri SA í miklum markaleik þar sem brott- rekstrar léku Reykvíkinga grátt. SR leiddi 2:1 eftir fyrsta leikhluta með mörkum frá þeim Axel Orongan og Styrmi Maack en Heiðar Jó- hannsson skoraði mark SA í fyrsta leikhluta. Akureyringar sneru leikn- um sér í vil í öðrum leikhluta og leiddu 6:3 að honum loknum þar sem Hafþór Sigrúnarson og Unnar Rún- arsson skoruðu tvívegis fyrir SA, ásamt Ævari Arngrímssyni, en Sölvi Atlason skoraði eina mark SR í leik- hlutanum. SR tókst að minnka mun- inn í 5:6 í þriðja leikhluta en lengra komst liðið ekki. SA leiðir því 1:0 í einvíginu en liðin mætast að nýju í Skautahöllinni í Reykjavík á morgun. Vinna þarf þrjá leiki til þess að tryggja sér Ís- landsmeistaratitilinn. Ljósmynd/Þórir Tryggvason Sókn Reykvíkingurinn Sölvi Atlason sækir að Akureyringum í gær. SA tók forystuna gegn SR í úrslitaeinvíginu HANDKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Olísdeildin: Framhús: Fram – KA ............................... 18 Varmá: Afturelding – ÍBV........................ 18 Ásvellir: Haukar – Víkingur................ 19.30 Kaplakriki: FH – Valur........................ 19.30 Garðabær: Stjarnan – Grótta .............. 19.30 Selfoss: Selfoss – HK ........................... 19.30 Úrvalsdeild kvenna, Olísdeildin: Vestmannaeyjar: ÍBV – HK..................... 18 Framhús: Fram – Stjarnan ................. 20.15 1. deild karla, Grill 66-deildin: Seltjarnarnes: Kórdrengir – Þór ........ 19.30 1. deild kvenna, Grill 66-deildin: Vestmannaeyjar: ÍBV U – HK U............. 20 KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild kvenna, Subway-deildin: Njarðvík: Njarðvík – Breiðablik ......... 18.15 Ásvellir: Haukar – Grindavík .............. 19.30 Keflavík: Keflavík – Valur ................... 20.15 Í KVÖLD!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.