Morgunblaðið - 23.03.2022, Side 25

Morgunblaðið - 23.03.2022, Side 25
MENNING 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MARS 2022 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI 86% EMPIRE TOTAL F ILM VARIET Y “ONE OF THE BEST SUPERHERO MOVIES EVER MADE” “A masterpiece.” Hin árlega Stockfish-kvikmynda- hátíð hefst í Bíó Paradís á morgun, fimmtudag, og stendur til 3. apríl. Sýndar verða rúmlega tuttugu kvik- myndir frá mörgum löndum, mynd- ir sem hafa hlotið verðlaun og viður- kenningar á ýmsum kvikmynda- hátíðum. Þá er von á mörgum gestum sem tengjast kvikmynd- unum og munu taka þátt í dag- skránni. Þeir ýmist fylgja myndum sínum eftir – boðið verður upp á samtal við þá marga að loknum sýn- ingum – og koma í tengslum við svo- kallaða Bransadaga hátíðarinnar sem haldnir verða á Selfossi. Klondike frá Úkraínu Opnunarmynd Stockfish Film Festival að þessu sinni er hin úkra- ínska Klondike. Hún var frumsýnd fyrr á þessu ári og vann til verð- launa bæði á Berlinale- og Sun- dance-kvikmyndahátíðunum. Aðalleikona myndarinnar, Oks- ana Cherkashyna, er meðal þeirra milljóna íbúa Úkraínu sem hafa flú- ið heimalandið á síðustu vikum í kjölfar innrásar Rússa. Hún verður viðstödd opnunarsýninguna og mun sitja fyrir svörum áhorfenda eftir sýninguna. Klondike er í tilkynningu frá Stockfish-hátíðinni sögð fjalla að miklu leyti um forsögu atburðanna sem nú eiga sér stað í Úkraínu. Sögusvið myndarinnar er á tíma stríðsins milli Úkraínu og Rúss- lands árið 2014 og er fjallað um fjöl- skyldu sem býr á landamærunum og neitar að flýja þótt þorpið þeirra sé tekið yfir af rússneskum her- sveitum. My Year Of Dicks frumsýnd Pamela Ribon og Sara Gunnars- dóttir verða viðstaddar frumsýn- ingu teiknimyndaseríunnar My Year Of Dicks sem Sara leikstýrði en Ribon skrifaði. Hún hefur áður til að mynda skrifað handrit Disney- myndanna Moana og Ralph Breaks the Internet. Leikstjórinn David Bonneville fylgir kvikmynd sinni The Last Bath til landsins en hún var framlag Portúgals til Óskarsverðlauna. Síð- asta baðið fjallar um nunnu sem er kölluð aftur í heimabæ sinn til að ættleiða fimmtán ára frænda sinn. Með þeim takast ástir og í kjölfarið mikil togstreita milli trúar, fjöl- skyldu og ástar. Frá Færeyjum kemur Trygvi Danielsen í tengslum við sýningar á mynd hans 111 góðir dagar. Hún fjallar um tvo ólíka menn sem rek- ast ítrekað hvor á annan við undar- legar aðstæður. Síðar komast þeir að því að ákveðið afl bindur þá sam- an. Þetta er fyrsta færeyska kvik- myndin í fullri lengd frá árinu 2014. Frá Gaza í Palestínu kemur heim- ildarkvikmyndin One More Jump! sem fjallar um tvo vini sem ólust þar upp og stofnuðu palestínskan parkour-hóp. Í tilkynningu segir að sársauki og gremja ungra Palestínumanna á Gaza komi vel fram í kvikmyndinni sem ítalski leikstjórinn Emunele Gerosa gerði. Hann hefur unnið til fjölda verð- launa fyrir heimildarmyndagerð og mun ræða við gesti eftir sýningu. Nokkrar eftir Mendonca Filho Christos Nikou, hinn gríski leik- stjóri kvikmyndarinnar Apples, sem sýnd verður, hefur mikla reynslu í kvikmyndagerð og hefur verið að- stoðarleikstjóri margra umtalaðra mynda en þetta er hans fyrsta mynd í fullri lengd. Hún fjallar um mann sem missir minnið í kjölfar heimsfaraldurs og fer í endurhæf- ingu sem á að hjálpa honum að byggja upp nýtt líf. Meðal gesta á Stockfish- hátíðinni eru líka hjónin Kleber Mendonca Filho og Emilie Les- claux frá Brasilíu. Þau eru í hópi þekktustu kvikmyndagerðarmanna Suður-Ameríku og verður sérstök „Retrospect“-sýning á nokkrum þekktum kvikmyndum þeirra, Bac- arau – sem áður hefur verið sýnd á Stockfish við góðar viðtökur, Aquarius og Neighbouring Sounds. Allar hafa myndirnar hlot- ið virt verðlaun en kvikmyndir hjónanna hafa hlotið á annað hundrað viðurkenninga, meðal annars á Cannes-hátíðinni. Bæði munu þau sitja fyrir svörum eftir sýningu myndanna. Hann sem handritshöfundur og leikstjóri og hún sem framleiðandi. Heimildarmynd um O’Connor Þá má geta umtalaðrar heimildar- kvikmyndar um írsku tónlistarkon- una Sinead O’Connor, Nothing Compares. Í henni er fjallað um það hvernig frægðarsól hennar reis, þar til uppreisnargjarn andi hennar og viðmót varð til þess að henni var út- hýst úr meginstraumi poppsins. Leikstjóri myndarinnar er Kathryn Ferguson og er horft aftur frá sam- tímanum til áranna 1987 til 1992. Auk sýninganna í Bíó Paradís næstu tíu daga verða fyrrnefndir Bransadagar á Selfossi með metn- aðarfullri dagskrá sem tengist framleiðslu kvikmynda. Fjöldi verðlaunamynda á Stockfish Úkraínudrama Opnunarmynd hátíðarinnar fjallar um tíma stríðsins 2014. Unglingasaga Sara Gunnarsdóttir leikstýrði My Year of Dicks. Undarlegt 111 góðir dagar er fyrsta færeyska bíómyndin frá árinu 2014. Úr Bacarau Útför í einni kvikmynda leikstjórans Klebers Mendonca Filhos. - Stockfish-kvikmyndahátíðin hefst í Bíó Paradís á morgun - Opnunarmynd er úkraínsk og gerist í stríðinu við Rússa árið 2014 - Yfir tuttugu kvikmyndir sýndar - Bransadagar haldnir á Selfossi stockfishfestival.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.