Morgunblaðið - 23.03.2022, Blaðsíða 28
Hljómsveit bassaleikarans Sigmars Þórs Matthías-
sonar, Meridian Metaphor, kemur fram á tónleikum
Jazzklúbbsins Múlans á Björtuloftum í Hörpu í kvöld,
miðvikudagskvöld, kl. 20. Hljómsveitin mun meðal ann-
ars leika tónlistina sem er á nýjustu hljómplötu Sig-
mars sem er samnefnd sveitinni og hefur hlotið lof-
samlega dóma en hún er samin undir áhrifum frá
austrænni heimstónlist. Ásamt Sigmari koma fram
Haukur Gröndal, Ásgeir Ásgeirsson, Ingi Bjarni Skúla-
son og Matthías MD Hemstock.
Hljómsveit Sigmars Þórs, Meridian
Metaphor, kemur fram í Múlanum
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Sennilega hefur enginn starfað leng-
ur við bílasölu en Úlfar Hinriksson,
framkvæmdastjóri og einn eigenda
Suzuki bíla hf., en hann hefur unnið
á þessum vettvangi í ríflega 52 ár.
Um áramótin 1969-70 byrjaði Úlf-
ar að vinna hjá Sveini Egilssyni hf. í
hlutastarfi með námi í skóla. Fljót-
lega var hann kominn í fullt starf hjá
fyrirtækinu og þegar bílaumboðin
voru seld keyptu nokkrir starfs-
menn með Úlfar og Þorberg Guð-
mundsson í fararbroddi Suzuki-
umboðið, stofnuðu Suzuki bíla hf.
1989 og hófu rekstur í gamla Ford-
húsinu í Skeifunni 17, þar sem starf-
semin hefur verið síðan.
Til að byrja með unnu átta manns
við sölu á bílum og varahlutum, en
nú eru um 25 starfsmenn hjá Suzuki
og þar af þrír sem hafa verið í hópn-
um frá byrjun. „Fyrstu 25 árin var
sáralítil eða engin starfsmannavelta
en síðan hefur fólk hætt vegna ald-
urs,“ segir Úlfar.
Ýmsar ástæður liggja að baki
starfsvali og hún er nærtæk hjá Úlf-
ari. „Það var bara bíladella,“ segir
hann og bætir við að hann hafi eign-
ast fyrsta bílinn skömmu eftir að
hann hafi tekið bílprófið. „Ég var
mikill bílaáhugamaður á þeim árum
og hún hefur enst að hluta til en á
annan hátt. Ástríðan er öðruvísi en
áður og snýst núna fyrst og fremst
um viðskiptin.“
Skemmtilegur bransi
Úlfar segir að bílabransinn sé
mjög skemmtilegur. Stöðugt komi
nýjar tegundir á markað, ýmsar nýj-
ungar og svo framvegis. „Þó bílar
hafi í grunninn verið mjög svipaðir í
yfir 100 ár hefur þróunin verið stöð-
ug, alltaf verið eitthvað nýtt í gangi.“
Eins hafi verið mikil áskorun að tak-
ast á við þær miklu sveiflur sem hafi
verið í bílasölunni á Íslandi. „Þetta
eru mjög lifandi viðskipti og starfinu
fylgja mikil samskipti við fólk, sem
er mjög skemmtilegt.“
Líkamsrækt hefur lengst af verið
ríkur þáttur í daglegu amstri Úlfars.
„Ég hef verið með kort í líkams-
ræktarstöð í yfir 40 ár, var virkur í
langhlaupum í yfir 20 ár og þegar ég
fór að gefa eftir í hlaupunum skipti
ég yfir í golfið. Ég fer gjarnan í
ræktina í hádeginu og reyni að
hreyfa mig eitthvað á hverjum degi.“
Hann þótti reyndar mjög liðtæk-
um í hlaupum, þó hann geri lítið úr
því. „Ég var meðallanghlaupari,
hljóp reglulega maraþon, hálf-
maraþon og Laugavegshlaup. Hleyp
reyndar ennþá en er hættur að
hlaupa á malbiki, held mig við utan-
vegahlaup.“
Þórir Jónsson, eigandi Sveins Eg-
ilssonar hf., byrjaði að selja Suzuki-
bíla hérlendis 1981. Salan hefur
margfaldast í áranna rás, en lengi
hafa fimm til sex tegundir verið á
boðstólum og nýlega byrjaði fyrir-
tækið að selja kínverska rafmagns-
bíla. Alltaf eitthvað nýtt og spenn-
andi, eins og Úlfar orðar það, og
hann segist ekkert vera á förum.
„Ég sé enga ástæðu til þess að hætta
á meðan ég hef gaman af þessu og
heilsan er í lagi.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ánægður Úlfar Hinriksson segir að nú snúist bíladellan fyrst og fremst um viðskiptin.
Blússandi bíladella
- Úlfar Hinriksson hefur selt Suzuki-bíla í ríflega 52 ár
ALLIR ÁSKRIFENDUR
ERU SJÁLFKRAFA
Í POTTINUM SAMA HVER
ÁSKRIFTARLEIÐIN ER.
Samspil Morgunblaðsins og áskrifenda
okkar gerir okkur kleift að vera
þungamiðja upplýsinga og stunda traustan
fréttaflutning, birta fjölbreytt efnistök og
stunda öfluga fjölmiðlun.
Við viljum sýna þakklætisvott með
happdrætti þar sem heppinn áskrifandi
hlýtur þennan glæsilega Honda HR-V
Hybrid.
Við drögum út vinningshafa 28. apríl.
MIÐVIKUDAGUR 23. MARS 82. DAGUR ÁRSINS 2022
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 776 kr.
Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr.
PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr.
„Er Evrópufótboltinn bara miðaður við England, Spán,
Þýskaland, Ítalíu og Frakkland? Hvað með hinar þjóð-
irnar? Eiga þær að vera ánægðar með að spila bara í
undankeppninni?“ skrifar Philipp Lahm, fyrirliði þýsku
heimsmeistaranna í knattspyrnu árið 2014, í pistli á
íþróttasíðum Morgunblaðsins í dag þar sem hann
fjallar um Evrópufótboltann hjá félagsliðum og lands-
liðum. »23
Miðast fótboltinn við fimm þjóðir?
ÍÞRÓTTIR MENNING