Fréttablaðið - 07.04.2022, Qupperneq 4
Hann hefur kastað
syndum sínum aftur
fyrir sig. Megi honum
vel farnast í sínu starfi.
Jakob Frímann
Magnússon,
þingmaður
Flokks fólksins
ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 590 2300
OPIÐ VIRKA DAGA 10-17 • LAUGARDAGA 12-16
100% RAFMÖGNUÐ
ÍTÖLSK HÖNNUN
Hvað nærðu að gera á fimm mínútum? Það tekur Fiat 500e aðeins
fimm mínútur í hraðhleðslu að ná 50km akstursdrægni. Fiat 500e
sameinar gæði og tímalausa ítalska hönnun sem hentar vel fyrir þá
sem þurfa að komast örugglega á milli staða innanbæjar.
Með 3+1 hurðum og allt að 433 km drægni
FIAT.IS
Margt bendir til að ólgan
í kringum rasísk ummæli
innviðaráðherra sé heldur í
rénun. Staða ráðherrans er þó
sögð hafa veikst. Stjórnarand-
staðan er ekki einhuga.
bth@frettabladid.is
STJÓRNMÁL Jóhann Páll Jóhannsson,
þingmaður Samfylkingarinnar, telur
að Sigurður Ingi Jóhannsson, innvið-
aráðherra og formaður Framsóknar-
flokksins, verði að segja af sér.
„Já, ég held að það væri virðingar-
leysi við fólk af erlendum uppruna á
Íslandi ef Sigurður Ingi fengi að sitja
áfram eins og ekkert hefði í skorist,“
sagði Jóhann Páll þegar Frétta-
blaðið ræddi við nokkra þingmenn
á Alþingi í gær um stöðu Sigurðar
Inga og framhaldið.
Skiptar skoðanir eru meðal þing-
manna stjórnarandstöðunnar um
alvarleika málsins.
„Hann er búinn að biðjast afsök-
unar, hann hefur kastað syndum
sínum aftur fyrir sig. Megi honum
vel farnast í sínu starfi,“ segir Jakob
Frímann Magnússon, þingmaður
Flokks fólksins, sem telur enga
ástæðu til afsagnar.
Sigmar Guðmundsson, þing-
maður Viðreisnar, segir að Viðreisn
hafi ekki krafist þess að Sigurður
Ingi segi af sér. Viðreisn hafi aftur
á móti krafist frekari upplýsinga.
Ræða þurfi málið til hlítar. Alþingi
sé réttur vettvangur til þess.
„Það er ekki gott þegar tugþús-
undir Íslendinga geta átt von á mis-
munun vegna húðlits eða kyns,“
sagði Sigmar.
Flestir sem rætt var við í gær,
töldu sig skynja að „málið væri að
kólna“ eins og einn þingmanna
orðaði það. Ólíklegt væri að afsögn
ráðherrans yrði að veruleika.
Björn Leví Gunnarsson, þingmað-
ur Pírata, sagðist ekki geta svarað
því að svo stöddu hvort þingflokkur
Pírata hygðist bera upp vantrausts-
tillögu. Fulltrúar f lestra annarra
stjórnarandstöðuf lokka sögðu of
snemmt að velta slíku fyrir sér.
Þingmenn meirihlutans voru
f lestir ófúsir að tjá sig um málið
opinberlega. Sumir sem kjósa
nafnleynd segja óheppilegt að orð
Sigurðar Inga og aðstoðarmanns
hans stangist enn á. Þá eru sumir
Sjálfstæðismenn reiðir Sigurði Inga,
þar sem þolandinn í málinu, Vigdís
Häsler, komi úr þeirra röðum.
Þeir þingmenn finnast einn-
ig innan meirihlutans sem telja
ekki sannað að Sigurður Ingi hafi
gasprað með hvort lyfta ætti „þeirri
svörtu“ eins og aðrar heimildir
segja öruggt. Aðrir bera fyllerí þing-
manna Miðflokksins á Klaustri fyrir
nokkrum árum saman við málið,
sem og fleiri hneyksli þar sem Bakk-
us hafi komið við sögu.
Allir þingmenn sem blaðið ræddi
við segja að burtséð frá því hvort
ráðherrann segi af sér eða ekki hafi
staða hans veikst. Tíminn muni
leiða í jós að hve miklu leyti traust
hans hafi skaðast og hvort málið
gleymist. ■
Skiptar skoðanir í minnihlutanum
um hvort Sigurður Ingi eigi að víkja
Aðeins einn
þingmanna
stjórnarand-
stöðunnar nýtti
tækifærið við
upphaf þing-
fundar í gær til
að ræða mál
Sigurðar Inga
undir liðnum
störf þingsins.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
Sigurður Ingi
Jóhannsson,
innviðaráðherra
benediktboas@frettabladid.is
MENNTUN Í niðurstöðum rann-
sóknar sem Berglind Kristinsdóttir
gerði um upplifun sjö starfandi
náms- og starfsráðgjafa í grunn-
skólum kemur skýrt fram að við-
mælendur töldu grunnskólann
gera of litlar námslegar kröfur til
nemenda.
Í rannsókninni, sem kallast Við
tökum ábyrgðina af þeim, kemur
fram að allir viðmælendur töldu
mikilvægt að efla sjálfsstjórn nem-
enda í námi og stuðla þannig að því
að efla ábyrgð þeirra á eigin námi.
Námsráðgjafarnir voru á þeirri
skoðun að þau börn sem sýna fram
á góðan námsárangur væru nem-
endur sem skipuleggja tíma sinn,
leita eftir aðstoð þegar þörf er á
og hafi oftast mikið á sinni könnu.
Það megi því draga þá ályktun að
daglegt líf þeirra ef li sjálfsstjórn
þeirra í námi ásamt því að þau búi
yfir þeim þroska að geta lagt mat á
námsframvindu sína. ■
Of litlar kröfur í
grunnskólanum
Talið er mikilvægt að efla sjálfs-
stjórn nemenda. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
lovisa@frettabladid.is
FJÁRMÁL Listi yfir kaupendur í
útboði Íslandsbanka 22. mars, er
ríkið seldi samtals 22,5 prósenta hlut
í bankanum, var birtur í gær.
Meðal kaupenda er faðir fjár-
málaráðherra, Benedikt Sveinsson,
sem keypti hlut fyrir um 54 milljónir
króna í gegnum félag sitt Hafsilfur. Á
meðal stærri kaupenda er Eignar-
haldsfélagið Steinn ehf. sem er í eigu
Þorsteins Más Baldvinssonar í Sam-
herja. Hann keypti fyrir tæpar 300
milljónir í útboðinu.
Guðbjörg M. Matthíasdóttir, aðal-
eigandi Ísfélagsins í Vestmannaeyj-
um og einn eigenda Morgunblaðsins,
keypti fyrir tæpan hálfan milljarð
króna.
Raf kaup keypti fyrir um 270
milljónir króna en Sólveig Nanna
Hafsteinsdóttir er skráður eigandi.
Félagið Íshóll ehf. sem er í eigu fjár-
festisins Stefáns Ákasonar keypti
einnig fyrir um 270 milljónir í bank-
anum.
Pálmi Haraldsson í Fons keypti
fyrir um 224 milljónir í gegnum
fyrirtæki sitt Sólvelli. Jóhann Hall-
dórsson keypti fyrir um 180 millj-
ónir í gegnum félag sitt s8 ehf.
Hjónin Bogi Þór Siguroddsson og
Linda Björk Ólafsdóttir, sem eiga
fyrirtækið Jóhann Rönning, keyptu
fyrir tæplega 1.170 milljónir í gegn-
um félag sitt Bóksal ehf. Þau eiga nú
alls 2,5 prósenta hlut í Íslandsbanka.
Þórður Már Jóhannesson fjárfestir
keypti í gegnum tvö félög, Brekku
Retail Ehf. og Fjárfestingarfélagið
Brekku, fyrir alls um 108 milljónir.
Meðal annarra kaupenda, sem
alls voru 209 félög og einstaklingar,
má nefna félagið Klambratún sem
er í eigu Ólafs Andra Ragnarssonar,
Íslenska tónlist ehf. sem er í eigu
Sölva Blöndal og Sigurðar Reynis
Harðarsonar, og fjárfestinn Halldór
Karl Högnason sem keypti í gegnum
félagið Valshöfða.
Heildarsalan á 22,5 prósenta hlut
ríkisins í Íslandsbanka færði ríkinu
52,7 milljarða króna. Ákveðið var að
miða við gengið 117 krónur á hlut
þó að verð hvers hluta í Kauphöll-
inni væri þá 123 krónur. Síðan þá
hefur gengið hækkað umtalsvert og
var í lok dags í gær 129 krónur á hlut
sem er ríflega tíu prósenta hækkun
frá sölunni fyrir rúmum tveimur
vikum. Hlutur þeirra sem keyptu þá
hefur þannig alls hækkað um 5.300
milljónir króna. ■
Listi yfir þau sem græddu fimm milljarða á hálfum mánuði
Bogi Þór Siguroddsson
og Linda Björk Ólafs-
dóttir keyptu hlut fyrir
1.170 milljónir sem nú
er 1.287 milljóna virði.
4 Fréttir 7. apríl 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ