Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.04.2022, Qupperneq 26

Fréttablaðið - 07.04.2022, Qupperneq 26
 Í ár voru gestir almennt frekar íhalds- samir í klæða- burði. Stjörnurnar mættu í sínu fínasta pússi á Grammy- verðlaunahátíðina á mánu- daginn en klæðnaðurinn var hefðbundnari og íhalds- samari í ár en oft áður á hátíðinni. oddurfreyr@frettabladid.is Grammy-verðlaunahátíðin fór fram í 64. sinn í Las Vegas á mánu- dag. Á þessari verðlaunahátíð er hefð fyrir því að stíga út fyrir hinn hefðbundna tískuramma og prófa eitthvað nýtt, en í ár voru gestir almennt frekar íhaldssamir í klæðaburði. Flestir gestanna voru annað hvort í bleiku, svörtu eða pallí- ettum og óperuhanskar og sólgleraugu voru vinsæl á rauða dreglinum. Það er ómögulegt að segja hvaða gestir voru glæsilegastir að þessu sinni, en hér eru nokkrir sem tískumiðlarnir eru sammála um að hafi borið af. ■ Glæsilegir gestir á Grammy-verðlaunum Lady Gaga var með klassískt útlit. Hún klæddist hvítum og svörtum Armani Privé-kjól og var með glás af dem- öntum frá Tiffany & Co. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Meðlimir hljómsveitarinnar BTS mættu í Louis Vuitton og pössuðu upp á að litirnir tónuðu vel saman en voru um leið með ólíka aukahluti. Jared Leto slær yfirleitt í gegn á rauða dreglinum og var að vanda flottur í Gucci og þykkri kápu. Megan Thee Stallion var í Roberto Cavalli-kjól og með gullskartgripi. Förðun hennar vakti líka athygli. Saweetie var í sérsaumuðum skærbleik- um kjól frá Valentino og með glæsilega skartgripi frá vörumerkinu Messika. Lil Nas X var glæsilegur eins og venjulega í þessum hvítu Balmain-fötum sem voru vand- lega skreytt með perlum. Dua Lipa mætti með ljóst hár og vakti lukku í þessum Versace-kjól sem er í sama stíl og kjóll sem sami hönnuður gerði árið 1992. Lenny Kravitz vann rokkstig í hnéháum stígvélum með háum hæl, leður- buxum og silfurlit- uðum bol sem minnti helst á hringa- brynju. HJÓLABLAÐ Föstudaginn 22. apríl gefur Fréttablaðið út sérblaðið Hjólablað. Í þessu skemmtilega blaði er fjallað um allt sem viðkemur hjólreiðum á Íslandi. Allir sem stunda hjólreiðar að einhverju marki munu finna áhugavert efni í blaðinu. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Nánari upplýsingar um blaðið veitir Arnar Magnússon sölu- og markaðsfulltrúi Fréttablaðsins. Sími 550 5652 / arnarm@frettabladid.is FERMINGARGJAFIR Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum. Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi. Tryg þér gott uglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402 eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is 6 kynningarblað A L LT 7. apríl 2022 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.