Fréttablaðið - 07.04.2022, Blaðsíða 42
Dalatangi er einn af mörgum stórbrotnum útkjálkum
Austfjarða, mitt á milli Seyðisfjarðar og Mjóafjarðar.
Allir kannast við nafnið úr veðurfréttum útvarps,
enda veðurathugunarstöð verið starfrækt á Dalatanga
frá árinu 1938. Færri hafa heimsótt þennan stórbrotna
stað og vitana tvo sem þar eru staðsettir. Þá vaktar vita-
vörður sem auk þess sinnir veðurathugunum og búskap
á einu afskekktasta býli á landinu sem jafnframt er það
austasta. Þarna er snjóþungt á veturna og mjósleginn
vegurinn í gegnum Mjóafjörð yfirleitt ófær. Verður þá að
reiða sig á samgöngur sjóleiðina en á sumrin má komast
á fólksbílum alla leið út á Dalatanga. Þar endar vegurinn
og lengra verður ekki komist akandi á Íslandi.
Umhverfi Dalatanga er stórbrotið og upp af kletta-
skorinni ströndinni rísa snarbrött og einkar tignar-
leg fjöll. Gaman er að rölta um ströndina og fjöruna.
Ósjálfrátt hvarflar hugurinn að lífsbaráttu bænda sem
þarna stunduðu búskap og útræði við óblíðar aðstæður
og mikla einangrun. Útsýni er mikið til allra átta, ekki
síst norður að Glettingi og mynni Loðmundar- og
Seyðisfjarðar. Vitana tvo verður vitaskuld að skoða,
ekki síst þann eldri sem hlaðinn er úr blágrýti. Hann
lét norski útgerðarmaðurinn Otto Wathne á Seyðis-
firði byggja á eigin kostnað 1895 og er hann jafnframt
elsta vitamannvirki á Íslandi sem enn stendur. Vitinn
hefur verið endurgerður og má skoða hann að innan-
verðu. Yngri vitinn frá 1908 er enn í notkun og skær-
gulur liturinn æpandi borið saman við ljósgráan lit
eldri bróður síns.
Flestir kjósa að aka með bíl að Dalatanga. Er þá
ekið úr Fagradal yfir Mjóafjarðarheiði, ofan í fossum
skrýddan Mjóafjörð, meðfram Klif brekkufossum og
fram hjá smáþorpinu Brekku. Áfram liggur vegurinn
yfir brattar skriður og skorninga að grænum túnum
bæjarins Dalatanga. Þetta er frábær fjallahjólaleið en
sumir kjósa að ganga eftir veginum frá Brekku. Einn-
ig má ganga út á Dalatanga frá Austdal í Seyðisfirði. Er
þá haldið yfir Dalaskarð og síðan niður eftir Daladal að
sunnanverðum Dalatanga. Mun torfærari en sérlega
falleg gönguleið liggur frá Skálanesi við Seyðisfjörð, í
gegnum Skollaskarð og svokallaðar Afréttir að norðan-
verðum Dalatanga. Þótt þessi gönguleið sé að mestu
leyti stikuð er hún aðeins fyrir vant göngufólk. Þarna
getur verið þokugjarnt og því skynsamlegt að hafa með
í för GPS-tæki, vasavita nútíma göngufólks. ■
Þar sem vegurinn
endar í austri
Ólafur Már
Björnsson
augnlæknir og
ljósmyndari
Tómas
Guðbjartsson
hjartaskurð
læknir og náttúru
unnandi
Ekki er hægt að aka austar á Íslandi en að Dalatanga. Náttúran er stórbrotin og spennandi gönguleiðir í boði. Flatafjall (931 m) fyrir miðri mynd og Seyðisfjörður til hægri. MYNDIR/ÓMB
Gamli vitinn á Dalatanga er elsta vitamannvirki landsins og tekur sig vel út í stórbrotnu umhverfinu.
Klettótt ströndin við Dalatanga er stórbrotin og upplögð fyrir stuttar gönguferðir.
34 Fréttir 7. apríl 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐFÓKUS Á HJARTA LANDSINS 7. apríl 2022 FIMMTUDAGUR