Fréttablaðið - 07.04.2022, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 07.04.2022, Blaðsíða 10
Það er vægast sagt einkenni- legt að sumir stjórn- málamenn skuli hafa frumkvæði að því að greiða þessu fólki bætur án þess að fyrir liggi dómur eða endanlegt samkomu- lag um uppgjör. málsins. Einn fjórmenninganna sem að ósekju voru hnepptir í yfir 100 daga gæsluvarðhald 1976 í Guðmundar- og Geirfinns- málinu gagnrýnir harðlega aðkomu stjórnmálamanna að bótagreiðslum til fólksins sem kom þeim í fangelsi með röngum sakargiftum. DÓMSMÁL Magnús Leópoldsson, einn fjórmenninganna sem upp- runalegir dómþolar í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu beittu röngum sakargiftum með þeim afleiðingum að þeir sátu að ósekju í gæsluvarð- haldi í yfir 100 daga árið 1976, segir það þungbært fyrir þá félaga að horfa upp á að fólkið sem dró þá algerlega saklausa inn í málið fái nú „greiddar himinháar bætur, án þess að fyrir liggi niðurstaða Hæstaréttar um hvort og hvað þá hvaða áhrif sök þeirra eigi að hafa á bótagreiðslur.“ Hann hafi það á tilfinningunni að verið sé að greiða bætur fyrir að bera á þá rangar sakir. „Sýknudómur Hæstaréttar er því marki brenndur,“ heldur Magnús áfram, „að settur ríkissaksóknari sem lagði þá rannsókn upp rök- studdi ekki að okkar mati nógu vel niðurstöðuna, en hann gerði bara kröfu um að sýkna bæri Sævar Marinó, Kristján Viðar og Guðjón Skarphéðinsson af mannshvörf- um.“ Aðrar sakfellingar á öðrum afbrotum standi á hinn bóginn eftir óhaggaðar, en þar á meðal séu ýmis alvarleg brot, þar á meðal rangar sakargiftir. Afvegaleiddu rannsóknina Í samtali við Fréttablaðið segir Magnús að þetta sé sérlega sárt í ljósi þess að þeir sem upprunalega hlutu dóm og fái nú greiddar bætur beri fulla ábyrgð á því að afvega- leiða rannsóknina á sínum tíma, en í dómnum yfir þeim frá 1980 viður- kenni þeir að það hafi verið saman- tekin ráð að bendla Magnús, Einar Bollason, Valdimar Olsen og Sigur- björn heitinn Eiríksson við málið til að torvelda rannsókn þess, færi svo að upprunalegu dómþolarnir yrðu bendlaðir við það. Hugmyndin hafi verið að þá myndi rannsóknin beinast frá þeim. „Þetta fólk gerði af einhverjum ástæðum fyrir fram ráð fyrir að það yrði spurt út í Geir- finnsmálið og sammæltist um það að draga okkur saklausa inn í þetta mál, væntanlega til þess að dylja eigin glæpi,“ segir Magnús. Hann segir Guðmundar- og Geir- finnsmálin ekki eingöngu hafa varðað mannshvörf, heldur einnig nauðgun, þjófnað, fjársvik, brennu, skjalafals, smygl, sölu á fíkniefnum og síðast en ekki síst rangar sakar- giftir á hendur fjölda nafngreindra einstaklinga, en síðastnefnda atriðið varði tveggja til sextán ára fangelsi. Fólk verður að bera ábyrgð „Það virðist gæta einhvers mis- skilnings í umræðunni um öll þessi alvarlegu brot, að þau hverfi vegna þess að hægt sé að gagnrýna rann- sóknarferlið og meðferð dómstóla,“ segir Magnús og bætir við að fólk verði auðvitað að bera ábyrgð á því sem það sannanlega geri. Gagnrýni á lögreglu og dómstóla sé bara allt annað mál og þurfi að skoða sér- staklega eftir því sem við eigi. Magnús segir Erlu Bolladóttur og afkomendur annarra upprunalegra dómþola sem sækja bætur bera fulla ábyrgð á því að hafa komið því til leiðar að saklaust fólk hafi verið lokað inni. Bótagreiðslur til þessa fólks megi því og beri að gagnrýna. Nú reyni Erla Bolladóttir að koma þeirri sök á aðra, en eftirlifandi fjórmenningar viti að það sé ekki rétt. „Enda gæti hún ekki vitað um sakleysi okkar nema vegna þess að hún var sjálf stödd, að eigin sögn, í Dráttarbrautinni í Keflavík 19. nóv- ember 1974,“ segir Magnús. Höfðu hag af sakbendingunni Hann segir umrædda einstaklinga Þau höfðu hag af því að draga saklausa menn inn í málið Fjölmiðlar fylgdust grannt með allri með- ferð Geirfinns- og Guðmundar- málanna. MYND/ AÐSEND Magnús Leópoldsson segir Erlu Bolladóttur bera ábyrgð. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Valdimar Olsen, Magnús Leópoldsson og Einar Bollason í héraðsdómi í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR hafa haft beinan hag af því að draga saklausa menn inn í málið – og nefnir þar Guðjón Skarphéðinsson sem hafi skýrt frá því þegar hann var við yfirheyrslu, tæpu ári eftir að fjórmenningarnir voru handteknir, að hann hefði tekið það nærri sér „að vita af okkur í gæsluvarðhaldi þar sem hann vissi að við vorum saklausir,“ segir Magnús og bætir því við að það sé „ svívirðilegur glæpur að bera menn röngum sökum til að dylja eigin glæpi. Auðvitað veit Guð- jón Skarphéðinsson að við vorum saklausir og það af sömu ástæðu og Erla veit það.“ Magnús segir „afskipti stjórn- málamanna af þessu máli, fyrr og síðar, vera algerlega óþolandi og hafa valdið miklum skaða.“ Og Magnús segir þar ekkert lát á. „Það er vægast sagt einkennilegt að sumir stjórnmálamenn skuli hafa frum- kvæði að því að greiða þessu fólki bætur án þess að fyrir liggi dómur eða endanlegt samkomulag um uppgjör málsins. Stjórnmálamenn eiga ekki að blanda sér í úrlausn dómsmála eða reyna að hafa áhrif á niðurstöðuna.“ Undarleg hagsmunagæsla Þá sé það undarleg hagsmunagæsla fyrir hönd ríkissjóðs að ákveða að áfrýja ekki nýlegum héraðsdómi í máli Erlu Bolladóttur. „Í mínum huga er ekki hægt að kveða þetta mál úr íslensku samfélagi hvað bætur varðar án endanlegs dóms Hæstaréttar,“ segir Magnús Leó- poldsson. Loks sé mjög athyglisvert að kynna sér aðkomu Gísla Guðjóns- sonar að Geirfinnsmálinu, meðal annars þegar hann hafi náð að rjúfa einangrun Guðjóns Skarphéðins- sonar í desember 1976, en Gísli var á þessum tíma nemi í réttarsálfræði. „Hann er því að okkar mati algjör- lega vanhæfur í því máli enda lýsti hann því sjálfur yfir í blaðagrein í DV í janúar 1998,“ segir Magnús Leópoldsson að lokum. ■ Sigmundur Ernir Rúnarsson ser @frettabladid.is 10 Fréttir 7. apríl 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐFRÉTTAVIÐTAL FRÉTTABLAÐIÐ 7. apríl 2022 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.