Fréttablaðið - 07.04.2022, Side 20

Fréttablaðið - 07.04.2022, Side 20
Í vikunni kom út þriðji hluti 6. stöðuskýrslu Milliríkjanefndar S.þ. um loftslagsbreytingar (e. IPCC). Fyrsti hluti skýrslunnar kom út í ágúst 2021 og annar hluti hennar í febrúar 2022. Skilaboð alþjóðavís- indasamfélagsins sem koma fram í þessum skýrslum eru skýr: lofts- lagsbreytingar af mannavöldum hafa þegar alvarleg áhrif á fólk og vistkerfi um allan heim og mögu- leikar okkar á því að takmarka hnattræna hlýnun við 1,5 gráður frá iðnbyltingu minnka á ógnarhraða. Við þurfum að sjá algjöran og tafar- lausan viðsnúning á heimsvísu af hálfu stjórnvalda, fyrirtækja og einstaklinga í þágu loftslagsins. Án ýkja þá eru þessar skýrslur síðustu neyðarviðvaranir fremstu sérfræð- inga heims í loftslagsmálum. António Guterres, aðalritari S.þ. kallaði fyrsta hluta skýrslunnar „rauða viðvörun fyrir mannkyn“. Sagði hann svo annan hluta skýrsl- unnar sýna „misheppnaða forystu í loftslagsmálum“ og að „biðin [eftir loftslagsaðgerðum] sé banvæn“. Að lokum sagði hann að þriðji hluti skýrslunnar sýndi að „fyrirtæki og stjórnvöld um allan heim segi eitt en geri annað – að þau séu að ljúga“ og að tími sé komin til að „hætta að brenna Jörðina okkar“. Nú vil ég að stjórnvöld fari virki- lega að hlusta á vísindin og hugsa sinn gang. Fremsta vísindafólk heims vinnur sjálf boðavinnu sem telur þúsundir klukkustunda til að kafa djúpt í nýjustu loftslags- vísindi og undirbúa ítarlegar og vel unnar skýrslur sem eiga að veita leiðtogum heims innsýn í það hvar við stöndum og hvað þarf að gera í loftslagsmálum. En í stað þess að taka þessum skýrslum alvar- lega virðast valdhafar á heimsvísu, þ.m.t. íslensk stjórnvöld, hunsa þær að mestu leyti. Nú eru margir mánuðir, næstum hálft ár, síðan ný ríkisstjórn tók við völdum en til þessa hefur mjög lítið sést eða heyrst um loftslagsaðgerðir annað en fögur loforð. Í stjórnar- sáttmála ríkisstjórnarinnar segir að þau ætli að setja loftslagsmálin í forgang, en þetta hafa þau ekki sýnt í verki á síðustu 6 mánuðum. Stjórn- völd hafa ekki sett fram skýra stefnu um það hvernig kolefnishlutleysi við stefnum að, þau hafa ekki lögfest uppfært markmið um 55% samdrátt fyrir 2030 og þau hafa ekki uppfært aðgerðaráætlun sem er jú það tól sem á að skila raunverulegum sam- drætti í losun. Hversu margar skýrslur þarf fremsta vísindafólk heims að útbúa til að þið ráðist í aðgerðir? Hversu margar greinar þurfum við unga fólkið að skrifa til að þið hlustið á okkur? Hversu mörgum klukkutímum þurfum við unga fólkið að fórna frá skóla og vinnu til að mótmæla aðgerðaleysi ykkar til að berjast fyrir framtíð okkar? Hversu mörgum sinnum ætlið þið að klappa okkur á bakið og segja okkur hvað við erum frábær án þess að gera svo neitt? Ég bið ykkur, fyrir hönd ungs fólks og framtíðarkynslóða um allan heim, að fara nú að koma ykkur að því að sýna loforð ykkar í verki. Sýnið að ykkur er annt um þau sem eru nú þegar að verða fyrir hörmulegum afleiðingum loftslags- breytinga. Sýnið að ykkur er annt um ungt fólk og framtíðarkynslóðir. Við viljum ekki f leiri loforð, heldur viljum við sjá alvöru aðgerðir strax sem skila raunverulegum sam- drætti í losun. Valið er ykkar: annað hvort verður litið á ykkur sem lofts- lagssökudólga eða loftslagshetjur. Vinsamlegast veljið vandlega.n Innantóm loftslagsloforð Finnur Ricart Andrason loftslagsfulltrúi Ungra um- hverfissinna og ungmennafulltrúi Íslands til S.þ. á sviði loftslagsmála Ég lá veikur. Það var kveikt á útvarp- inu. Þar talaði kona um lífeyrismál. Afsakið að ég get með engu móti fundið þáttinn aftur og man ekki nafn konunnar en hún var vafalaust vel tengd inn í lífeyriskerfið. Og því fengin til að varpa ljósi á þetta margflókna fyrirbæri. Meðal annars vék hún að þeirri staðreynd að áunnum lífeyris- réttindum verður ekki skipt með öðrum (maka eða sambúðarmanni) þegar 65 ára aldri er náð. Ástæðan? Jú, sagði konan, til að draga úr hættu á að svindlað sé á kerfinu. Hvernig þá (og haldið ykkur nú)? Til dæmis ef annar sambúðar- aðilinn eða makinn er dauðvona, útskýrði konan, stendur þessi leið opin fram í andlátið væru ekki þessi aldursmörk. Ég veit að forsvarsmenn lífeyris- sjóðanna hafa ætíð brugðist hart gegn öllum hugmyndum um að sjóðsfélagar ættu ef til vill að eiga iðgjöld sín. Þetta er tryggingasjóður, hefur svarið verið. Sú trygging er að vísu dýru verði keypt, að minnsta kosti stundum, en látum það vera. En getum við ekki fallist á að eftirlifandi maki eða sambúðar- aðili haldi áfram að njóta góðs af lífeyrisréttindum hins látna ekta- maka og ástvinar? Eða telja odd- vitar lífeyriskerfisins réttlætinu þjónað með greiðslu makalífeyris í fimm ár? Þessi árakvóti virðist mér svipaður hjá öllum lífeyrissjóðum og yfirleitt eru þeir sammála um að makalífeyrir skuli aldrei vera nema helmingur þess sem hinn látni hafði áunnið sér. Og þegar frá líður bara helmingur þess helmings í að minnsta kosti tvö ár af þeim fimm sem makalífeyrir er greiddur. Ég spyr: Er ekki sjálfsagt réttlætis- mál að sambúðarfólk, gift eða ógift, njóti óskertra lífeyrisréttinda maka síns fram í andlát beggja? n Svona gætu aldraðir svindlað á kerfinu ef …? Jón Hjaltason sagnfræðingur Eða telja oddvitar lífeyriskerfisins rétt- lætinu þjónað með greiðslu makalífeyris í fimm ár? 20 Skoðun 7. apríl 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.