Fréttablaðið - 07.04.2022, Side 46

Fréttablaðið - 07.04.2022, Side 46
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Andrés Bertelsen andres@frettabladid.is, Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/ SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is Maður er búinn að fylgjast mikið með hundum og herma eftir þeim. Hallveig Kristín Eiríksdóttir Hallveig og Selma heilluðust af grænlenskum sleða­ hundum eftir að heyra sögu pólfarans Roalds Amundsen. Þær fundu sinn innri hund fyrir sýninguna Hunden bakom mannen sem þær sýna nú í Tjarnarbíói og á stórri listahátíð í Kanada næsta sumar. tsh@frettabladid.is Sviðslistakonurnar Hallveig Kristín Eiríksdóttir og Selma Reynisdóttir, sem skipa leikhópinn Losti Col­ lective, bregða sér í hlutverk græn­ lenskra sleðahunda í sýningunni Hunden bakom mannen sem verður sýnd í Tjarnarbíói á næstu dögum. „Við unnum verkið fyrst úti í Finnlandi þar sem Selma býr og prófuðum að sýna verk í vinnslu­ útgáfu í leikhúsi í neðanjarðarbyrgi í Helsinki. Síðan tókum við það á Lókal­sviðslistahátíðina og unnum áfram og síðan þá erum við búnar að taka eina skorpu í viðbót við að breyta og bæta,“ segir Hallveig. Að sögn hennar er verkið búið að vera hátt í tvö ár í þróun. „Við áttum fyrst að fara til Græn­ lands í rannsóknarleiðangur en síðan kom Covid. Við vorum í sam­ starfi við grænlenska sleðahunda­ sérfræðinga sem tóku upptökur fyrir okkur og útskýrðu fyrir okkur hvernig vináttutengsl og dýnamík myndast á milli sleðahunda.“ Í ljósi sögunnar kveikti áhugann Hunden bakom mannen byggist á kapphlaupi Norðmannsins Roalds Amundsen og Bretans Roberts Fal­ con Scott á Suðurskautslandið 1911, sem endaði með því að Amundsen komst fyrstur manna á land­ fræðilega suðurpólinn með hjálp hundrað grænlenskra sleðahunda. Áhuginn kviknaði þegar þær Hall­ veig, Selma og dramatúrg verksins, Gígja Sara Björnsson, unnu saman að öðru verki fyrir þremur árum. „Við vorum að hlusta á Í ljósi sög­ unnar­þættina hennar Veru Illuga­ dóttur, Kapphlaupið á suðurpólinn, þessa frábæru fjögurra þátta seríu. Við vorum svo ótrúlega inni í þess­ um þáttum og fannst þeir svo geggj­ aðir að okkur langaði að segja þessa sögu út frá sjónarhorni hundanna, bara sem grín. Síðan urðum við svo­ lítið helteknar af þessari hugmynd.“ Að sögn Hallveigar uppgötvuðu þær Selma bókina Roald Amund­ sen’s Sled Dogs þar sem rithöf­ undurinn Mary R. Tahan kortleggur nöfn og örlög allra sleðahundanna sem fóru með í leiðangurinn á suð­ urpólinn út frá dagbókum Amund­ sens og hinna pólfaranna. „Þar fær maður að heyra hverjir voru forystuhundar, hverjir voru vinir, hverjir voru óþekkir, hverjir hlupu hraðast, hverjir fæddu hvolpa og hvernig þeim leið. Sumir af leið­ angursmönnunum elskuðu þessa hunda rosalega mikið og svo fór sem fór með þá,“ segir Hallveig en hund­ arnir hlutu flestir grimmileg örlög sem rakin eru í sýningunni. Hjálp frá hundasérfræðingi Hallveig og Selma urðu gjörsamlega heillaðar af sögu sleðahundanna og hlutverkinu sem þeir spiluðu í hinu sögulega kapphlaupi Amundsens og Scotts á suðurpólinn. „Okkur fannst svo fyndin pæling­ in að það er hundunum að þakka að Amundsen komst á suðurpólinn, en þeir höfðu ekki hugmynd um hvert þeir voru að fara. Það er svo mikill sögulegur þungi í þessu en hund­ arnir sem voru mjög virkir þátttak­ endur vissu ekkert hvert þeir voru að fara eða hvers vegna.“ Hvernig fer maður að því að leika sleðahund? „Við byrjuðum á því að skoða rosa mikið af myndböndum og svo á Selma hund. Maður er búinn að fylgjast mikið með hundum og herma eftir þeim. Við fengum mikla hjálp frá grænlenskum sleðahundasérfræðingi sem heitir Pipaluk Lykke. Síðan snerist þetta bara svolítið um að finna sinn innri hund. Gera hundalega hluti, vera á fjórum fótum, geispa lengi, hrista sig svolítið, nota eyrun til að horfa og sofa með skottið yfir trýnið,“ segir Hallveig kímin. Sýna á stórri hátíð í Kanada Hallveig og Selma ætla að leggja land undir fót, eða kannski rétt­ ara sagt land undir loppu, og sýna Hunden bakom mannen á stórri hátíð í Kanada næsta sumar auk þess sem þær stefna á að sýna verkið á Grænlandi 2023. Þær hafa nefni­ lega enn ekki náð að hitta græn­ lenska sleðahunda í eigin persónu. „Þá loksins fáum við að hitta þessa hunda sem við erum að þykj­ ast vera. Ég held að það verði bara að koma í ljós þá hvort okkur hefur tekist það eða ekki.“ Hunden bakom mannen er sýnt í Tjarnarbíói 11. og 13. apríl auk þess sem barnvæn útgáfa verksins verður flutt á hátíðinni UngA 9. apríl. ■ Fundu sinn innri hund Þær Hallveig og Selma fóru alla leið í að setja sig í spor grænlenskra sleðahunda. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI ingunnlara@frettabladid.is D í s el la L á r u s dót t i r, ný ja st i Grammy­verðlaunahafi Íslands, segist opin fyrir því að halda fleiri tónleika hér heima en hún hefur verið í nær áratug með annan fótinn í Metropolitan­óperunni í New York. „Ég hef alltaf verið meira en mikið til í að syngja heima. Það hentar mér svo vel að vera heima með börnin þrjú.“ Hún segir óperuformið dýrt en sjúklega skemmtilegt, það þurfi marga til að setja upp eitt verk. Helst vilji hún sjá þjóðaróperu rísa á Íslandi. „Þú þarft sviðsmynd, bún­ inga, leikstjóra, dansara, kór. Þetta er dýrt listform og margt sem mætti gera betur hér á Íslandi. Ég vona svo innilega að þjóðarópera verði að veruleika.“ Dísella er reynslumikil söngkona. Hún útskrifaðist úr Söngskólanum í Reykjavík árið 2002 og fór þaðan í meistara­ nám við Westminster Choir Col­ lege, Rider University í Princeton í Bandaríkjunum. Þaðan útskrifaðist hún í maí 2005. Síðan hefur verið nóg að gera hjá söngkonunni. Spurð hvort hún hafi skilaboð til ungra söng­ kvenna sem eru að reyna fyrir sér í tón­ listariðnaðinum segir Dísella að mikilvæg­ ast sé að halda áfram veginn. „Þú færð skrilljón nei áður en þú færð eitt já. Það hefur verið lýjandi. Vertu dugleg við iðju þína og stundaðu hana af heilum hug og vertu gagn­ rýnin á sjálfa þig. Þessi heimur er skrítinn og það er enginn regla á honum. Þú þarft að fara eftir þínum eigin reglum.“ ■ Skrilljón nei og eitt já Dísella Lárusdóttir. 38 Lífið 7. apríl 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ EXTRA ÓDÝR PÁSKAEGG Barónsstígur • Keflavík • Akureyri *Sýna þarf kvittun samdægurs. Gildir aðeins fyrir páskaegg frá Nóa, Freyju og Góu. Gildir ekki um páskegg nr. 1. Þú færð ódýrara páskegg hjá okkur, annars endur- greiðum við mismuninn* Gildir til 18.apríl.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.