Fréttablaðið - 07.04.2022, Side 48
frettabladid.is
550 5000
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is
Það er búið að vopnvæða stöðug-
leika og gegn honum eiga prinsipp
engan séns. Það skiptir engu máli
hver stjórnar, það sem skiptir máli
er að halda áfram, á um það bil
sama hraða, sama hvað skeður.
Ef fjármálaráðherra, sá sami og
beitti sér til þess að þagga niður
umfjöllun fjölmiðla um vafasöm
viðskipti sín í aðdraganda hruns-
ins, verður uppvís að því að brjóta
bæði sóttvarnareglur og brothætta
samstöðu þjóðar, þá er best að
útskýra að þetta sé erfitt mál en
að sami ráðherra njóti fulls traust
ríkisstjórnarinnar. Við viljum ekki
stjórnarkreppu.
Ef innviðaráðherra verður upp-
vís að biluðum rasisma og gerir til-
raun til þess að hylma yfir atvikið
gagnvart fjölmiðlum, reynir að
rengja aðra málsaðila, þá má segja
að þessi orð séu óverjanleg. Þau eru
óverjanleg, en innviðaráðherra,
rammfullorðinn maður, skammast
sín fyrir að hafa sagt þau. Er það
ekki nóg? Hann er að læra, er það
ekki nóg? Við gerum enga kröfu
á manngerð þeirra sem stjórna,
rasistum er velkomið að vaða uppi
í ráðherrabústaðnum, svo framar-
lega að þeir ógni ekki stöðug-
leikanum. Svo framarlega að við
getum haldið áfram á um það bil
sama hraða. Haldið áfram ferðinni,
sama hvert henni er heitið.
Ef einhver er óþægilegur, einhver
innan stjórnar eða í andstöðu,
þingmaður eða almennur borgari,
þá er viðkomandi ógn við stöðug-
leikann. Það er ekki okkar að leggja
mat á það hvort það sé réttmætt að
rasisti sitji í ríkisstjórn, hann þarf
að gera það upp við sjálfan sig. Hér
er ekkert siðferði, allt má beygja
og sveigja í þágu stöðugleika. Við
getum engar kröfur gert á þau sem
stjórna, það skiptir nefnilega engu
máli hver stjórnar. n
Það skiptir
engu máli
Stefáns Ingvars
Vigfússonar
n Bakþankar
nova.is
14.990 kr. /mán.
MínusÁtján
fyrir krakkana
NovaTV
AlltSaman hjá Nova
Betra net heima
— og út um allt!
Eitt verð fyrir ótakmarkað net heima, í farsímana eða
snjalltækin og úrið. Borgaðu minna og vertu alltaf
á betra neti!
Páskablað
Nettó
Frábært úrval af páskamat,
góð tilboð, viðtöl og uppskriftir
Skoðaðu
blaðið á
netto.is
Fermingar-
skraut
Faxafeni 11,
108 Reykjavík
www.partybudin.is