Fréttablaðið - 19.04.2022, Blaðsíða 1
7 5 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s Þ R I Ð J U D A G U R 1 9 . A P R Í L 2 0 2 2
Rýnir í ágæti
íslenska málsins
Geta unnið fríar
Evrópureisur
Tímamót ➤ 14 Lífið ➤ 22
Laugavegi 174, 105 Rvk. www.hekla.is
Allt fyrir barnið
Bílstólar og sessur, brúsar,
sparkbílar og margt fleira Barnabílstóll Junior*
15-36 kg, svartur, Isofix festingar
Verð 23.900 kr.
Barnakerru- & bílstólaþrenna*
Burðarrúm/vagnstykki,skiptitaska o.fl.
Verð 98.990 kr.
Barnabílstóll Junior*
0-36 kg, grár, King - Isofix festingar
Verð 38.900 kr.
Sparkbíll Audi Junior
quattro, rauður
Verð 22.990 kr.
*Allir bílstólar og sessur uppfylla ESB staðal ECE R44/04 um öryggi.
Mikil óánægja er innan
Vinstri grænna með útboðið
í Íslandsbanka. Reiknað er
með að forsætisráðherra svari
spurningum fjölmiðla í dag.
elinhirst@frettabladid.is
STJÓRNMÁL Beðið er eftir því hvaða
skref Katrín Jakobsdóttir forsætis-
ráðherra tekur næst til að reyna
að lægja öldurnar, bæði innan VG
og í samfélaginu, vegna sölunnar í
Íslandsbanka. Katrín hefur verið í
útlöndum í fríi undanfarna daga.
Að sögn Hennýar Hinz, aðstoðar-
manns Katrínar, mun forsætisráð-
herra ætla að tjá sig um framhald
málsins við fjölmiðla í dag. Fólk í
lykilstöðum innan VG sem rætt var
við í gær vill ekki tjá sig um málið
en bíður eftir útspili Katrínar. Bjarni
Jónsson, þingmaður VG, hefur gagn-
rýnt framkvæmd útboðsins og
krafist afsagnar stjórnar og forstjóra
Bankasýslunnar.
Mótmælt var á Austurvelli á
föstudaginn langa á vegum nokk-
urra ungliðahreyfinga að frum-
kvæði Sósíalistaf lokksins. Þar á
meðal voru ungir Píratar.
Halldóra Mogensen, formaður
þingf lokks Pírata, segir algerlega
óáættanlegt að Íslandsbankamálið
fari til Ríkisendurskoðunar, eins og
stjórnarmeirihlutinn hefur ákveðið,
en ekki til sérstakrar rannsóknar-
nefndar. Ríkisendurskoðun hafi
ekki heimildir til að rannsaka svo
alvarlegt mál ofan í kjölinn. Ríkis-
endurskoðun hóf úttekt fyrir helgi.
Halldóra segir að þeir sem gæfu
skýrslu fyrir sérstakri rannsóknar-
nefnd mundu njóta meiri friðhelgi
frá hugsanlegri sakamálarannsókn.
„ R í k i s e n d u r s k o ð u n g e t u r
ekki skikkað menn til að koma í
skýrslutöku en það gæti sérstök
rannsóknarnefnd gert, eins og í
bankahruninu. Því mun úttekt
Ríkis endurskoðunar aldrei geta
tengt saman alla þá þræði sem
nauðsynlegt er í þessu máli. Það
er ekki nóg að tala við ráðherra og
Bankasýsluna, það þarf að upplýsa
um alla milliliðina sem komu að
þessu máli,“ segir Halldóra.
Þá kveðst Halldóra telja skipta
miklu máli að Bjarni Benediktsson
fjármálaráðherra sé að kalla eftir
rannsókn á eigin forsendum. Sér-
stök rannsóknarnefnd á vegum
Alþingis sé allt annað mál.
„Þá hef ég einnig áhyggjur af því
að það er enginn ríkisendurskoð-
andi starfandi,“ segir Halldóra.
Eins og fram hefur komið í frétt-
um hefur Skúli Eggert Þórðarson
ríkisendurskoðandi verið skipaður
í embætti ráðuneytisstjóra menn-
ingar- og viðskiptaráðuneytis. n
Vinstri græn bíða nú útspils Katrínar
Mun úttekt Ríkisend-
urskoðunar aldrei geta
tengt saman alla þá
þræði sem nauðsyn-
legt er í þessu máli.
Halldóra Mogesen, formaður
þingflokks Pírata
Íslandsmót karla í knattspyrnu hófst í gær þegar ríkjandi Íslandsmeistarar Víkings tóku á móti FH í Víkinni. Mótið hefst fyrr en nokkru sinni enda búið að fjölga leikjum og lengja það. Íslandsmeistar-
arnir fengu martraðarbyrjun þegar FH-ingar komust yfir eftir þrjátíu sekúndna leik en Víkingar svöruðu um hæl með tveimur mörkum og lönduðu sigrinum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
NÁTTÚRUVÁ Hlýrra veðurfar er
meðal þeirra þátta sem gera það að
verkum að meiri hætta er á gróður-
eldum en á árum áður. Eldri sumar-
húsabyggðir þar sem áður voru móar
eru nú þéttgrónar og fátt um flótta-
leiðir.
Apríl- og maímánuðir eru hættu-
legasti tími ársins þegar kemur að
gróðureldum og eykst hættan eftir
því sem þurrkar vara lengur. „Einn-
ig skiptir aldur skóga og jarðvegur
máli, ungir skógar eru eldfimari en
gamlir og þar sem grunnur jarð-
vegur er fyrir hendi er meiri hætta á
þurrki,“ segir Dóra Hjálmarsdóttir, í
samstarfshópi almannavarna, Skóg-
ræktarinnar og fleiri opinberra aðila
og félaga um varnir gegn gróður-
eldum. SJÁ SÍÐU 6
Aukin hætta á
gróðureldum