Fréttablaðið - 19.04.2022, Blaðsíða 26
Sjö ævintýri um
skömm er sannkallað
karnival og vinnur
leikstjórinn Stefán
Jónsson mikið afrek.
80’s
í
fókus
LEIKHÚS
Sjö ævintýri um skömm
eftir Tyrfing Tyrfingsson
Leikstjórn: Stefán Jónsson
Leikarar: Edda Arnljótsdóttir,
Elva Ósk Ólafsdóttir, Eggert
Þorleifsson, Hilmir Snær
Guðnason, Ilmur Kristjánsdóttir,
Kristbjörg Kjeld, Kristín Þóra
Haraldsdóttir, Ólafía Hrönn
Jónsdóttir, Steinunn Ólína
Þorsteinsdóttir, Vincent Kári van
der Valk.
Leikmynd: Börkur Jónsson
Búningar: Þórunn Elísabet
Sveinsdóttir
Tónlist: Gísli Galdur Þorgeirsson
Sviðshreyfingar: Sveinbjörg
Þórhallsdóttir
Lýsing: Halldór Örn Óskarsson
Hljóðhönnun: Kristján
Sigmundur Einarsson, Gísli Galdur
Þorgeirsson
Myndbandsgerð: Signý Rós
Ólafsdóttir
Þorvaldur S. Helgason
Það var galsi í lofti er Tyrfingur
Tyrfingsson frumsýndi nýjasta
leikrit sitt, Sjö ævintýri um skömm, í
Þjóðleikhúsinu 1. apríl síðastliðinn.
Tyrfingur er fyrir löngu búinn að
stimpla sig inn í menningarvitund-
ina sem eins konar enfant terrible
íslenskra sviðslista og því engin
furða að spenna ríkti fyrir nýjasta
verki hans, því fyrsta sem sýnt er í
Þjóðleikhúsinu og því fyrsta eftir að
leikhúsinu tókst loksins að skríða út
úr pestarbæli Covid-áranna.
Tjaldið var dregið frá á klassíska
mynd úr sálfræðileikhúsinu: Tauga-
veiklaður sjúklingur, Ólafía Hrönn
Jónsdóttir, situr á móti föðurlegum
geðlækni, Hilmi Snæ Guðnasyni.
Þó varð fljótt ljóst að hér er ekki um
hefðbundið stofudrama að ræða.
Upphófst atburðarás sem var
eins og blanda af nútíma revíu og
dæmisögu fyrir hina trufluðu 21.
öld, eitthvað sem hefði aðeins getað
sprottið upp úr huga Tyrfings Tyrf-
ingssonar. Rammafrásögn verksins
á sér stað á skrifstofu áðurnefnds
geðlæknis sem lögreglukonan Agla
reynir að neyða til að skrifa upp á
sterkustu fáanlegu verkjalyf fyrir
sig, því hún vill heldur falla í þriggja
daga langan lyfjasvefn heldur en
takast á við molnandi tilfinningalíf
sitt.
Ólík leikhúsform
Geðlæknirinn vill ekki verða við
ósk Öglu en hann sér þó tækifæri í
þessari brotnu konu og býðst til að
hjálpa henni með nýstárlegri sál-
greiningaraðferð sinni sem byggist
á þeirri kenningu að að baki öllum
andlegum veikindum liggi sjö
ævintýri um skömm. Agla byrjar
því að rekja sig í gegnum áfallasögu
sína í þeirri von að geðlæknirinn
geti fundið lykilinn að veikindum
hennar.
Hvert og eitt ævintýri er eins og
sérstakur einþáttungur og í sviðs-
setningunni má sjá tilvísanir í
margs konar ólík leikhúsform á
borð við farsa, söngleik, natúral-
isma, og jafnvel brúðuleikhús. Hér
fær leikmynd Barkar Jónssonar,
búningar Þórunnar Elísabetar og
tónlist Gísla Galdurs virkilega að
njóta sín og er sviðsetningin algjör
veisla fyrir skilningarvitin. Sjö
ævintýri um skömm er sannkallað
karnival og vinnur leikstjórinn
Stefán Jónsson mikið afrek, að ná
að hnýta svo óreiðukennt stórvirki
saman í eina samhangandi heild.
Frábærir leikarar
Leikararnir standa sig allir frábær-
lega í stykkinu, hlutverk hins drykk-
fellda geðlæknis er eins og skrifað
fyrir Hilmi Snæ og Ilmur Kristjáns-
dóttir sýnir á sér nýjar hliðar sem
hin ofbeldisfulla og andlega óstöð-
uga lögreglukona Agla. Þetta er auð-
vitað ekki í fyrsta skipti sem Ilmur
leikur lögreglukonu en Agla er þó
gjörólík hinni yfirveguðu Hinriku
sem hún túlkaði í Ófærðarþáttun-
um; klassísk andhetja sem maður
vorkennir sökum aðstæðna og
uppeldis, en fyrirlítur fyrir ofbeld-
isfulla hegðun. Steinunn Ólína er
þrumugnýr sem Edda, hin harð-
brjósta móðir Öglu, sem er einnig
yfirmaður hennar í lögreglunni.
Hamhleypan Eggert Þorleifsson
bregður sér í nokkur hlutverk, fyrst
sem heimilislæknirinn Vilhjálmur
Briem sem kafnar við kynlífsathöfn
með Bónuspoka á höfðinu og síðar
sem Friðgeir, faðir Öglu, sem hefur
þá köllun í lífinu að skrifa handbók
um hægðir dýra.
K r istín Þóra Haraldsdóttir
stendur sig einnig vel sem kærasta
Öglu, yfirborðskennda uppgjafa-
leikkonan Hanna. Það er þó Ólafía
Hrönn sem stelur senunni sem sjálf-
skipaða kanamellan og verðandi
Hollywood-stjarnan amma Malla.
Svo frábær er hún í þessu hlutverki
að undirritaður myndi ekki slá
hendinni á móti því að sjá einleik
í kabarettstíl með ömmu Möllu,
sem er án efa einn skemmtilegasti
og eftirminnilegasti karakter sem
Tyrfingur hefur skrifað á sínum
ferli.
Kaldhæðni og gálgahúmor
Persónurnar eru allar hálf aumkun-
arverðar, fólk sem er svo brennt af
eigin áföllum að það á sér varla við-
reisnar von og tekur eigin sársauka
út á öðrum í kringum sig. Tyrfingur
er meistari þess að draga fram hinar
myrku hliðar mannlífsins án þess
að fórna skemmtanagildinu. Kald-
hæðni og gálgahúmor einkenna
verkið, en af því leiðir að erfitt er
að samsama sig persónunum og
ekki laust við að maður spyrji sig,
eins og geðlæknirinn gerir á einum
tímapunkti: „Hvernig tengist þetta
skömm?“ Því engin af persónunum
kann nefnilega að skammast sín.
Snerpa og sjónarspil verksins
dalaði örlítið eftir hlé en náði sér
þó á strik í magnaðri senu sem upp-
hefst þegar Agla fær ekki að mæta í
jarðarför ömmu Möllu, sem birtist
henni svo í eiturlyfjamóki ásamt
heilum englakór af kanamellum.
Endir verksins var þó nokkuð
snubbóttur miðað við epíkina
framan af og heldur kaldranalegur.
En kannski var ekki við öðru að
búast frá persónum sem kunna
ekki að skammast sín eða vinna úr
skömminni, en að þær kjósi heldur
að sópa tilfinningum sínum undir
teppið en að takast á við þær. ■
NIÐURSTAÐA: Magnað sjónarspil
sem einkennist af galsa og gálga-
húmor en heldur kaldranalegri af-
stöðu. Eitt af lykilverkum Tyrfings
Tyrfingssonar.
Fólk sem kann ekki að skammast sín
Leikararnir standa sig allir frábærlega, segir gagnrýnandinn. MYND/AÐSEND
kolbrunb@frettabladid.is
Fornbókabúðin Bókin og Fold upp-
boðshús boða til uppboðs á vefn-
um á bókum frá The Folio Society,
uppboðið stendur til 24. apríl næst-
komandi.
Á bókauppboðinu að þessu sinni
eru einstaklega vandaðar og glæsi-
legar bækur sem út hafa komið á
vegum ensku bókaútgáfunnar The
Folio Society. Folio útgáfan hefur
sérhæft sig í útgáfu á bókum í mjög
vönduðum búningi og í takmörk-
uðu upplagi. Hér er því um sann-
kallaðar viðhafnarútgáfur að ræða.
Mikið er vandað til í útgáfunni,
bæði hvað varðar bókband og
prentun sem er í hæsta gæða-
flokki. Einnig eru f lestar bækurnar
fallega myndskreyttar og mikið
lagt í tilkomumiklar bókakápur.
Bækurnar eru allar mjög vel með
farnar. Boðnar verða upp heims-
bókmenntir, sem og bækur um
sagnfræði og heimspeki. Bókverkin
eru úr stóru einkasafni og eru 105
verk á uppboðinu. Bækurnar eru til
sýnis í Fold uppboðshúsi allan upp-
boðstímann. ■
Bækur frá The Folio
Society á uppboði
Glæsilegar bækur eru á uppboðinu.
MYND/AÐSEND
kolbrunb@frettabladid.is
Sýningin Útjaðar stendur yfir í
Portfolio galleríi á Hverfisgötu en
þar sýnir Sigga Björg Sigurðardóttir
verk sín. Sýningin stendur til 7. maí.
Í hugleiðingum um sýninguna
segir Birta Guðjónsdóttir: „Verkin
eru unnin með bleki, vatnslit og
blýanti á pappír og eru þau afurð
vinnuferlis þar sem teikningin
er notuð til að kanna innri raun-
veruleika er birtist á útjaðri hins
mannlega veruleika. Auk þess má
á sýningunni sjá myndbandsverk
en Sigga Björg hefur lengi unnið
með hreyfimiðla og gjarnan sýnt
myndbandsverk með teikniverkum
sínum.
Útjaðar er formupplifun er býður
gestum að ganga inn í ýmsar víddir
veruleikans. Litasprengja sem
umvefur áhorfendur og er í senn
römmuð inn af formum sem birtast
okkur í samhverfu, hverfulleika og
hverfast um okkur. Við erum minnt
á það hvernig orkusvið mannslík-
amans getur breyst á sekúndubroti
og hér er orkulíkaminn nuddaður
á myndrænan hátt, svo áhrifanna
gætir áfram eftir sýningarheim-
sóknina.“ ■
Sigga Björg í Portfolio
Sigga Björg sýnir á Hverfisgötu. MYND/AÐSEND
18 Menning 19. apríl 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 19. apríl 2022 ÞRIÐJUDAGUR