Fréttablaðið - 19.04.2022, Blaðsíða 30
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Andrés Bertelsen andres@frettabladid.is, Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/
SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir
ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is,
TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
EXTRA
Barónsstígur • Keflavík • Akureyri
*Breytilegt úrval milli verslana
1599 kr.stk.
Delici Raspberry
Mousse 454g
GOTT UM PÁSKANA*
1699 kr.stk.
Ford Farm Cheddar
w/Caramelized Onions
1649kr.stk.
Ford Farm Dorset
Smoked Cheddar
Í fyrsta sinn geta íslensk
ungmenni tekið þátt í Dis-
coverEU-verkefninu, sem nú
er orðið hluti af Erasmus+. Í
DiscoverEU fær fólk á átjánda
aldursári tækifæri til að
ferðast um Evrópu þar sem
ferðakostnaður er innifalinn.
ninarichter@frettabladid.is
Fjörutíu og átta íslensk ungmenni
á 18. aldursári geta nú sótt um í
DiscoverEU-verkefninu. Að sögn
Miriam Petru Ómarsdóttur Awad,
verkefnastýru Eurodesk á Íslandi
hjá Rannsóknamiðstöð Íslands, er
hér um að ræða frumkvæðisverk-
efni sem snýst um að gefa ungu fólki
tækifæri til að ferðast um Evrópu og
nota umhverfisvænan ferðamáta.
Þau sem eru dregin út hljóta
Inter rail-lestarmiða sem gildir í 30
daga ferð, og hægt er að nota mið-
ann hvenær sem er á tólf mánaða
tímabili. Fyrir unga Íslendinga er
flugferð einnig hluti af pakkanum,
í ljósi þess að Ísland er eyja og engar
lestarsamgöngur á Íslandi.
Umburðarlyndi markmiðið
Markmið verkefnisins er að auka
menningartengsl og tengsl þvert á
lönd og stuðla að umburðarlyndi.
„Við viljum líka að fólk prófi að
ferðast á eigin vegum. Og hugmynd-
in er að allt ungt fólk hafi tækifæri
til að sjá heimsálfuna óháð stöðu
sinni í samfélaginu,“ segir Miriam
Petra. Verkefnið byggi á hugmynd
um óformlegt nám.
Til þess að eiga möguleika á miða
þarf fólk á 18. aldursári að sækja um,
svara fjórum krossaspurningum
og einni opinni spurningu og fara
nöfnin þá næst í pott. „Þegar þau eru
dregin út vinna þau Interrail-passa.
Þau geta ákveðið hvort þau vilja
nota hann á föstum dagsetningum
eða ekki. Þau geta sótt um eitt í einu
eða allt að fimm saman, en þá er ein
manneskja útnefnd hópstjóri,“ segir
Miriam Petra.
Foreldrarnir geta komið líka
Hægt er að sækja um sérstakan
stuðning vegna ferðarinnar. „Ef fólk
er með fötlun eða kvíðaröskun og
getur af einhverjum ástæðum ekki
ferðast eitt, getum við boðið því
upp á að vera með fylgdaraðila sem
ferðast með þeim. Þá haka þau við
það í umsókninni,“ segir Miriam
Petra.
„Við tökum þátt í Evrópuári unga
fólksins. Andleg heilsa ungs fólks
hefur liðið svo mikið fyrir heims-
faraldurinn og það er alls konar í
gangi til að vekja ungt fólk til að
vera virkir þátttakendur í samfélag-
inu,“ segir hún.
„Ég hvet fólk til að skoða þetta.
Það er ekkert því til fyrirstöðu að
fólk fari. Ef unglingurinn manns er
dreginn út geta foreldrarnir farið
líka. Þá sleppir fólk bara að borga
fyrir miðann sem það vann. Það er
ekkert sem bannar það,“ segir hún.
Hægt er að sækja um og nálgast
frekari upplýsingar á Eurodesk.is og
umsóknarfrestur rennur út þann 21.
apríl. n
Fjörutíu og átta unglingum
býðst að fara í Evrópureisu
Miriam Petra segir foreldrana líka geta skellt sér með í ferðina.
MYND/AÐSEND
Hugmyndin er að allt
ungt fólk hafi tækifæri
til að sjá heimsálfuna
óháð stöðu sinni í
samfélaginu.
ninarichter@frettabladid.is
Íslenska verðlauna-rafdúóið Ultra-
f lex sendi frá sér tónlistarmynd-
band á dögunum við lagið Baby.
Myndbandið er tekið upp fyrir utan
Kaíróborg í Egyptalandi á tónleika-
ferðalagi sveitarinnar á síðasta ári.
Ultraf lex mynda Katrín Helga
Andrésdóttir og Kari Jahnsen.
Fyrsta plata þeirra, Visions of Ultra-
f lex, kom út árið 2020 og sveitin
uppskar fyrir hana bæði Kraums-
verðlaunin og Íslensku tónlistar-
verðlaunin, fyrir plötu ársins í
f lokki raftónlistar.
Stöllurnar stofnuðu sveitina
skömmu fyrir heimsfaraldur.
Baby er önnur stuttskífa sveitar-
innar á þessu ári og í fréttatilkynn-
ingu er laginu lýst sem ljúfum en
grípandi ástarsöng. Texta lagsins
er lýst sem daðri á dansgólfinu þar
sem engu er að tapa, nema kannski
mannorðinu.
Myndbandið við Baby gerðu
Katrín Helga og Kari sjálfar, en Þor-
björn Kolbrúnarson og Felipe Mine
Calvo sáu um myndatöku. n
Upptökur frá Ultraflex í Egyptalandi
Katrín Helga Andrésdóttir og Kari Jahnsen mynda rafdúóið Ultraflex.
22 Lífið 19. apríl 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ