Fréttablaðið - 19.04.2022, Blaðsíða 14
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr
Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann
Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Heilsulindin Heilsa og útlit var
stofnuð árið 2014 og hefur alla
tíð sérhæft sig í meðferðum sem
bæta andlega og líkamlega vel-
líðan viðskiptavina sinna. Frá
upphafi hefur starfsfólk heilsu-
lindarinnar notað mikið tæki
frá heilsuvöruframleiðandanum
Weyergans, en það sérhæfir sig í
sogæðameðferðum, en sogæðar
eru hreinsunarkerfi líkamans, að
sögn Söndru Lárusdóttur, eiganda
Heilsu og útlits.
„Sogæðameðferðir eru sérstak-
lega góðar við hvers kyns bólgum,
þær virkja kerfið í okkur og fá
okkur til að líða betur. Vinsælustu
meðferðirnar hjá okkur eru súr-
efnishjálmurinn, sogæðastígvélin,
vacusport, vacumed ásamt fjöl-
mörgum andlits- og líkamsmeð-
ferðum.“
Infra-vörurnar hafa slegið í gegn
Infra-vörurnar frá Heilsu og útliti
hafa slegið í gegn enda auðveldar í
notkun heima fyrir eða á vinnu-
staðnum. Vörurnar eru ætlaðar
ólíkum líkamshlutum, til dæmis
hné, höndum, baki og öxlum
og lina verki með innrauðum
geislum. „Vörurnar okkar eru FDA
vottaðar sem er mikilvægt því þá
vitum við að gæðin eru góð og við-
urkennd. Fólk sem er að bíða eftir
aðgerðum á til dæmis hné eða öxl
og hefur keypt hjá okkur þessar
vörur er orðlaust hvað þetta hefur
hjálpað því mikið. Blóðflæðið
eykst og bólgur og bjúgur minnka.
Einnig eru infra-hendurnar alveg
æðislegar fyrir fólk sem er með
slæma gigt í höndum og sauma-
konur hafa fagnað þessu mikið. Ég
hvet alla til að kynna sér vörurnar
okkar.“
Flottasti infra-klefi landsins.
Í upphafi vetrar tók Heilsa og
útlit í notkun Redfit room sem er
meðal annars notað sem æfinga-
herbergi fyrir jóga, spinning, lyft-
ur og hugleiðslu. „Þetta er f lottasti
infra-klefi landsins. Þar er hægt
að fá nudd eða bara slappa af og
hreinsa hugann. Inni í klefanum
er sjónvarp og Bluetooth og því er
hægt að hlusta á sögu, tónlist eða
hafa einkaþjálfarann á skjánum.“
Heilsa og útlit er umboðsaðili
fyrir klefana hérlendis og í Noregi,
en þeir hafa slegið í gegn að sögn
Söndru.
Að hennar sögn er nóg að vera
í klefanum í 20-30 mínútur til
að finna áhrifin. „Fyrir vikið er
hann frábær lausn fyrir þau sem
eru á hraðferð en klefinn tekur
5-8 manns sitjandi eða tvö sem
liggja.“
Í hitaklefanum er svo kallað
Far Infrared, 16 litameðferðar-
ljós, Himalayan saltsteinar og
jade náttúrusteinar, en þeir eru
sambland af tveimur mismun-
andi náttúrulegum steinefnum,
annars vegar jadeite (natríum,
áli og kísli) og hins vegar nefrít
(kalsíum, magnesíum og kísli).
„Kristallarnir hjálpa náttúrulega
getu líkamans við að draga djúpt
andann og slaka á. Þegar rakastig
andrúmslofts er eðlilegt dregur
loftið að sér saltagnirnar sem
mýkja húðina og opna öndunar-
veginn. Saltið hjálpar einnig við
að opna ennis- og kinnholur og
stuðlar að hugarró.“
Sandra segir að notkun inn-
rauðra geisla við að auka kjarn-
hitastig líkamans hafi jákvæð
áhrif á heilsu og vellíðan fólks.
„Slík meðferð hefur auk þess
reynst íþróttamönnum vel til að
ná betri árangri, svokölluð hita-
meðferð.“
Að sögn Söndru
veitir infra-rauði klefinn:
n Róandi, vöðvaslakandi hugar-
ástand
n Brennir hitaeiningum
n Stuðlar að þyngdarmissi og
minnkun á ummáli
n Eykur blóðrás
n Eykur súrefnisupptöku
n Eykur brennslu
n Eykur hreyfigetu
n Eykur liðleika
n Er verkjalosandi
n Endurmótar líkamann
n Afeitrar
n Endurnærir húðina
n Framkallar afslöppun/veitir
hugarró
n Kemur jafnvægi á kortisólmagn
(kortisól er hormón sem
hjálpar fólki að slaka á streitu
og veitir jafnvægi)
n Stuðlar að andlegu jafnvægi
og ró
n Hjálpar við svefnleysi
n Veitir húðinni raka
n Hreinsar öndunarveginn
n Hjálpar árstíðabundnu
ofnæmi/frjókornaofnæmi
n Hefur góð áhrif sem meðferð
við berkjubólgu (sjá heimasíðu
Halotherapy fyrir frekari upp-
lýsingar)
Verndarhjúpur
gegnir miklu hlutverki
Verndarhjúparnir hafa slegið
í gegn að sögn Söndru, en þeir
hjálpa líkamanum að viðhalda
kjörþyngd meðan slakað er
á í gufunuddæfingatæki sem
umvefur fólk eins og verndar-
hjúpur. „Að mínu mati ættu þeir
að vera til staðar á öllum heilsu-
stofnunum enda gegna þeir mjög
mikilvægu og fjölþættu hlut-
verki. Þeir veita slökun, hita og
nudd, styrkja líka ónæmiskerfið,
bæta einnig svefninn og hreinsa
hugann. Við höfum bætt við
okkur f leiri slíkum tækjum í vetur
enda er mikil eftirsókn eftir þeim.
Núna eigum við eitt til sölu sem
heitir Alpha. Það er spurning hver
verður svo heppinn að næla sér
í hana, til dæmis einhver heilsu-
lind, spa, hótel, ljósastofa eða
sjúkraþjálfun.“
Spennandi verkefni
Eitt af mörgum spennandi
verkefnum fram undan að sögn
Söndru er að setja á fót tattú-
skóla. „Það er sérstaklega spenn-
andi verkefni. Ég er búin að læra
medical-tattú og var að bæta við
mig augabrúnum og vara-tattú
sem er mjög vinsælt. Finishing
touches hefur einnig gert samning
við mig um að setja upp skólann
fyrir þá sem vilja læra þetta, til
dæmis hjúkrunarfræðinga, förð-
unar- og snyrtifræðinga eða hvern
sem er sem hefur áhuga á slíku.
Áhugasamir aðilar geta sent mér
póst á sandra@heilsaogutlit.is.
Heilsa og útlit er einnig heild-
sala sem flytur inn vörumerki á
borð við Casmara, Weyergans og
Aroma, en þar má til dæmis finna
vinsæl verkjakrem og maxim
svitastopparann sem er svakalega
vinsæll. „Heildsalan fer stækk-
andi og er hægt að sjá allar vörur á
heimasíðunni okkar www.heilsa-
ogutlit.is og senda mér póst.“ n
Heilsa og útlit er í Hlíðasmára 17
í Kópavogi. Þeir sem vilja kynna
sér frekar meðferðir hjá Heilsu og
útliti geta haft samband í síma 562
6969 eða skoðað heimasíðuna,
heilsaogutlit.is.
Infra-vörurnar frá Heilsu og útliti hafa slegið í gegn. Þær eru ætlaðar ólíkum líkamshlutum, til dæmis hné, höndum, baki og öxlum og lina verki með innrauðum geislum.
Sandra Lárusdóttir vinnur hér með augnabrúnir viðskiptavinar.
Verndarhjúpurinn er mjög vinsæll og
býður upp á áhrifaríka hitameðferð.
Heilsa og útlit býður eingöngu upp á
viðurkennd heilsutæki.
Þetta er flottasti
infraklefi landsins.
Þar er hægt að fá nudd
eða bara slappa af og
hreinsa hugann.
Sandra Lárusdóttir
2 kynningarblað A L LT 19. apríl 2022 ÞRIÐJUDAGUR