Fréttablaðið - 19.04.2022, Blaðsíða 13
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
ÞRIÐJUDAGUR 19. apríl 2022
Kynslóðin sem er nýkomin á, eða er
á leið á eftirlaunaaldur hefur búið
við mikla neyslu og velsæld.
elin@frettabladid.is
Kynslóðin sem upplifði seinni
heimsstyrjöldina fór betur með
hluti og var varkárari í nýtingu
auðlinda en kynslóðin sem tók við.
Eftirstríðsárabörnin, svokallaða
„baby boomers“ kynslóðin sem nú
er orðin eldri borgarar, hefur allt
annað neyslumynstur en „þægu
kynslóðirnar“ þar á undan. Eldri
borgarar í dag eyða meiri peningum
í hús, orkunýtingu og mat.
Rannsókn sem gerð var við
NTNU, norska vísinda- og tækni-
háskólann, hefur kortlagt losun
gróðurhúsalofttegunda eftir aldri
fólks árin 2002, 2010 og 2015. Könn-
unin tók til 27 ESB-ríkja auk Noregs,
Bretlands, Bandaríkjanna, Ástralíu
og Japans.
Staðreyndin er að þeir sem nú eru
komnir á, eða eru að komast á eftir-
launaaldur eru ábyrgir fyrir auknum
hluta losunar í loftslagsmálum
í öllum 32 löndunum. Aldraðir í
Japan eru verstir en þeir standa fyrir
meira en helmingi loftslagslosunar.
Þurfa að minnka húsnæði
Bent er á að það gæti verið góður
kostur að byggja fleiri öldrunarvæna
íbúakjarna svo fólk minnki við sig
húsnæði. Stórir aldurshópar fæddir á
árunum 1950-1960 eru á leiðinni út af
vinnumarkaði.
Lífslíkur fólks munu tvöfaldast
fram til ársins 2050. Þetta er kynslóð
sem er alin upp við mikla neyslu og
þarf að huga betur að umhverfis-
vernd. Yngri aldurshópar hugsa
miklu frekar um loftslagsmál og
hafa dregið verulega úr losun sinni
á undanförnum árum. Þeir sem eru
yngri en 30 ára virðast vera dug-
legastir í verndun umhverfisins. n
Neyslukynslóðin
komin á efri ár
Í upphafi vetrar tók Heilsa og útlit í notkun Redfit room, sem er flottasti infra-klefi landsins, að sögn Söndru Lárusdóttur, eigenda Heilsu og útlits. Hann er
notaður sem æfingaherbergi fyrir jóga, spinning, lyftur, hugleiðslu og margt fleira. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Auka vellíðan og lífsgæði
Á undanförnum árum hefur heilsulindin Heilsa og útlit stóraukið vöru- og þjónustuframboð
sitt. Infra-vörurnar hafa slegið í gegn og þar er að finna flottasta infra-klefa landsins. 2
ALOE VERA
MELTING & BÓLGUR
85%VIRKTCURCUMIN
www.celsus.is