Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.04.2022, Qupperneq 26

Fréttablaðið - 19.04.2022, Qupperneq 26
Sjö ævintýri um skömm er sannkallað karnival og vinnur leikstjórinn Stefán Jónsson mikið afrek. 80’s í fókus LEIKHÚS Sjö ævintýri um skömm eftir Tyrfing Tyrfingsson Leikstjórn: Stefán Jónsson Leikarar: Edda Arnljótsdóttir, Elva Ósk Ólafsdóttir, Eggert Þorleifsson, Hilmir Snær Guðnason, Ilmur Kristjánsdóttir, Kristbjörg Kjeld, Kristín Þóra Haraldsdóttir, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Vincent Kári van der Valk. Leikmynd: Börkur Jónsson Búningar: Þórunn Elísabet Sveinsdóttir Tónlist: Gísli Galdur Þorgeirsson Sviðshreyfingar: Sveinbjörg Þórhallsdóttir Lýsing: Halldór Örn Óskarsson Hljóðhönnun: Kristján Sigmundur Einarsson, Gísli Galdur Þorgeirsson Myndbandsgerð: Signý Rós Ólafsdóttir Þorvaldur S. Helgason Það var galsi í lofti er Tyrfingur Tyrfingsson frumsýndi nýjasta leikrit sitt, Sjö ævintýri um skömm, í Þjóðleikhúsinu 1. apríl síðastliðinn. Tyrfingur er fyrir löngu búinn að stimpla sig inn í menningarvitund- ina sem eins konar enfant terrible íslenskra sviðslista og því engin furða að spenna ríkti fyrir nýjasta verki hans, því fyrsta sem sýnt er í Þjóðleikhúsinu og því fyrsta eftir að leikhúsinu tókst loksins að skríða út úr pestarbæli Covid-áranna. Tjaldið var dregið frá á klassíska mynd úr sálfræðileikhúsinu: Tauga- veiklaður sjúklingur, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, situr á móti föðurlegum geðlækni, Hilmi Snæ Guðnasyni. Þó varð fljótt ljóst að hér er ekki um hefðbundið stofudrama að ræða. Upphófst atburðarás sem var eins og blanda af nútíma revíu og dæmisögu fyrir hina trufluðu 21. öld, eitthvað sem hefði aðeins getað sprottið upp úr huga Tyrfings Tyrf- ingssonar. Rammafrásögn verksins á sér stað á skrifstofu áðurnefnds geðlæknis sem lögreglukonan Agla reynir að neyða til að skrifa upp á sterkustu fáanlegu verkjalyf fyrir sig, því hún vill heldur falla í þriggja daga langan lyfjasvefn heldur en takast á við molnandi tilfinningalíf sitt. Ólík leikhúsform Geðlæknirinn vill ekki verða við ósk Öglu en hann sér þó tækifæri í þessari brotnu konu og býðst til að hjálpa henni með nýstárlegri sál- greiningaraðferð sinni sem byggist á þeirri kenningu að að baki öllum andlegum veikindum liggi sjö ævintýri um skömm. Agla byrjar því að rekja sig í gegnum áfallasögu sína í þeirri von að geðlæknirinn geti fundið lykilinn að veikindum hennar. Hvert og eitt ævintýri er eins og sérstakur einþáttungur og í sviðs- setningunni má sjá tilvísanir í margs konar ólík leikhúsform á borð við farsa, söngleik, natúral- isma, og jafnvel brúðuleikhús. Hér fær leikmynd Barkar Jónssonar, búningar Þórunnar Elísabetar og tónlist Gísla Galdurs virkilega að njóta sín og er sviðsetningin algjör veisla fyrir skilningarvitin. Sjö ævintýri um skömm er sannkallað karnival og vinnur leikstjórinn Stefán Jónsson mikið afrek, að ná að hnýta svo óreiðukennt stórvirki saman í eina samhangandi heild. Frábærir leikarar Leikararnir standa sig allir frábær- lega í stykkinu, hlutverk hins drykk- fellda geðlæknis er eins og skrifað fyrir Hilmi Snæ og Ilmur Kristjáns- dóttir sýnir á sér nýjar hliðar sem hin ofbeldisfulla og andlega óstöð- uga lögreglukona Agla. Þetta er auð- vitað ekki í fyrsta skipti sem Ilmur leikur lögreglukonu en Agla er þó gjörólík hinni yfirveguðu Hinriku sem hún túlkaði í Ófærðarþáttun- um; klassísk andhetja sem maður vorkennir sökum aðstæðna og uppeldis, en fyrirlítur fyrir ofbeld- isfulla hegðun. Steinunn Ólína er þrumugnýr sem Edda, hin harð- brjósta móðir Öglu, sem er einnig yfirmaður hennar í lögreglunni. Hamhleypan Eggert Þorleifsson bregður sér í nokkur hlutverk, fyrst sem heimilislæknirinn Vilhjálmur Briem sem kafnar við kynlífsathöfn með Bónuspoka á höfðinu og síðar sem Friðgeir, faðir Öglu, sem hefur þá köllun í lífinu að skrifa handbók um hægðir dýra. K r istín Þóra Haraldsdóttir stendur sig einnig vel sem kærasta Öglu, yfirborðskennda uppgjafa- leikkonan Hanna. Það er þó Ólafía Hrönn sem stelur senunni sem sjálf- skipaða kanamellan og verðandi Hollywood-stjarnan amma Malla. Svo frábær er hún í þessu hlutverki að undirritaður myndi ekki slá hendinni á móti því að sjá einleik í kabarettstíl með ömmu Möllu, sem er án efa einn skemmtilegasti og eftirminnilegasti karakter sem Tyrfingur hefur skrifað á sínum ferli. Kaldhæðni og gálgahúmor Persónurnar eru allar hálf aumkun- arverðar, fólk sem er svo brennt af eigin áföllum að það á sér varla við- reisnar von og tekur eigin sársauka út á öðrum í kringum sig. Tyrfingur er meistari þess að draga fram hinar myrku hliðar mannlífsins án þess að fórna skemmtanagildinu. Kald- hæðni og gálgahúmor einkenna verkið, en af því leiðir að erfitt er að samsama sig persónunum og ekki laust við að maður spyrji sig, eins og geðlæknirinn gerir á einum tímapunkti: „Hvernig tengist þetta skömm?“ Því engin af persónunum kann nefnilega að skammast sín. Snerpa og sjónarspil verksins dalaði örlítið eftir hlé en náði sér þó á strik í magnaðri senu sem upp- hefst þegar Agla fær ekki að mæta í jarðarför ömmu Möllu, sem birtist henni svo í eiturlyfjamóki ásamt heilum englakór af kanamellum. Endir verksins var þó nokkuð snubbóttur miðað við epíkina framan af og heldur kaldranalegur. En kannski var ekki við öðru að búast frá persónum sem kunna ekki að skammast sín eða vinna úr skömminni, en að þær kjósi heldur að sópa tilfinningum sínum undir teppið en að takast á við þær. ■ NIÐURSTAÐA: Magnað sjónarspil sem einkennist af galsa og gálga- húmor en heldur kaldranalegri af- stöðu. Eitt af lykilverkum Tyrfings Tyrfingssonar. Fólk sem kann ekki að skammast sín Leikararnir standa sig allir frábærlega, segir gagnrýnandinn. MYND/AÐSEND kolbrunb@frettabladid.is Fornbókabúðin Bókin og Fold upp- boðshús boða til uppboðs á vefn- um á bókum frá The Folio Society, uppboðið stendur til 24. apríl næst- komandi. Á bókauppboðinu að þessu sinni eru einstaklega vandaðar og glæsi- legar bækur sem út hafa komið á vegum ensku bókaútgáfunnar The Folio Society. Folio útgáfan hefur sérhæft sig í útgáfu á bókum í mjög vönduðum búningi og í takmörk- uðu upplagi. Hér er því um sann- kallaðar viðhafnarútgáfur að ræða. Mikið er vandað til í útgáfunni, bæði hvað varðar bókband og prentun sem er í hæsta gæða- flokki. Einnig eru f lestar bækurnar fallega myndskreyttar og mikið lagt í tilkomumiklar bókakápur. Bækurnar eru allar mjög vel með farnar. Boðnar verða upp heims- bókmenntir, sem og bækur um sagnfræði og heimspeki. Bókverkin eru úr stóru einkasafni og eru 105 verk á uppboðinu. Bækurnar eru til sýnis í Fold uppboðshúsi allan upp- boðstímann. ■ Bækur frá The Folio Society á uppboði Glæsilegar bækur eru á uppboðinu. MYND/AÐSEND kolbrunb@frettabladid.is Sýningin Útjaðar stendur yfir í Portfolio galleríi á Hverfisgötu en þar sýnir Sigga Björg Sigurðardóttir verk sín. Sýningin stendur til 7. maí. Í hugleiðingum um sýninguna segir Birta Guðjónsdóttir: „Verkin eru unnin með bleki, vatnslit og blýanti á pappír og eru þau afurð vinnuferlis þar sem teikningin er notuð til að kanna innri raun- veruleika er birtist á útjaðri hins mannlega veruleika. Auk þess má á sýningunni sjá myndbandsverk en Sigga Björg hefur lengi unnið með hreyfimiðla og gjarnan sýnt myndbandsverk með teikniverkum sínum. Útjaðar er formupplifun er býður gestum að ganga inn í ýmsar víddir veruleikans. Litasprengja sem umvefur áhorfendur og er í senn römmuð inn af formum sem birtast okkur í samhverfu, hverfulleika og hverfast um okkur. Við erum minnt á það hvernig orkusvið mannslík- amans getur breyst á sekúndubroti og hér er orkulíkaminn nuddaður á myndrænan hátt, svo áhrifanna gætir áfram eftir sýningarheim- sóknina.“ ■ Sigga Björg í Portfolio Sigga Björg sýnir á Hverfisgötu. MYND/AÐSEND 18 Menning 19. apríl 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 19. apríl 2022 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.