Fréttablaðið - 19.04.2022, Síða 15

Fréttablaðið - 19.04.2022, Síða 15
FASTEIGNIR.FRETTABLADID.IS Fasteignablaðið 16. TBL. 19. APRÍL 2022 Fold fasteignasala kynnir: Fjögurra herbergja endaíbúð á annarri hæð í Hlynsölum í Kópavogi ásamt stæði í bílageymslu. Íbúðin hefur yfirbyggðar svalir og mikið útsýni og er á besta stað í Salahverfinu, þar sem stutt er í margvíslega þjónustu. Um er að ræða íbúð 201 í Hlynsöl- um 5-7, 201 Kópavogi, sem hefur tvo sameiginlega innganga, ásamt lyftu og sérinngangi af svölum og stæði í bílageymslu (B-7). Þetta er fjögurra herbergja endaíbúð á annarri hæð sem hefur glugga á þrjá vegu og er 119,3 fm, en íbúðin sjálf er 109,8 fm og geymslan 9,3 fm. Í húsinu eru 24 íbúðir og það er staðsett innst í botnlanga á besta stað í Salahverfi, þar sem stutt er í alls kyns þjónustu. Það er hiti í plani, svalir eru yfirbyggðar og útsýnið er mikið. Það er parket og f lísar á gólfum, þvottahús með hillum og vaski í vinnuborði innan íbúðar og baðherbergið var gert upp síðasta haust. Það er líka búið að samþykkja að setja upp tengi fyrir rafmagnsbíla í bílskýli. Þegar inn er komið tekur við rúmgóð forstofa með glugga, með fataskáp og skóskáp. Í íbúð- inni eru þrjú svefnherbergi og í tveimur þeirra eru fataskápar. Stofa, borðstofa og eldhús renna saman í opnu rými og innrétt- ingin er falleg og búin góðum tækjum. Baðherbergið er glæsilegt og þar er sturta og glerveggur, innrétting, handklæðaofn og upp- hengt salerni. Íbúðin er falleg og björt með gott innra skipulag og stiga- gangurinn er líka snyrtilegur og nýuppgerður. Á jarðhæðinni er svo sameiginleg vagna- og hjóla- geymsla ásamt sérgeymslu. n Nánari upplýsingar gefur Gústaf Adolf Björnsson lgf., gustaf@fold. is / 895-7205. Fold fasteignasala er líka á Facebook og heimasíðan er www.fold.is. Björt og falleg íbúð í Salahverfi Í húsinu eru 24 íbúðir og það er staðsett innst í botnlanga á besta stað í Salahverfi, þar sem stutt er í alls kyns þjónustu. Stofan, borðstofan og eldhúsið renna saman í bjart og fallegt opið rými. Finnbogi Hilmarsson löggiltur fasteignasali. Grensásvegur 3 • 2 hæð • 108 Reykjavík • Sími 530 6500 • heimili@heimili.is • heimili.is Ráðgjöf varðandi húsnæðisskipti, erfðaskrá, kaupmála eða dánarbúskipti. Lögmaður þér við hlið við sölu fasteignar án þess að greiða aukalega fyrir þá þjónustu. BÚUM VEL veitir nýja tegund þjónustu. Kynntu þér málið. Elín Sigrún Jónsdóttir, lögmaður | Tryggvagötu 11, 2. hæð Sími 783 8600 | elin@buumvel.is | www.buumvel.is Sérhæfð lögfræðiþjónusta með áherslu á 60+ Þátttakandi í íslensku atvinnulífi í 50 ár hagvangur.is

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.