Fréttablaðið - 21.04.2022, Blaðsíða 1
7 7 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s F I M M T U D A G U R 2 1 . A P R Í L 2 0 2 2
Svíar hrífast
af Önnu Grétu
Dýnamíkin í
Gusgus á filmu
Menning ➤ 24 Lífið ➤ 26
Sigraðu
sumarið
Opið á
sumardaginn fyrsta
Gleðilegt
sumar!OPIÐ Í DAG
Sumardaginn fyrsta!
Ertu ánæg(ð)(ur)(t) með
ákvörðun Sólveigar Önnu
Jónsdóttur að segja upp
starfsfólki Eflingar?
n Ánæg(ð)(ur)(t)
nHvorki né
n Óánæg(ð)(ur)(t)
67%
17%
16%
Nærri tveir þriðju félags-
manna Eflingar eru óánægðir
með uppsagnir skrifstofu-
fólksins. Eldra og tekjulægra
fólk líklegra til að styðja þær.
kristinnhaukur@frettabladid.is
VINNUMARKAÐUR 27 prósent fólks í
Eflingu styðja uppsagnir starfsfólks
skrifstofunnar 11. apríl síðastliðinn.
64 prósent eru óánægð með þær.
Þetta kemur fram í nýrri könnun
sem Prósent gerði fyrir Fréttablaðið.
Uppsagnirnar hafa valdið gríðar-
legri ólgu innan verkalýðshreyfing-
arinnar. Hefur ákvörðun Sólveigar
Önnu Jónsdóttur, nýendurkjörins
formanns, og stjórnar Ef lingar,
verið gagnrýnd af Drífu Snædal, for-
seta Alþýðusambandsins, Vilhjálmi
Birgissyni, formanni Starfsgreina-
sambandsins, og fleirum.
Alls eru 67 prósent landsmanna
óánægð með uppsagnirnar, þar af
55 prósent mjög óánægð. 17 prósent
eru ánægð og þar af tæplega 10 pró-
sent mjög ánægð. 16 prósent tóku
ekki afstöðu.
Töluverður munur er á svörum
eftir stjórnmálaskoðunum. Mestur
er stuðningurinn innan raða Sósíal-
istaflokksins, 59 prósent, en Sólveig
Anna hefur setið á lista f lokksins í
tvennum kosningum.
Meirihluti stuðningsfólks Flokks
fólksins styður einnig uppsagnirnar,
52 prósent, og 38 prósent Mið-
flokksmanna, á meðan 54 prósent
eru á móti.
Öllu minni stuðningur finnst í
öðrum flokkum. 18 prósent Sam-
fylkingarfólks styðja uppsagnirnar,
15 prósent Pírata, 10 prósent Vinstri
grænna og 8 prósent Sjálfstæðis-
manna og Framsóknarmanna.
Minnstur er stuðningurinn meðal
stuðningsfólks Viðreisnar, aðeins
tæp 4 prósent.
Nánast enginn munur er á svör-
um eftir kynjum en heldur meiri
andstaða er á höfuðborgarsvæðinu
en á landsbyggðinni, 71 prósent á
móti 60. Eldra fólk er ánægðara en
það yngra, á meðal 25 til 34 ára er
hann aðeins 7 prósent en 30 hjá 65
ára og eldri.
23 prósent þeirra sem hafa undir
400 þúsund krónur í mánaðartekjur
eru ánægð með uppsagnirnar en á
bilinu 11 til 12 prósent þeirra sem
hafa yfir 600 þúsund krónur. Sömu
línur má sjá hjá þeim sem eru aðeins
með grunnskólapróf og þeim sem
hafa háskólapróf, en svör iðnmennt-
aðra eru blandaðri.
Þó að stuðningur Eflingarfólks sé
aðeins 27 prósent, er það þó hærra
en hjá öðrum stéttarfélögum. 15
prósent fólks í VR styðja uppsagn-
irnar og 14 prósent þeirra sem eru í
öðrum félögum.
Könnunin var netkönnun, gerð
13. til 19. apríl. Úrtakið var 2.150 ein-
staklingar, 18 ára og eldri, og svar-
hlutfallið 50,3 prósent. ■
Fjórðungur Eflingarfólks styður uppsagnirnar
Gleðilegt sumar
„Sumarið heilsar með blíðu, ekki síst norðan heiða,” segir Haraldur Ólafsson veðurfræðingur sem er bjartsýnn, líkt og Páll Bergþórsson og Siggi stormur. SJÁ SÍÐU 2. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI