Fréttablaðið - 21.04.2022, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 21.04.2022, Blaðsíða 6
Það sem fólki blöskrar er að sjá handvalda einstaklinga. Fyrir það þarf Bankasýslan að svara. Jódís Skúladóttir, þingkona VG Leit hófst að flug- vélinni TF-ABB er hún skilaði sér ekki úr útsýnisflugi 3. febrúar síðastliðinn. ÞAÐ ÞARF EKKI AÐ NEGLA NIÐUR TÍMA Í DEKKJASKIPTI Renndu við Skútuvogur 2, Reykjavík Fitjabraut 12, Njarðvík Smiðjuvegur 34, Kópavogur Hjallahraun 4, Hafnarfjörður kristinnhaukur@frettabladid.is VIÐSKIPTI Virði hlutabréfa í banda- rísku verslunarkeðjunni Costco hefur vaxið um rúm 582 prósent frá árinu 2012, samkvæmt greiningar- fyrirtækinu Zacks. Keðjan rekur 829 verslanir, þar af eina í Kauptúni, ásamt bensínstöð. Íslenska verslunin var opnuð í maí árið 2017 og um tíma voru um 70 prósent landsmanna í áskrift hjá henni. Veltan hefur lækkað umtals- vert síðan við opnun en verslunin fór að skila hagnaði árið 2019, um 208 milljónum og 463 milljónum árið 2020. Í greiningu Zacks kemur fram að 98 prósent innkomu Costco komi frá sölu á varningi en 2 prósent frá sölu áskrifta. Verð á áskriftum hefur verið óbreytt frá opnun, 4.800 krónur. n Costco sexfaldast í virði á tíu árum Íslenska verslunin skilaði 463 millj- óna króna hagnaði árið 2020. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR ragnarjon@frettabladid.is FRAKKLAND Nokkur dauðsföll í Frakklandi, fyrr á þessu ári, hafa verið rakin til E. Coli-smitaðra mat- væla framleiddra af Nestlé. Þetta hefur verið staðfest af frönskum yfirvöldum og hafa yfir 40 einstaklingar leitað réttar síns. Meðal látinna er tólf ára drengur í París og nýfætt barn sem lést aðeins klukkustundum eftir fæðingu. Umrædd matvæli frá Nestlé hafa ekki verið flutt til Íslands, að því er fram kemur í svari Matvælastofnun- ar við fyrirspurn Fréttablaðsins. Því hafi ekki verið ástæða til viðbragða af hálfu stofnunarinnar. n Sýktar pizzur ekki til Íslands bth@frettabladid.is STJÓRNMÁL Jódís Skúladóttir, þingkona VG, segir ekki skrýtið að aðeins eitt prósent stuðningsmanna Vinstri grænna séu ánægðir með lokað útboð Íslandsbanka eins og fram kom í könnun Fréttablaðsins. „Augljóslega er þarna eitthvað sem hefur ekki farið vel. Okkar upp- lifun er að það var talað um að þessi leið væri betri en aðrar til að ná í stóra langtíma kjölfestufjárfesta. Svo þegar listinn er birtur kemur annað á daginn,“ segir Jódís. Fulltrúar frá Bankasýslunni, sem lögð verður niður samkvæmt yfir- lýsingu úr stjórnarráðinu, mæta á teppið hjá efnahags- og viðskipta- nefnd Alþingis næsta mánudag. „Það sem fólki blöskrar er að sjá handvalda einstaklinga. Fyrir það þarf Bankasýslan að svara,“ segir Jódís. Baldur Þórhallsson, stjórnmála- fræðingur, telur athyglisvert hve þétt Katrín Jakobsdóttir forsætis- ráðherra, standi við hlið Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra. Á sama tíma fellur fylgi VG. „Af því að spjótin standa stans- laust á Katrínu þá langar mig að benda á að hvergi hefur komið fram að Katrín hafi farið óvarlega, hún hefur engin vafasöm ummæli látið falla, hún hefur ekki setið í veislum sem hún átti ekki að vera í,“ segir Jódís. „Katrín er hins vegar forsætis- ráðherra að halda saman ríkisstjórn þar sem okkar stefna er stór stefna af stjórnarsáttmálanum svo sem í umhverfis- og velferðarmálum. Hún þarf að standa með því og það verður að taka með í reikninginn,“ segir Jódís. n Bankasýslan kölluð á teppið á Alþingi eftir helgi Rúnar Steingrímsson hjá löreglunni á Suðurlandi segir hættulegast við björgun flaks flugvélarinnar TF-ABB af botni Þingvallavatns á morgun, verða köfun niður á nær fimmtíu metra dýpi. bth@frettabladid.is FLUGSLYS TF-ABB, f lugvélin sem fórst með fjórum mönnum í Þing- vallavatni, verður hífð upp úr Þing- vallavatni á föstudag, eftir tvo daga. Fjórir létust í slysinu, 3. febrúar síð- astliðinn. Um borð í vélinni voru f lug- maðurinn Haraldur Diego, ásamt þremur erlendum mönnum frá Bandaríkjunum, Belgíu og Hollandi. Leit að mönnunum og vélinni er ein sú umfangsmesta seinni ár og vakti mikla athygli þegar tókst að koma líkunum á land við erfiðar aðstæð- ur, viku eftir slysið. Rúnar Steingrímsson hjá lög- reglunni á Suðurlandi segir um að ræða flókið verkefni. Um 55 menn muni koma að framkvæmdinni. Þar má nefna lögreglu, kafara, sérsveitir, rannsóknaraðila, björgunarsveitir og einkaaðila sem láta í té ýmsan sérhæfðan tæknibúnað. Aðgerðin snýst í einfölduðu máli um að koma á f lot björgunartæki yfir f lugvélarflakinu, kafa niður að flakinu, festa taug við flakið, draga það upp, lyfta því upp úr vatninu og f lytja í skýli Rannsóknarnefndar samgönguslysa. Áskorun verður að sögn Rúnars bjarga öllum rafeinda- búnaði úr vélinni. Rúnar segir að myndir úr sjávar- dróna sem sendur var niður í vatnið nýverið bendi til að flugvélarflakið hafi komið vel undan ísnum. Flakið er rúmt tonn að þyngd. Bætist við þyngdina þar sem vélin verður full af vatni þegar hún verður dregin upp. „Hættulegast við þessa aðgerð er að senda kafara niður á tæplega 50 metra dýpi. Við vonum að það gangi vel. Snúnast er sennilega að koma flakinu upp úr vatninu,“ segir Rúnar. Rannsók nar nef nd f lugslysa hefur slysið til rannsóknar. Helsta spurningin sem leitað er svara við er hvers vegna TF-ABB fór í vatnið með þessum ömurlegu afleiðingum. Mikil leit var gerð að TF-ABB er f lugvélin skilaði sér ekki úr útsýn- isf lugi austur fyrir fjall. Böndin bárust f ljótlega að svæðinu sunnan Þingvallvatns og vestan Úlf ljóts- vatns. Morguninn eftir hvarf vélarinnar beindist leitin hins vegar sérstak- lega að suðurhluta Þingvallavatns í samræmi við upplýsingar úr síma Bandaríkjamannsins um borð. Flakið fannst á botni Ölfusvatns- víkur en lík f jórmenninganna reyndust þá ekki vera um borð. Þau fundust hins vegar í vatninu skammt undan flakinu og var bjarg- að í land viku eftir slysið.n Hættulegt að senda kafara á fimmtíu metra dýpi Frá slysstað. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Bið eftir björgun flugvélarflaks- ins í Þingvalla- vatni er að ljúka en vélin lá undir ís um nokkurt skeið. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK 6 Fréttir 21. apríl 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.