Fréttablaðið - 21.04.2022, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 21.04.2022, Blaðsíða 16
Það var ákveðin andstaða við að fjölgyðistrú yrði leyfð á Íslandi. Elskuleg sambýliskona, móðir okkar og tengdamóðir, Vilborg Valdimarsdóttir varð bráðkvödd þann 7. apríl. Útför hennar fer fram í Melstaðarkirkju 29. apríl kl. 14.00. Einar Magni Sigmundsson Atli Már Einarsson Helga Kristín Björgólfsdóttir Aðalheiður Einarsdóttir Bjarni Másson barnabörn. Ástkæra móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Valborg Sveinsdóttir meinatæknir, Hlíðargerði 3, lést á Borgarspítalanum 20. apríl. Útför verður auglýst síðar. Frosti Bergmann Eiðsson Sólveig Haraldsdóttir Logi Bergmann Eiðsson Svanhildur Hólm Valsdóttir Hjalti Bergmann Eiðsson Sindri Bergmann Eiðsson Elfa Björk Eiríksdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Skúli Sigurgeirsson áður til heimilis að Lindasíðu 4, Akureyri, lést á hjúkrunarheimilinu Lögmannshlíð þann 14. apríl. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 25. apríl kl. 13. Margrét Skúladóttir Sigurður Bjarklind Svanhildur Skúladóttir Einar Ólafsson Ragnheiður Skúladóttir Árni V. Kristjánsson barnabörn og langafabörn. Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Astrid Sigrún Kaaber sjúkraliði, lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni föstudaginn 15. apríl. Útförin fer fram þriðjudaginn 3. maí kl. 13 frá Breiðholtskirkju. Sérstakar þakkir fær starfsfólk 2C í Sóltúni fyrir einstaka umönnun og hlýju. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á hjálparsamtök. Magnús Björn Björnsson Guðrún Dóra Guðmannsdóttir Ragnar Hallgr. Björnsson Sigrún Birna Björnsdóttir Agnar Benónýsson barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar og amma, Kristín Eiríka Gísladóttir Markarflöt 10, andaðist mánudaginn 11. apríl. Útförin fer fram frá Víðistaðakirkju fimmtudaginn 28. apríl kl. 13. Streymt verður frá útförinni á streyma.is Brynja Hrönn Jónsdóttir Hildur Edda Jónsdóttir Sverrir Már Jónsson Gunnar Hrafn Jónsson Helgi Hrannar, Brynjar Orri og Birgir Hrafn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, Stefán Briem lést mánudaginn 18. apríl á Landspítalanum. Snorri Briem Rachel Briem Kjartan Briem Erla Jóhannsdóttir Axel Jóhannsson Bodil Fich og barnabörn. Ástkær móðir mín, Hólmfríður Þóra Guðjónsdóttir sem lést á Hjúkrunarheimilinu DAS við Brúnaveg 27. mars, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju föstudaginn 22. apríl kl. 10.00 árdegis. Ragnar Friðriksson og fjölskylda. Fimmtíu ára afmælis Ásatrúar­ félagsins verður fagnað með sigurblóti og sumargleði í dag. arnartomas@frettabladid.is  Ásatrúarfélagið fagnar fimmtíu ára afmæli um þessar mundir en félagið var stofnað á sumardeginum fyrsta 1972. Hilmar Örn Hilmarsson allsherjargoði segir að stofnun félagsins hafi átt sér langan aðdraganda. „Það voru menn í kringum Sveinbjörn Beinteinsson sem höfðu farið að hitt­ ast upp úr 1960 í tíundu viku sumars á Þingvöllum,“ segir hann. „Þetta var lítill hópur fólks, f lest úr Borgarfirði, sem vildi endurvekja þennan forna sið.“ Þar myndaðist ákveðinn kjarnahópur sem ákvað að stofna félag þar í kring og var haldinn undirbúningsfundur sem fór fram á Hótel Esju. Félagið var svo stofnað á Hótel Borg á sumardeginum fyrsta þann 20. apríl 1972. „Það var talað um að það hefðu verið tíu til tólf manns sem mættu á stofn­ fundinn,“ segir Hilmar Örn og ber við­ burðinn saman við tónlistarhátíðina Woodstock. „Rétt eins og annar hver Ameríkani sem maður hittir á ákveðn­ um aldri fór á Woodstock, þá var annar hver maður sem ég hef hitt á Íslandi á ákveðnum aldri á þessum stofnfundi, þótt það gangi ekki upp tölfræðilega.“ Í kjölfarið var sótt um að félagið fengi löggildingu sem fékkst þó ekki strax. „Það var ákveðin andstaða við að fjöl­ gyðistrú yrði leyfð á Íslandi,“ segir hann. „Það var sem sagt hægt að beita guð­ fræðilegum rökum á móti því.“ Félagið fékk löggildingu ári eftir stofnun og var Sveinbjörn valinn fyrsti allsherjargoði. „Hann fékk fyrstur heiðinna manna leyfi til að gefa fólk saman, en jarðsetti þó reyndar aldrei nokkurn mann,“ segir Hilmar Örn sem útskýrir að félagar hafi orðið karla og kvenna elst á þessum tíma. „Það var mjög gott upp á heilsu­ farið að ganga í félagið.“ Félögum fjölgar Í dag eru félagar í Ásatrú vel á sjötta þús­ und og hefur orðið um tíföldun síðan Hilmar Örn tók við árið 2003. „Þá vorum við í kringum 540 manns sem þótti stórkostlegt þá, því á fyrstu tíu til fimmtán árunum vorum við aldr­ ei f leiri en hundrað. Við vorum alltaf í kringum þá tölu,“ segir Hilmar Örn og segir stökk í kringum Kristnihátíðina árið 2000. „Þá fengum við ótrúlegan fjölda fólks í félagið, sem er enn í vexti.“ Uppbygging á hofi Ásatrúarfélagsins hefur staðið lengi yfir og segir Hilmar Örn að það sé nú nánast fullklárað. „Við f luttum inn með skrifstofuna og erum að klára félagsaðstöðuna. Við erum svo að bíða eftir starfsleyfi miðað við uppfylltar brunavarnir sem ætti að fást á næstu dögum eða vikum,“ segir hann og bætir við að verið sé að safna fyrir burðarvirki sem þurfi að panta að utan og verði að von sett upp á næsta ári. „Maður veit auðvitað ekki hversu fljótt þetta gengur yfir en við vorum gerð munaðarlaus af borgarkerfinu á sínum tíma. Við höfum lagt fyrir og ekki byggt meira en við höfum efni á á hverjum tíma.“ Árunum fimmtíu verður svo fagnað með sigurblóti og sumargleði við hofið í Öskjuhlíð og í Nauthólsvík í dag. „Þetta verða mikil hátíðarhöld,“ segir Hilmar Örn Hilmarsson. „Við fáum vík­ ingafélagið Rimmugýg í heimsókn, það verða blöðrur og sumargjafir handa börnum, pylsur, gos og grillaðir sykur­ púðar. Það verður mikið í þetta lagt.“ ■ Ásatrúarfélagið fimmtíu ára Hilmar Örn er vongóður um að hofið verði fullklárað á næsta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI 1908 Knattspyrnufélagið Víkingur er stofnað í Reykjavík. 1965 Nafnskírteini eru gefin út til allra Íslendinga, 12 ára og eldri. Um leið eru tekin upp svonefnd nafn- númer. 1967 Herforingjastjórn, undir forystu Georgios Papa- dopoulos, fremur valdarán í Grikklandi. 1971 Fyrstu handritin koma heim frá Danmörku, Flat- eyjarbók og Konungsbók eddukvæða. 1989 Um 100 þúsund kínverskir mótmælendur safnast saman á Torgi hins himneska friðar í Peking í Kína. 1992 Ræningi kemst undan með 7,5 milljónir danskra króna eftir að hafa ráðist á peningaflutningabíl Danske Bank við Bilka í Árósum. 2010 Íslenski handritavefurinn Handrit.is er opnaður. Merkisatburðir TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 21. apríl 2022 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.