Fréttablaðið - 21.04.2022, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 21.04.2022, Blaðsíða 40
frettabladid.is 550 5000 RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Torg ehf. DREIFING Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025 Stefáns Ingvars Vigfússonar n Bakþankar Ég á grill. Við erum löskuð eftir veturinn, grillið mitt og ég. Það fauk um koll í vetur eins og ég, eins og við öll, og ég reisti það samviskusamlega við og það fauk aftur um koll og ég beið með að reisa það við þangað til að lægðin væri örugglega gengin yfir. Henni fylgdi önnur lægð og svo önnur og svo önnur og svo framvegis og svo framvegis, og við lágum kyllif löt. Grillið mitt og ég, grillið mitt og við öll. Suma morgna dró ég frá glugganum inni í svefnherbergi og horfði út á snæviþakið grillið, liggjandi á hlið eða á bakinu og velti því fyrir mér hvað væri brot- ið, hvort það tæki því að reyna að gera við það. Suma morgna lá ég á bakinu og hlustaði á frétt- irnar og velti því fyrir mér hvað væri brotið, hvort það tæki því að reyna að gera við það. Hvort okkur væri betur borgið annars staðar, grillinu mínu og mér, grill- inu mínu og okkur öllum. „Það lifði fallið af!“ segir nágranni minn eitt kvöldið þegar ég er að grilla. „Föllin!“ segi ég og hlæ. Við hlæjum bæði, það er fyndið að eiga grill sem er alltaf að fjúka á hliðina. Grill eiga ekki að fjúka, grill eiga að hverfa á veturna, við viljum ekki sjá þau þakin snjó, við viljum ekki sjá þau fjúka. Grill eru eins og skítugu börnin hennar Evu þegar vont er í veðri. „Ertu að vígja grillið fyrir sum- arið?“ spyr annar nágranni minn. „Já, hvernig var úti?“ spyr ég. „Frá- bært.“ „Æði, ég var að fá kettling.“ Síðan fer hann og ég horfi yfir hverfið, við erum öll svolítið lúin eftir veturinn, trén, grillin og ég. Ég á grill. n Ég á grill, annar kafli Fermingar- skraut Faxafeni 11, 108 Reykjavík www.partybudin.is Sigraðu sumarið Opið á sumardaginn fyrsta Þriggja hjóla festing á krók Burðargeta 60 kg, hallanleg Verð 89.900 kr. Reiðhjólafesting á topp Burðargeta 15 kg Verð 18.900 kr. Menabo farangursbox 320 ltr, Mania, svart Verð 44.990 kr. Þriggja hjóla festing á krók Burðargeta 60 kg, hallanleg, hraðfest Verð 110.000 kr. Skíðafesting á topp 4 skíði eða 2 snjóbretti Verð 24.890 kr Kajakfesting á topp Burðargeta 50 kg Verð 28.990 kr. Er bíllinn klár í ferðalagið? Ferðabox, skíðafestingar, hjólafestingar og margt fleira Kíktu inn á vefverslun Heklu sem er alltaf opin www.hekla.is Ál þverboga sett Leopard, L, svart, burðargeta 75 kg Verð 29.990 kr.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.