Fréttablaðið - 21.04.2022, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 21.04.2022, Blaðsíða 34
Þá hafði þetta allt í einu orðið eitthvað allt annað en þetta var í upphafi – og einhverjir stórir draumar sem einhverjir höfðu um að verða poppstjörnur byrjuðu að kikka inn. Siggi Kinski FERÐAFÉLAG ÍSLANDS | www.fi.is Sjáumst á fjöllum Laglegasta lón í Kópavogi Nú er ár liðið síðan Sky Lagoon heilsulindin í Kópavogi var opnuð. Forsvarsmenn hins manngerða lóns hafa lagt upp með svokallað ritúal, að í sjö skrefum sé hægt að kynnast töfrum íslenskrar náttúru með íslenska vatninu og ferska loftinu. Á íslenskum stafrænum kaffistofum árið 2021, var keppst um að tikka í heitustu afþreyingar- boxin: hver var búinn að labba upp að gosi, hver var búinn að baka súrdeigsbrauð í heimsfaraldrinum og hver hafði heimsótt Skýjalónið, sem markaðssett var með erlenda ferðamenn í huga. Ári eftir opnun hafa plastglösin rispast og viðurinn veðrast og montrassarnir sem mættu fyrstir hafa sest niður og fundið sér eitthvað nýtt að gera. Sky Lagoon tekst þrátt fyrir það að standa undir nafni sem einstaklega vel heppnuð heilsulind. Hönnun lónsins gerir að verkum að hægt er að njóta næðis og fjöldi gesta verður aldrei yfirþyrmandi. Með stórbrotnu útsýni yfir Reykja- nesið, sem vafalítið hefur verið enn stórbrotnara á meðan tíðrætt gos átti sér stað, hefur hönnuðum tekist að skapa eitthvað sérstakt. Í Sky Lagoon er einn fallegasti gufuklefi landsins, með heil-gler- vegg sem snýr beint út að hafinu, með Keili og forsetabústaðinn við sjóndeildarhring. Heimsókn í lónið er frábær leið fyrir heima- menn til að kynnast sínu eigin landi með augum ferðamanns- ins. Umgjörðin og aðstaðan er smekkleg og lónið virkar bæði í ljósi og myrkri og að vetri sem sumri. Hvað sem innfæddum kann að finnast um rigningarklefann, sem kann að minna Íslending á opna svalahurð í mars, eða töfra íslenskrar náttúru í sjö skrefum, er lónið í Kópavogi heimsóknarinnar virði. n Ári seinna stendur Sky Lagoon undir nafni sem vel heppnuð heilsulind. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI n Horft um öxl Impossible Band er titill heimildarmyndar um sögu fjöllistahópsins Gusgus, sem nú er í vinnslu. Forsprakkar sveitarinnar standa að fram- leiðslu myndarinnar og segja hana varpa ljósi á mannlega þáttinn í sögu bandsins. ninarichter@frettabladid.is Leikstjórarnir Stefán Árni og Siggi Kinski, sem saman mynda dúóið Árni & Kinski, standa nú í hópfjár- mögnun fyrir nýjustu kvikmynd sína Impossible Band, sem fjallar um 27 ára feril Gusgus, sem þeir stofnuðu árið 1995. Fjármögnunin fer fram á Karolinafund. Stofnuðu sveitina árið 1995 Að sögn Sigga Kinski hafa þeir ekki unnið með sveitinni síðustu 18 ár, en sjálfur hafi hann byrjað að vinna með þeim í tónlist fyrir nýjustu plötuna Mobile Home, sem kom út á síðasta ári. „Og þar af leiðandi dróg- umst við báðir inn í að vinna með þeim,“ segir hann. Leikstjóra dúóið gerði tónlistarmyndbönd fyrir plötuna og stóð að undirbúningi 25 ára afmælistónleika sem fram fóru í Hörpu í vor. „Þá fórum við að sjá aðeins dýnamíkina í Gusgus, eins og hún er í dag,“ segir hann. „Við tveir vorum þeir sem upp- runalega hringdum í Daníel og ég og Daníel ákváðum að gera tónlist. Stefán þekkir Birgi og þannig varð þessi hópur til,“ segir Siggi. „Hann varð ekki til af því að allir voru svo hressir með að vinna saman.“ Þvert á móti hafi þeir smalað saman hópi sem átti lítið sameiginlegt fram að því. Poppstjörnudraumar kvikna Siggi ítrekar að meðlimir hafi verið mjög ólíkir. „Síðan allt í einu fáum við inn á borð til okkar plötusamn- ing, ég segi við, af því að við höfðum framleitt fyrstu Gusgus-plötuna hér á Íslandi,“ segir hann. „Þá hafði þetta allt í einu orðið eitthvað allt annað en þetta var í upphafi – og einhverjir stórir draumar sem ein- hverjir höfðu um að verða popp- stjörnur byrjuðu að kikka inn.“ Að sögn Sigga var Gusgus óra- fjarri kjarnahljómsveitarforminu, líkt og í tilfelli hljómsveita eins og U2 eða Nýdanskrar. „Þar er bara hópur af fólki sem hefur alist upp saman. En Gusgus byrjaði bara svo allt öðruvísi, vegna þess að við gerðum stuttmynd og ákváðum að ráða Magga Jóns sem dæmi, sem leikara. Og Emilíana var leikkona,“ segir hann. „Svo hugsuðum við: Hey, gerum tónlist úr þessu. Þannig varð hópurinn til.“ Vel heppnaðir tónleikar Stefán Árni segist í gegnum árin alltaf hafa verið í góðu sambandi við Daníel Ágúst, en ekki í miklu návígi við Bigga. „Hann er mjög sérstakur karakter, mjög mikil jarðýta. Dýna- míkin í Gusgus í dag er það sem gerði okkur sem kvikmyndagerðar- menn áhugasama um hvernig þetta gerðist. Þetta er mjög stór saga og stór hluti af tónlistarsögu Íslands, án þess að því hafi verið gerð skil,“ segir hann og bætir við að afmælis- tónleikarnir í Hörpu fyrr á árinu hafi verið frábær upplifun fyrir alla. „Þetta var ótrúlega vel heppnað.“ Sorg og gleði í myndinni Aðspurður hvers vegna ekki allir fyrrum meðlimir sveitarinnar hafi komið að tónleikunum, svarar Siggi að Gusgus fylgi alltaf núningur eða spenna. „Annars væri það ekki Gus- gus. En þessir tónleikar voru mjög heilandi held ég, fyrir alla sem tóku þátt í þeim. En það voru nokkrir sem voru ekki með. Hafdís var ekki með, Urður var ekki með, og það eru ástæður sem þær hafa fyrir því. En við viljum betur skoða þetta allt í þessari mynd,“ segir hann. „Ég myndi segja að þar sé sorg og gleði og ýmislegt sem á eftir að kafa ofan í og heila.“ Hann bætir við að þegar þeir hafi farið út úr sveitinni hafi það ekki verið í góðu. „En það var skilningur á því hvað var að gerast. Það var ástæða fyrir því að Daníel hætti, það var ástæða fyrir því að ég hætti.“ Geturðu útskýrt það? „Nei, ég held að við bíðum með það,“ svarar Siggi. Flestallir með stór egó „En fólki fannst mikið í húfi, hvort sem það voru peningar eða annað. Og það voru f lestallir í þessari grúppu með mjög stór egó og höfðu rétt fyrir sér og fannst hlutirnir eiga að vera eins og þeir vildu hafa þá,“ segir Siggi. Þannig sé mikið af „djúsí efni“ í myndinni. „Við viljum aðstoða þetta barn okkar, sem við fæddum óvart, við að halda áfram að dafna og vaxa,“ segir Siggi. „Gera hvað sem við getum til að stuðla að því. Þessi mynd verður mjög mikilvæg fyrir söguna, og vonandi fyrir fólkið sem tekur þátt í henni.“ Framlenging af Gusgus Aðspurður um erindi myndar- innar segir hann að hér sé um að ræða heilsteypt listaverk, sem í rauninni sé framlenging af Gusgus. „Við elskum tónlist og við elskum kvikmyndir og það eru stórkost- legar heimildarmyndir sem hafa verið gerðar af tónlistarmönnum og um tónlistarmenn,“ segir hann og segir leikstjóradúóið ætla að setja hið mannlega og breyska í fókus. Trúna og metnaðinn og ekki síst fórnirnar. „Fólk hefur þurft að fórna sér og fólki hefur verið fórn- að,“ segir Siggi. n Fórnir og fortíðarmál Gusgus Siggi Kinski og Stefán Árni standa að framleiðslu Impossible Band, kvikmyndar um sögu fjöllistahópsins Gusgus. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI 26 Lífið 21. apríl 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 21. apríl 2022 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.