Fréttablaðið - 21.04.2022, Side 8
Við reynum að bjarga
mannslífum, óháð því
hver þarfnast aðstoðar-
innar og hvar.
Anne Poulsen, framkvæmda-
stjóri Svæðisskrifstofu Mat-
vælastofnunar SÞ
Sókn Rússa í austurhluta
Úkraínu eykur enn á neyð
hungraðra íbúa sem berjast
fyrir lífi sínu. Matvælakeðjur
hafa rofnað. Hjálparsamtök
segja mikla áskorun að koma
mat til bágstaddra.
bth@frettabladid.is
ÚKRAÍNA Með stórfelldum árásum
Rússa á austurhluta Úkraínu síð-
ustu daga hefur neyð úkraínskra
íbúa aukist verulega og var ástandið
þó slæmt fyrir.
Anne Poulsen, hjá Svæðisskrif-
stofu Matvælastofnunar Sameinuðu
þjóðanna, World Food Programme
(WFP), segir að þrjár til fjórar millj-
ónir Úkraínufólks búi nú við alvar-
legan matvælaskort. Allt að helm-
ingur Úkraínufólks hafi áhyggjur
af því að finna ekki nóg að borða.
Milljónir flóttamanna hafa flúið
Úkraínu. Fleiri eru þó á faralds-
fæti innan landsins án þess að hafa
komist að landamærum. Enginn
veit nákvæmlega umfang f lótta-
mannavandans .
Anne segir að fjórar til fimm
milljónir Úkraínumanna, aðallega
konur, börn og gamalmenni, hafi
þegar f lúið land og leitað skjóls í
nágrannalöndunum. Á sama tíma
hafi 7-8 milljónir manna verið á ver-
gangi innanlands.
„Við veitum fólki í neyð mannúð-
araðstoð. Við reynum að bjarga
mannslífum, óháð því hver þarfnast
aðstoðarinnar og hvar,“ segir Anne.
Að greina þarfir þess gríðarstóra
hóps sem sé nú á ferðinni í Úkraínu
í mjög óstöðugu ástandi er mikil
áskorun fyrir WFP og samstarfsað-
ila að sögn Anne. „Stærsta áskor-
unin er á átakasvæðum, þar sem
vantar upp á viðveru mannúðarað-
ila til að dreifa mat og öðru.“
Einn liður í starfi WFP felst í við-
ræðum við frjáls félagasamtök og
kirkjur. Með því er hægt að auka
líkur á að matvæli komist til þeirra
sem helst þurfa á að halda.
WFP taldi fyrir síðustu árásir
Rússa að tæpur helmingur íbúa
Úkraínu hefði áhyggjur af því að
finna ekki nóg að borða. Líklegt er
að sá hópur hafi stækkað.
„Matur er eitt af þremur helstu
áhyggjuefnum íbúanna. Hin tvö
áhyggjuefnin eru öryggi og að finna
eldsneyti til f lutninga,“ segir Anne.
WFP áætlar að einn af hverjum
fimm íbúum í Úkraínu hafi fækk-
að máltíðum. Fullorðnir hafa víða
þurft að borða minna svo börnin
líði ekki skort. Matvælabirgða-
keðja landsins er rofin. Kerfi sem
áður sáu um að brauðfæða tugi
milljóna eru að liðast í sundur,
að sögn Anne. Vörubílar og lestir
hafa verið eyðilagðar, f lugvellir
sprengdir í loft upp, margar brýr
hafi fallið, matvöruverslanir hafa
verið tæmdar sem og vöruhús.
Mánaðarlegur viðbótarkostnað-
ur WFP vegna þessa ástands er um
fjórir milljarðar Bandaríkjadala.
Kostnaður vex eftir því sem stríðið
dregst. Árásir síðustu sólarhringa
hafa enn aukið á vanlíðan íbúanna.
Stuðningur íslenskra stjórn-
valda hefur meðal annars falist í
framlögum til mannúðarstarfs og
neyðarviðbragða á vegum Samein-
uðu þjóðanna og annarra alþjóða-
stofnana. Borgaraþjónusta utan-
ríkisráðuneytisins vinnur að því að
aðstoða Íslendinga og fjölskyldur
þeirra í Úkraínu, Rússlandi og nær-
liggjandi löndum. n
Helmingur Úkraínumanna
segist hræðast hungursneyð
Frá hjálparstarfi í Medyka þar sem meðal annars var boðið upp á mat og drykk. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Því fyrr sem krabbamein
greinist, því betri eru batahorfur.
Þess vegna er mikilvægt að
þekkja einkennin. Hægt er
að koma í veg fyrir fjögur af
hverjum tíu krabbameinum
með góðri fræðslu og öflugum
forvörnum, sem Velunnarar gera
Krabbameinsfélaginu kleift að
sinna með stuðningi sínum.
Takk, kæri Velunnari.
Með þér getum við gert svo ótalmargt.
krabb.is/velunnari
Fríar forskoðanir
fyrir laseraðgerðir
út apríl
Tímapantanir 414 7000
/Augljos
tsh@frettabladid.is
BÓKMENNTIR Linda Ólafs dóttir,
Sverrir Nor land og Kristín Helga
Gunnars dóttir hlutu Barna bóka-
verð lau n Reyk ja v í k u r bor g a r
2022 fyrir bækurnar Reykja vík
barnanna, Eld hugar: Konurnar sem
gerðu að eins það sem þær vildu og
Ó temjur.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
veitti verð launin við há tíð lega at-
höfn Höfða í gær.
Barnabókaverðlaun Reykja víkur-
borgar eru veitt í þremur flokkum
bóka fyrir börn og ung menni, flokki
bóka frumsaminna á íslensku, flokki
myndlýsinga og flokki þýðinga. Um
er að ræða elstu barnabókverð laun
landsins, en þau voru fyrst veitt 1973
sem Barnabókaverðlaun fræðsluráðs
Reykja víkur. n
Barnabókaverðlaun Reykjavíkur veitt
Tinna Ásgeirsdóttir, formaður dómnefndar, og Dagur B. Eggertsson ásamt
verðlaunahöfunum Kristínu Helgu, Sverri og Lindu. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
kristinnpall@frettabladid.is
HÚSDÝR Vigdís Hauksdóttir var eini
fulltrúi umhverfis- og heilbrigðis-
ráðs Reykjavíkur sem hafnaði
beiðni um leyfi til hænsnahalds á
heimili í Skerjafirði. Vigdís telur að
það sé verið að bjóða hættunni heim
í ljósi frétta af fuglaflensusmitum.
Leyfisbeiðnin um að halda fjórar
hænur var lögð fyrir ráðið í vikunni
ásamt samþykki frá nágrönnum og
Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur.
„Það er mjög óábyrgt að sam-
þykkja þessa tillögu. Nú geisar skæð
fuglaflensa í landinu og þegar hefur
þurft að drepa hænur á Suðurlandi.
Hér er verið að bjóða hættunni heim
í að viðhalda þessum bráðhættu-
lega sjúkdómi í landinu. Í raun ríkir
neyðarástand í landinu vegna sjúk-
dómsins, “ kom meðal annars fram
í bókun Vigdísar. n
Andvíg hænum í bænum í faraldrinum
Vigdís Hauks-
dóttir, fulltrúi
Miðflokksins í
Reykjavík
8 Fréttir 21. apríl 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ