Fréttablaðið - 21.04.2022, Page 13
Þorsteinn
Pálsson
n Af Kögunarhóli
Viðbrögð almennings við banka-
sölumálinu minna um margt á
Wintris-málið 2016, sem var þó
miklu minna. Pólitísku varnar-
viðbrögðin eru hins vegar allt
önnur nú en þá. Í Wintris-málinu
skutu fáir þingmenn skildi fyrir
forsætisráðherra. Hann lagði
fjármálaeftirlitið ekki niður og
baðst lausnar. Í bankasölumálinu
enduróma þingmenn VG og Sjálf-
stæðismanna gagnrýni almenn-
ings en halda ráðherrunum þó
í armslengdarfjarlægð frá allri
ábyrgð. Ráðherrarnir leggja svo
Bankasýsluna niður.
Viðskiptaráðherra er undan-
tekningin frá þessari breiðu
samstöðu um armslengd milli
ákvarðana og ábyrgðar. Hún vill
að pólitíkin axli ábyrgð á því sem
úrskeiðis fór, lögum samkvæmt.
Þessi sérstaka uppákoma kallar
síðan fram þá mynd af Framsókn
við ríkisstjórnarborðið að það
vanti jafnaðarmerki milli valda og
málefnalegra áhrifa hennar.
Dæmi 1
Í stjórnarsamstarfinu semja allir
f lokkarnir venju samkvæmt um
hvernig ráðherrastólum er skipt.
Aftur á móti eru það fyrst og
fremst VG og Sjálfstæðismenn,
sem semja um málefni. Mála-
miðlanir milli þeirra eru einnig
óvenjulegar. Þær felast ekki í því
að fara milliveg á einstökum
málasviðum, heldur fær hvor
f lokkur að fara öllu sínu fram á
sínum stólum. Þetta á þó ekki
alfarið við um mál sem þarfnast
lagabreytinga. Þar gildir neitunar-
valdsregla.
Þetta hentar Framsókn vel.
Hún getur stutt mál lengst til
vinstri og lengst til hægri á öllum
sviðum. Áður fyrr náði hún yfir
lengri tíma að vera að meðaltali
á miðjunni með því að semja til
skiptis um ríkisstjórn til vinstri og
hægri. Í þessu samstarfi nær hún
meðaltalinu jafnóðum. Þannig
blómstrar Framsókn í logni. En
í mótvindi kemur málefnalegt
áhrifaleysi í ljós.
Dæmi 2
Eftir að reiðin blossaði upp hjá
almenningi með bankasöluna
upplýsti viðskiptaráðherra að hún
hefði í byrjun lagt til opið söluferli
en talað gegn því lokaða ferli, sem
samstarfsf lokkarnir sameinuðust
um. Jafnframt greindi hún frá því
að hún hefði séð afleiðingarnar
fyrir. Þessar upplýsingar vörðuðu
almannahag. Ráðherra braut því
siðareglur ríkisstjórnarinnar með
því að halda þeim leyndum fyrir
Alþingi. En þessi ágreiningur
varpar líka skýru ljósi á áhrifa-
leysi Framsóknar.
Varaformaður f lokksins,
sem tryggði framhaldslíf ríkis-
stjórnarinnar, leggst gegn lokaðri
sölu í ráðherranefnd um efna-
hagsmál og í ríkisstjórn. For-
menn samstarfsf lokkanna, sem
töpuðu, virða það sjónarmið að
vettugi. Forsætisráðherra hefur
ekki einu sinni fyrir því að skýra
út hvers vegna hún studdi fremur
tillögu fjármálaráðherra en ráð
þess ráðherra, sem fer með sam-
keppnismál og neytendavernd.
Sjálfstæðismenn segja að við-
skiptaráðherra einangrist fyrir
að hafa kjaftað frá. Það komi í ljós
Völd án áhrifa
með skertum fjárveitingum til
hennar.
Dæmi 3, 4, 5 og 6
Eftir samkomulag um nýjan
stjórnarsáttmála greindi viðskipta-
ráðherra frá því að nauðsynlegt
væri að stórhækka veiðigjöld og
sérstakan bankaskatt. Forsætisráð-
herra og fjármálaráðherra blésu
á þessar tillögur eins og þær væru
rykagnir á nýfægðu borði ríkis-
stjórnarinnar. Formaður Fram-
sóknar studdi varaformann sinn
dyggilega. En kersknisleglum
spurningum um efndir svaraði
hann þannig, að skilja mátti, að
þrátt fyrir skýra stefnu hafi aldrei
staðið til að semja um framgang
hennar í þessu stjórnarsamstarfi.
Barnamálaráðherra til fimm
ára sagði þjóðinni að hann væri
fyrsti farsældarráðherra barna.
Þegar árangurinn var mældur
eftir kosningar kom í ljós að bið-
listar barna eftir félagsþjónustu og
heilbrigðisþjónustu höfðu lengst
með hverju ári, sem hann hefur
setið. Sami ráðherra hét tveimur
þjóðarleikvöngum. Landsliðs-
þjálfarinn í handbolta lýsti árangr-
inum í dymbilvikunni. Þannig fer
stundum fyrir fagráðherrum, sem
hafa lítil áhrif en lofa upp í ermina á
fjármálaráðherrum.
Dæmi 7
Leiðtogi Framsóknar í borgar-
málum segist sammála hugmynd-
um minnihlutans um skipulag
byggingarlóða og almennings-
samgöngur. Jafnframt segist hann
fella sig vel við stefnu meirihlutans
á þessum sviðum. Fyrir vikið geti
Framsókn fyrirhafnarlaust myndað
meirihluta með hvorri fylkingunni
sem er. Er ekki bara best að kjósa
flokk sem vill allt?
Sá böggull fylgir skammrifi
að Framsókn ætlar ekki að segja
kjósendum fyrr en eftir kosningar
hvor leiðin verður valin. Þeir eiga að
kaupa köttinn í sekknum.
Helmingur kjósenda Framsóknar
mun því engin málefnaleg áhrif
hafa, gangi þetta eftir. n
veitur.is • S. 516 6000
Það er mikið undir
Undir yfirborðinu liggja lífæðar sem halda orkustigi hverfisins uppi. Skoðaðu lagnateikningar áður en þú stingur
niður skóflu. Þannig er hægt að koma í veg fyrir óþarfa óþægindi sem geta haft áhrif á fjölmarga í nágrenninu.
Upplýsingar um hvernig nálgast má teikningar er að finna á veitur.is/mikid-undir.
Höldum sambandinu órofnu
FIMMTUDAGUR 21. apríl 2022 Skoðun 13FRÉTTABLAÐIÐ