Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - maí 2016, Blaðsíða 7
7Siglfirðingablaðið
Í haust kemur út bók um þjóðþekktan athafnamann og
sprellara.
Bókin mun bera nafn skemmtikraftsins og er undirtitillinn:
„Siglfirðingurinn sem notaði sama 1000 kallinn tvisvar”
Í bókinni eru hundruðir mynda frá ferlinum og ótrúlegum
uppákomum í lofti, láði og legi.
Bókin verður seld í öllum betri bókabúðum landsins og
verður í umboðssölu fyrir Siglfirðinga og tengda aðila hjá
Merkismönnum.
Sitthvað um
heimildamyndina
„Siglfirðingurinn sem notaði
sama 1000 kallinn tvisvar”
Fyrir um tveimur árum
hófst umræða innan stjórna
Siglfirðingafélagsins og Vildarvina
Siglufjarðar um að hefja þyrfti
undirbúning að kaupstaðarafmæli
Siglufjarðar á árinu 2018. Mörg
okkar muna hversu vel tókst til
við framkvæmd afmælisins 1968. Í
öðru lagi er mikill áhugi á að færa
bænum á þessum tímamótum gjöf
frá brottfluttum Siglfirðingum.
Þetta verkefni var kynnt í
fréttabréfi okkar á síðasta ári en mikil
vinna hefur farið í öflun efnis, styrkja
og tengiliða til að gera þetta stóra
verkefni að veruleika. Verkefnið er
þannig statt í dag að líklegast er að
um samstarfsverkefni við RÚV verði
að ræða en beðið er niðurstöðu úr
þeim viðræðum.
Efnistök í þessa mynd munu
vonandi byggjast að miklu leyti
á kvikmyndaefni sem þegar er til
meðal Siglfirðinga. Við viljum því
enn og aftur hvetja alla að kanna
hvort þeir hafi aðgang að gömlu
kvikmyndaefni og setja sig þá í
samband við okkur. Allt það efni
sem yfirfært verður á okkar vegum
á stafrænt form mun verða afhent
aðilum á Siglufirði til frekari afnota
og úrvinnslu og með því verður komið
í veg fyrir að þessar heimildir glatist.
Á árunum 1960-1970 var starfandi
á Siglufirði kvikmyndaklúbburinn
Linsan. Meðlimir hans tóku mikið
af kvikmyndum, svokölluðum Super-
8mm myndum. Í maí 1965 héldu
þeir kvikmyndasýningu og sýndu
10 stuttmyndir m.a. eftir Ólaf
Ragnarsson, Hinrik Aðalsteinsson,
Hafliða Guðmundsson og Tómas
Hallgrímsson. Þeir troðfylltu bíóið á
tveimur sýningum. Við höfum þegar
fengið fjölda kvikmynda til yfirfærslu
og afnota og og fjármögnun er vel á
veg komin, en ekki lokið. Hér er um
mjög stórt verkefni að ræða og er því
leitað allra leiða til að ná að fjármagna
það. Sótt hefur verið um styrki víða
og hefur óskum okkar víðast verið
tekið mjög vel. Á næstu vikum mun
ráðast hvernig samstarfi við RÚV
verði háttað og verður það kynnt á
aðalfundi Vildarvina þann 19. maí nk.
Við hvetjum þig lesandi góður
til að leggja þessu verkefni lið
með fjárframlagi . Leggja má inn
framlög á reikning 0348 – 26 – 530
kt: 600608-0530