Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - maí 2016, Blaðsíða 15
15Siglfirðingablaðið
reknetabát sem reri frá Keflavík og
Sandgerði. Ég fór svo á mína fyrstu
vertíð 1959 í Sandgerði,“ segir Þórður
Rafn.
Sjanghæjaður í Eyjum
Þórður Rafn var á vertíð í
Vestmannaeyjum í byrjun árs
1960. Jakobína systir hans bjó í
Vestmannaeyjum og Steingrímur
bróðir hans hafði verið þar eina
vertíð. Fljótlega eftir að Þórður
Rafn kom til Eyja, þá aðeins 17 ára
gamall, hitti hann eiginkonu sína
Ingigerði Reykjalín Eymundsdóttur.
Um þeirra fund segir hann í viðtalinu
í Fiskifréttum: „Ég var hreinlega
sjanghæjaður. Hún bókstaflega flaug
upp í fangið á mér við húshornið á
Úthlíð á Vestmannabrautinni og
hefur ekki sleppt takinu á mér síðan.“
Þau Ingigerður og Þórður
Rafn eiga þrjú börn. Elst er Íris,
hjúkrunarfræðingur, býr í Ölfusi
og er kennari við sjúkraliðabraut
FSU á Selfossi. Þá er Eyþór,
skipstjóri á Dala-Rafni, búsettur
í Vestmannaeyjum. Yngstur er
svo Ægir, tölvunarfræðingur hjá
Landsbanka Íslands í Reykjavík.
Kjaftfylltu bátinn
Þórður Rafn hafði ekki alveg sagt
skilið við Siglufjörð. Á vorin milli
úthalda árin 1958 til 1960 reru hann
og Steingrímur bróðir hans á trillunni
sem faðir þeirra átti. Trillan gat mest
borið tvö og hálft tonn. „Við beittum
á nóttunni og rerum á daginn. Við
fórum á þessu horni alveg út í
Eyjafjarðarál. Við vorum með fimm
til sex bala og kjaftfylltum bátinn
oft og iðulega. Ég man að gömlu
trillukarlarnir voru ekkert hrifnir af
þessum peyjum sem komu sunnan af
landi og rótfiskuðu.“
Þórður Rafn rifjar það jafnframt
upp að þeir hafi verið mikið á trillunni
sem krakkar og siglt alla leið til
Hofsóss þar sem þeir stálust til að
leggja silunganet. Einnig var farið
inn í Héðinsfjörð til silungsveiða
en þeir höfðu aðgang að Ámá sem
frændi þeirra, Haraldur Erlendsson
frá Siglunesi, átti.
Skipstjóri rúmlega tvítugur
Þórður Rafn segist snemma hafa
heillast af sjómennsku og ákveðið
að leggja hana fyrir sig. Hann vildi
afla sér menntunar á þessu sviði
og fór fyrst í vélskóla á Akureyri og
náði í vélstjóraréttindi 1961. Eftir
það lá leiðin í Stýrimannaskólann í
Reykjavík og útskrifaðist hann þaðan
1964. Samhliða námi var Þórður
Rafn á bátum frá Eyjum. Sumarið
1963, áður en hann kláraði skólann
var hann ráðinn skipstjóri á bátinn
Jón Stefánsson VE, aðeins rétt um
tvítugur að aldri. Hann var með
þennan bát og síðan fleiri báta frá
Eyjum, allt fram að vertíðinni 1975.
Þá prófaði hann að fara í land og vann
sem verkstjóri hjá Fiskiðjunni í Eyjum
eina vertíð.
Eigin útgerð
Þórður Rafn undi sér ekki í landi
eftir að hafa verið ein sautján ár á sjó.
Um vorið sagði hann við stjórnendur
Fiskiðjunnar að þennan fjanda gerði
hann ekki aftur. Hann vildi komast
á sjóinn.
Í framhaldi af þessu bauð
Fiskiðjan Þórði Rafni að kaupa
af þeim vertíðarbátinn Mars VE
sem var einn af Svíþjóðarbátunum
svonefndu. Hann sló til og gengið
var frá kaupunum í maí 1975. Þar
með hófst útgerðarsaga Þórðar Rafns.
Hann valdi nýtt nafn á bátinn og
var það sótt í þjóðsöguna um Dala-
Rafn sem bjó á Dalabæ á miðöldum
og varð síðan eftir dauða sinn að
sjóskrímsli. Á löngum útgerðar- og
skipstjórnarferli hefur Þórður Rafn
átt nokkra báta og fengu þeir allir
nafnið Dala-Rafn VE.
Nafnið frá draummanni
Þórður Rafn var spurður hvort
millinafn hans hefði ekki einnig verið
fengið úr þjóðsögunni.
„Nafn mitt er fengið frá
draummanni sem kom til móður
minnar í svefni. Hver hann var vitum
við ekki en kannski það hafi verið
Dala-Rafn! Hann kom til hennar og
sagði við hana að hún gengi með strák
en hún vissi þá ekki að hún væri ófrísk.
Strákurinn ætti að heita Þórður Rafn
en Rafn skyldi hann kallaður verða.
Þetta sagði móðir mín mér.“
Fór vel af stað
Fram kom hjá Þórði Rafni að á
ýmsu hefði gengið í útgerðinni. Fyrstu
árin hefðu verið ágæt en árin 1980
til 1990, þegar verðbólgan geisaði,
hefðu verið skelfileg og eilíft basl að
ná endunum saman.
„Ég var þó heppinn að útgerðin
fór mjög vel af stað. Fyrsta haustið
vorum við tvo og hálfan mánuð á
reknetum og mokfiskuðum síld. Þá
var þorskverð á síldinni. Karlarnir
gengu út með árstekjur eftir úthaldið.
Næsta haust var einnig mjög gott á
Í haugasjó. Nýjasti Dala-Rafn sem Þórður Rafn seldi Ísfélagi Vestmannaeyja þegar hann hætti útgerð.
Mynd: Sölvi Breiðfjörð