Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - May 2016, Page 12
12 Siglfirðingablaðið
Börn Þuru og Gulla þekkja
flestir Siglfirðingar sem
komnir eru til vits og ára.
Þrettán stykki alin upp í litlu tveggja
hæða húsi númer 6 við Lækjargötuna
á Siglufirði. Ég settist niður með
þremur systrum úr þessum fjölmenna
systkinahópi til að forvitnast um
hvernig lífið hefði gengið fyrir sig?
Kittýju, Birnu og Önnu Stínu.
Fæddust frá 1946–1965
„Þetta var dásamlegt“ segja þær
einum rómi.
Þegar nýtt barn bættist við þá fór
það elsta á efri hæðina hjá ömmu og
afa, Sigurjónu og Jóni Gunnlaugssyni.
Krakkarnir eru fædd á 20 ára bili frá
1945-1965.
Kittý er elst fædd fyrir sunnan svo
koma Jón 1946, Andrés 1947, Sverrir
1948, Birna 1950, Anna Kristín 1952,
Hjördís 1954, Sigurjón 1956, Úlfar
1958, Erla 1959, Þorfinnur 1962,
Elva 1964 og Óttar 1965. Saman
telja þau 750 ár en næðu 800 árum
ef Þorfinnur hefði lifað en hann lést
1979 úr krabbameini.
Anna Stína segist muna vel eftir
bíóferðunum til Odds Thor. Eftir
sýninguna flýttu krakkarnir sé
rheim og þá var tekið til við að leika
myndina frá upphafi til enda. Sá sem
var fyrstur fékk að leika aðalhetjuna.
Jane hans Tarzans eða Tarzan sjálfan.
Kittý rifjaði upp í viðtali við Leó Óla
og Bigga Inga fyrir skömmu: „Ég man
vel eftir stóra slagnum á Hótelinu
þegar löggan notaði táragasið á
gestina og allt varð hreinlega vitlaust.“
Það var nokkru áður en ég byrjaði
að vinna þar, en við fylgdumst vel
með atburðarásinni. Við áttum heima
þarna í næst, næsta húsi og ég hélt mig
hálfa nóttina á bak við gardínurnar og
gægðist út undan þeim, auðvitað alveg
skíthrædd. Það var ekkert sofið þá um
nóttina því þetta var algjört bíó, eða
eins og einhver svakaleg hasarmynd,
þrælspennandi frá upphafi til enda.
Og það gekk ennþá meira á þessa
nótt, því Erla systir fæddist þarna
um morguninn. Þvotturinn hvarf líka
af snúrunum og maður var að finna
hann út um allt einhverja daga á eftir.
Ég fór svo að vinna á Hótelinu hjá
Palla á Höfninni, síldarævintýrið var
þá ennþá í algleymingi og þarna var
mikið að gerast.
Forréttindi að fá að alast
upp á síldarárunum
Algjör foréttindi voru að alast upp
á síldarárunum á Sigló, eru þær
sammála um. Við getum sagt að
samkomulagið á heimilinu hafi
verið gott. Við rifumst ekki heldur
slógumst! Gífurlegur barnafjöldi
var í þessari litlu götu en suðurhluti
Lækjargötunnar telur ekki nema
um 60-80 metra. Á þessum parti
töldu þær saman 36 krakka á þeirra
aldri. 13 krakka Gulla og Þuru, 10
Þurukrakkarnir:
Þrettán talsins og alin upp í 70 m2 hæð á Lækjargötunni