Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - mai 2016, Síða 13

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - mai 2016, Síða 13
13Siglfirðingablaðið krakkar hjá Lalla Blöndal og 13 hjá Mikkunum. Alls 36 börn. Krakkar úr öðrum götum reyndu að komast í leiki á Lækjargötunni en höfðu ekki erindi sem erfiði og voru lamin. Kittý rifjar upp að Örlygur Síldarminjasafnsforstjóri hafi sýnt henni ör á höfði sínu fyrir stuttu þar sem hann segir hana hafa lamið sig með kústskafti. Umtalaður skilnaður foreldranna Afi þeirra á efri hæðinni deyr árið 1961. Foreldrar þeirra skilja nokkrum árum seinna einhverjum umtalaðasta skilnaði þeirra tíma. Gulli labbaði út frá 13 börnum sagði Gróa. Þetta var áfall fyrir krakkana. Þura Andrésdóttir var náttúrulega engin venjuleg kona. Hún hafði í nær 20 ár séð um þetta gríðarstóra heimili. Vakin og sofin yfir velferð krakkanna. Þær systur muna eftir að hafa verið sem smástelpur með henni í síld. Með eitt barn í kerru og bumbuna með nýju framleiðslunni framan á sér. Siglfirðingar kunnu að meta þessa kraftmiklu ungu konu sem af æðruleysi tókst á við lífsbaráttuna og lét engan bilbug á sér finna. Vinir og kunningjar slógu saman og söfnuðu álitlegri upphæð til að hún gæti komið þaki yfir sig og barnahópinn. Flutti fjölskyldan upp á Háveg í hús Láka á plankanum sem kallaður var. Munurinn á snjóalögum þar og á flatlendinu á Lækjargötunni var gífurlegur. Birna minnist þess að hafa orðið nær úti á leið heim úr skólanum. Ég komst inn til Johansen og Sínu í miðri brekkunni neðan við Jón skóara og Siggu. Þar blés ég mæðinni. Síðan hélt ég sem leið lá upp eftir og togaði mig áfram á trjágreinum sem slúttu yfir stíginn. Þegar heim kom skammaði mamma mig fyrir slugsið en þá var mér allri lokið og grét úr mér augun! Lækjargötumót Skilnaður þeirra Þuru og Gulla varð heimsfrægur um allt land eins og gjarnan var sagt um litla stóratburði. Þær Birna og Anna Stína rifja upp Kanaríeyjaferð fyrir skömmu með kunningjum: Við sátum þarna á bekk og það berst í tal að við séum frá Siglufirði. Þá segir maður sem sat þar skammt frá: Siglufirði? Ég þekki mann sem var úr stórum systkinahópi og pabbi hans gekk út af heimilinu og skildi konuna eftir með 13 börn! Birna segist hafa frosið. Hvaða líkur eru á því að sitja á bekk á Kanarí 50 árum eftir að pabbi og mamma skildu og rifja þetta upp? En það mátti mamma eiga að hún sagði aldrei styggðaryrði um pabba og við virðum hana óendanlega fyrir það. Fyrir 30 árum stóðu þær fyrir svokölluðu Lækjargötumóti á Siglufirði. Þar hittust f lestir krakkarnir af Lækjargötunni með mökum og afkomendum. Þess má geta að afkomendur Þuru og Gulla eru orðnir 140 talsins og hittast reglulega og er þá kátt á hjalla. Ég kveð þessar hressu siglfirsku systur sem ganga rösklega út í vorkvöldið. Vetrarstarf Siglfirðingafélagsins hefur verið með eindæmum fjölbreytt. Myndasýningar og upplestrarsamkoma í Breiðfirðingabúð, Heldrafólk á Café Catalinu nú í janúar, hið geysivinsæla jólaball fyrir þá yngstu og elstu og pub- quiz á Ölveri fyrir millikynslóðina. Líflegt vetrarstarf

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.