Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - maj 2016, Side 19

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - maj 2016, Side 19
19Siglfirðingablaðið og hvenær. Hins vegar var kynning á tækjum og tólum í markaðssetningu á netinu. Markmiðið með þeim fyrirlestri var að fræða fólk um hvaða möguleikar eru til staðar varðandi markaðssetningu í gegnum samfélagsmiðla en ekki síður hvernig menn bera sig að við þá vinnu. Markaðssetning á netinu er gríðarlega mikilvægt tól í dag. Jón Jónsson fræðir unglingana Jón Jónsson, tónlistarmaður og hagfræðingur, kemur á Siglufjörð 26. apríl og fræðir unglingana á skemmtilegan hátt um fjármál. Á fundinum fer Jón yfir það hvernig peningar virka og mikilvægi þess að setja sér markmið. Hann tekur svo að sjálfsögðu aðeins í gítarinn. Með þessu viljum við stuðla að heilbrigðari þekkingu hjá unglingunum á fjármálum en ég verð að segja að mér finnst að leggja mætti miklu meiri áherslu á fjármálafræðslu í menntakerfinu. Framtíðaráform Arion í Fjallabyggð? Í útibúum bankans starfa 12 manns og 21 eru í bakvinnslustörfum. Í heildina starfa því 33 starfsmenn hjá Arion banka í Fjallabyggð. Við viljum skapa góðan vinnustað þar sem rík áhersla er lögð á faglega og persónulega þjónustu og heiðarleika enda erum við að hugsa um langtímasamband við okkar viðskiptavini. Hvernig sjáið þið framtíð Fjallabyggðar fyrir ykkur? Á síðustu árum hefur blómleg uppbygging átt sér stað hér á svæðinu. Þar hafði Síldarminjasafnið mikil áhrif í byrjun og síðan Héðinsfjarðargöngin og nú síðast glæsileg uppbygging einkaaðila í bænum. Til framtíðar er mikilvægt að markaðssetja svæðið bæði sem sumar- og vetrarparadís því hvaða útlendingur vill ekki koma til nyrsta kaupstaðar á Íslandi sem hefur upp á svo margt að bjóða? Hér er flottasta skíðasvæði landsins og mikil tækifæri varðandi fjalla- og gönguskíðaferðamennsku enda svæðið hér á Tröllaskaganum ævintýri líkast fyrir útivistarfólk allt árið um kring. Á sumrin er þetta útivistarparadís og Siglufjörður er eintaklega notalegur bær með án efa flesta veitingastaði á íbúa. Sjávarútvegur skipar áfram ríkan sess í bænum og gaman að sjá ný fyrirtæki spretta upp sem skapa fjölbreytt atvinnutækifæri fyrir ungt fólk. Aðalfundur Vildarvina Siglufjarðar Siglfirðingafélagið hvetur félagsmenn sína til að fjölmenna á aðalfund Vildarvina Siglufjarðar sem haldinn verður í Litlu-brekku (Lækjarbrekka) þann 19. maí næst komandi kl 17:00 Dagskrá 1. Hefðbundin aðalfundarstörf 2. Kynning á stöðu verkefnisins „Saga Siglufjarðar 1918–2018” 3. Kvikmyndasýning Endurskoðun | Skattur | Ráðgjöf Ernst & Young ehf. Borgartúni 30, 105 Reykjavík ey.is

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.