Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - maí 2022, Blaðsíða 4

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - maí 2022, Blaðsíða 4
Siglfirðingablaðið4 Villimannahverfið Bara nafnið vakti með okkur Suðrábakkaguttum ónot. Ekki það að við hefðum rekist á marga villóa, heldur voru það sögurnar, maður minn! Lífseigasta sagan var sú að einn hafði látið pabba sinn eða bróður kaupa fyrir sig loftriffil og amk. einn bæjargutti hafði verið skotinn í lærið! Vá, vá. vá! Sigga Bjarna, sem var siglfræg kerlingarfrekja átti að hafa sigað löggunni á þá fyrir kaðlasprang og læti í Mjölhúsportinu. Villóarnir kenndu kerlu lexíuna og í næsta matartíma á Túngötu XX skall eitthvað á eldhúsglugga Siggu. Þegar hún eða Bjarni litu út þá var kötturinn hennar hengdur, og hafði verið rennt eftir loftnetinu sem bundið var efst í tankana við Mjölhúsið! VÁ VÁ VÁ! Strákur úr Útfrábakkahverfinu hafði orðið uppvís að stríða/ pína/einelta smærri villimenn. Villóarnir náðu honum og bundu hann við svokallaðan píningarstaur (auðvitað!!) og lögðu dekk og annan eldsmat að honum. Héldu svo á braut og honum var bjargað af nágrönnum sem gengu á hljóðin! VÁÁ, VÁ! Þessar sögur og aðrar mergjaðar voru þess eðlis að menn sópuðust ekki í Villimannahverfið til að ná sér í vini. Gylfi Ægis „Ég ólst upp í villimannahverfinu sem svo var kallað á Siglufirði. Þangað þorði enginn nema í fylgd annars villings, ekki einu sinni Þorvaldur Halldórsson söngvari sem sagði mér það sjálfur. Ég þoli ekki þegar ráðist er á fólk og minni máttar og er talsmaður þeirra sem geta ekki borið hönd fyrir höfuð sér. Við strákarnir pössuðum þannig fuglana á hjöllunum þegar bæjarguttarnir komu og spýttu upp í ungana. Þá hlupum við eftir tréránum eins og eftir götunum; við vorum svo vanir að vera þar uppi og fylgjast með fuglum með nýfædda unga sína. Á endanum tókum við einn bæjarguttann, bundum hann við staurinn hjá mömmu, helltum bensíni í kring og kveiktum í með tilheyrandi sprengingum í nærliggjandi gróðri. Það varð auðvitað allt vitlaust en þeir lærðu af þessu,“ segir Gylfi. Leó „Villimennirnir“ bjuggu í villimannahverfinu sem var umhverfis en þó aðallega fyrir norðan fótboltavöllinn. Þeir voru skeinuhættir og að okkar mati alveg stórhættulegir, og blönduðu sér oft í slaginn í fjallinu. Það var um þetta leyti að við Steini Þóroddar urðum miklir mátar og eitt sinn á löngu spjalli datt okkur í hug það snjallræði að sameina „brekkuguttana“ og „suðurfráguttana“ sem bjuggu í syðsta hluta bæjarins. Þetta yrði líklega illvígur her vaskra drengja sem gæti hreinlega vaðið yfir allt og alla, en fyrst þurfti að finna gott nafn á hið sameinaða afl. Það var góður og jákvæður mórall fyrir þessari hugmynd og margir strákar í báðum hverfum vildu efna til mikils ófriðarbáls hið allra fyrsta. Við settumst yfir málið og skrifuðum niður tíu eða tuttugu hugmyndir á blað sem við rifum úr gamalli stílabók. Mér fannst “Húnar” best og Steini var sammála því. Við urðum því ásáttir um að reka harðan áróður fyrir því að það yrði fyrir valinu. Við báðum síðan alla strákana sem urðu á vegi okkar næstu daga að setja kross við eitthvert nafnið á blaðinu en helst Húna því það væri langbest og flestir kysu það. Það voru líka einhverjir sem áttu ekki upp á pallborðið hjá okkur og þeim var að sjálfsögðu ekki boðið að kjósa. (Tekið af síðu Leós Ólasonar) Hernámið á Siglufirði (hluti æskuminninga, SK) Krökkunum í Villimannahverfinu á Siglufirði þótti mikið ævintýri þegar Bretarnir komu til Siglufjarðar. (hernámið á stríðsárunum) Þeir komu sér fyrir úti á Siglunesi, uppi á Brekku neðan Hlíðarvegar á svæðinu sem nú 2011, tilheyrir Leikskálum. Siggi Jóns á Eyri sýnir gamla takta um borð í síldarflutningaskipinu Haferninum 1968.

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.