Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - May 2022, Page 12

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - May 2022, Page 12
Siglfirðingablaðið12 Niður úr miðju strigaþaki boddýsins lafði hins vegar smá strigaspotti. Við tókum það ráð að kveikja fyrst í þessum spotta til að reyna síðan að sjúga eld sígarettustubbana. Það skipti engum togum að áður en glóð komst í stubbana logaði allt þakið yfir okkur. Við komumst út við illan leik og hlupum burt. Í fjarska heyrðum við svo í slökkviliðinu koma vælandi á vettvang. Málið upplýstist ekki formlega, en löngu seinna sagði ég Palla frá sökudólgunum. Öðru sinni að vorlagi og í blíðskaparveðri vorum við nokkrir krakkar í hlíðinni neðan Hvanneyrarskálar. Sáum við þá mikinn reyk á eyrinni á lóð SR. Það var kviknað í Netastöðinni (síðar soðkjarnaverksmiðju SR). Í þessu húsi voru geymdar snurpunætur síldveiðiskipa, oft vel baðaðar í tjöru. Varð af þessu mikið bál. Ekki tókst að upplýsa um orsök brunans. Áratugum síðar, á árgangsfagnaði fermingarsystkina, upplýsti einn æskufélaga minna úr Villimannahverfinu að þarna hefði hann og fleiri verið að reykja og misst stubb í eina síldarnótina. Ingi Vigfússon sonur Lóu konu Júlla Þórarins, sem bjuggu á Hvanneyrarbraut 32A flutti í hverfið ungur og fljótlega spurðist út að hann kynni nokkuð fyrir sér á skíðum. Fljótlega var Ingi fenginn til að þjálfa stráka Ægis og Þóru á skíðum. Gylfi segir þó frá því í ævisögu sinni Sjúddírarírei “að pabbi gaf okkur bræðrunum Hickory­skíði. Ég var hinsvegar aldrei neitt fyrir að skíða svo ég fór með skíðin á verkstæðiúti í bæ og lét sagaþau eftir endilöngu og bjó til boga úr þeim. Pbbi varð rauður af reiði. Frá vinstri: Frímann, Steini, Gylfi, Lýður og Jón. Netastöð SR á Siglufirði brennur 29. september 1957. Frá vinstri: Egill Stefánsson, Páll Jónsson, Jóhann Guðna son, Tómas Sigurðsson og Eldjárn Magnússon.

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.