Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - maj 2022, Qupperneq 13

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - maj 2022, Qupperneq 13
Siglfirðingablaðið 13 Þar með upplýstist það mál alla vega okkar á milli og hér með opinberlega. Svo kannski ­ og eftir á að hyggja ­ vorum við villimenn með rentu! Snjóhúsin Vetrarmánuðir voru dvalarlíf Siglfirðinga. Athafnasemi okkar krakkanna fékk þó útrás á ýmsa vegu. Bygging snjóhúsa var í hávegum höfð. Um var að ræða 3 gerðir snjóhúsa. Einfaldast var að grafa í skafl, en þeir voru oft feiknastórir á þessum tímum. Önnur aðferð var að byggja snjóhús með skúrþaki. Veggir úr snjó, en þak úr röftum (stolnum rám úr fiskhjallinum norðan við Mjölhúsið) og blikkplötur ofaná (örugglega stolið einhvers staðar). Þetta þóttu þó frekar auvirðileg snjóhús. Þriðja aðferðin og sú vinsælasta var að byggja alvöru eskimóahús – igloo. Stundum heilu þorpin á túninu hjá Ævari. Við vorum miklir listamenn í þessari gerð snjóhúsa. Hellt var yfir þau vatni á kvöldin, til þess að ná glærri klakahellu og gera þau sterkari. Það varð að passa það sérstaklega vel að loka húsunum á kvöldin, annars fylltust þau af kattarhlandslykt. Í seinni tíð höfum við byggt slík hús á túninu við Suðurgötu 80 þegar viðrar og hentar. Það er hins vegar orðið afar sjaldgæft að snjóalög í byggð hér á landi henti til slíks. Fátæktin Núna sextíu árum síðar, er óhætt að segja að lífið í Villimannahverfinu hafi endurspeglað samfélagið í heild sinni á þessum tíma. Í þessu litla hverfi mátti greina stéttaskiptingu, áfengisvandamál, heimilisofbeldi, vanrækslu, kynferðislega misnotkun og margt fleira. Fátækt er mér samt efst í huga. Að öðru leyti einkenndist lífið af mikilli lífsbaráttu og vinnu. Einnig hafði Siglufjörður þá sérstöðu að fólk kom þangað á sumrin til að græða peninga, m.a. til að geta kostað menntun sína veturinn þar á eftir. Menntun og metnaður var því ofarlega í hugum margra. Ég hef nánar lýst fátæktinni í minningargrein um Lýð Ægissson og læt þá lýsingu flakka hér: „Foreldrar Lýðs voru ekki alltof efnuð og synirnir urðu sjö talsins. Heimilisaðstæðum Lýðs eru gerð ítarlegri skil af Gylfa Ægissyni, bróður hans í bókinni „Sjúddirarí rei“. Lýður var fæddur holgóma með skarð í vör. Slík fötlun krafðist endurtekinna skurðaðgerða í Reykjavík. Foreldrar Lýðs höfðu ekki ráð á slíkum ferðum með drenginn til Reykjavíkur. Það varð að ráði að foreldrar mínir, Gyða og Sigurður, tóku að sér fjármögnun og aðstoð við að fara með Lýð í læknisaðgerðirnar í Reykjavík. Þá var Lýður orðinn nokkurra ára gamall. Foreldrar mínir, ég og Valtýr bróðir, urðum á þann hátt nokkurs konar fósturfjölskylda Lýðs. Í seinni tíð rifjaði Lýður oft upp þennan tíma – með þeirri kímni sem einkenndi hann. Lýður sagði svo frá: Í einni ferðinni til Reykjavíkur hitti ég vinkonu Gyðu. Hún kenndi augljóslega í brjósti um mig og reyndi að benda mér á björtu hliðarnar. “En hvað þú ert í fínum stígvélum Lýður minn” sagði konan. “Hann Jóhann á þau” svaraði Lýður. “Og fín úlpa sem þú ert í” sagði þá konan traustvekjandi. “Já, hann Valtýr á hana” svaraði Lýður. – Og svo hló Lýður að þessari sögu sinni. Við líka. Það var alltaf glatt á hjalla þegar við hittumst, en jafnframt sameiginlegur skilningur á því hvaða alvara og hvílík örlög lágu að baki. Samantekin brot úr minningum Rvk 21. okt. 2021 Jóhann Ág. Sig Synir Jóns Sigurðssonar frá Eyri og Ingibjargar Sveinbjörns­ dóttur: Sveinbjörn Jónsson (Humbi) (1948 ), Sævar Jónsson (1953) Skúli Jónsson (1951)og Sigurður Jónsson (1946 ). Ægir Jóns lét Frímann hafa peninga fyrir klippingu og gerði þann reginfeil að segja að við mættum eiga afganginn. Frímann spurði Jónas rakara hvað væri ódýrast, krúnu­ rakstur! Hann keypti karamellur fyrir afganginn! Fv. Frímann, Steini, Gylfi og Lýður.

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.