Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - maj 2022, Qupperneq 14

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - maj 2022, Qupperneq 14
Siglfirðingablaðið14 Úr lögregluskýrsla í 5. maí 1965: „Tilkynnt um nokkra drengi á kajökum norðan við Öldubrjót sem færu á milli jaka sem þar væri landfastir. Drengjunum var stuggað í land. Tvær fleytur voru gerðar upptækar. Tveimur sökktu drengirnir sjálfir. Efni í kajakana höfðu þeir fengið eftir brunann á Gránugötu 2 og einnig úr Gránu.“ Júlíus Jónsson (útábakkagutti) var mættur á staðinn og myndaði í gríð og erg. Bragi Magnússon, lögregluþjónn sýndi mikil tilþrif við upptöku kajaka þessara ósvífnu ungu villimanna. Ef rýnt er í myndirnar má sjá Tryggva Björns (Höllu) halda á öxi, sem eldri villimaður man eftir að var í eigu Braga og gat þess að lögga þessi virtist hafa sérstaka ánægju af að höggva gat á fleyturnar. Meðal áhorfenda má þekkja Sigga Friðriks í gervi saklauss stráks sem bara átti leið hjá! Palla Páls, Steingrím Kristinsson, Hinna Andrésar, Guðmund Blöndal og Martein Kristjánsson.

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.