Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - May 2022, Page 16
Siglfirðingablaðið16
Valtýr Sigurðsson:
Lífið snerist um sjóinn
Túngata 43. Fyrstu bernskuminningarnar. Útjaðar Villi
mannahverfisins í norðri. Mamma Gyða fæddist á
Þrasastöðum þar sem afi Jóhann bjó til 1935. Þorvaldur
bróðir hans bjó svo á Deplum. Þeir bræður fluttu eins
og fleiri úr Stíflunni til Siglufjarðar og bjuggu báðir á
Túngötunni en afi Jóhann flutti síðan á Eyrargötuna.
Bræður afa Jóhanns, Bergur tollvörður og Eiríkur bæjar
verkstjóri bjuggu einnig á Siglufirði.
Ástrún móðursystir og Björn Friðbjörns bjuggu einnig
um tíma á Túngötu 43 en fluttu síðan í næsta hús á
Hvanneyrarbrautinni. Þá flutti Margrét móðursystir og
maður hennar Jón Arndal til Siglufjarðar. Þetta mótaði
mikið æskuna að hafa þennan ættgarð umhverfis okkur.
Villimannahverfið
Staðarmörk. Af hverju þetta nafn. Jú það voru uppvöðslu
samir einstaklingar í hverfinu og sumir nokkuð illskeyttir
sem mörgum strákum stóð ógn af.
Í raun var þetta venjulegt hverfi. Við lékum okkur í fallinni
spýtu á Mjóstrætinu þar sem Baddý bjó. Það var hlaupið í
skarðið á bæjarfógetatúninu en mest snerist lífið í kringum
sjóinn.
Kajakasmíði, fylgjast með síldarbátunum sigla út og inn,
ýmist drekkhlaðnir eða tómir að flýja brælu. Erling Jóns
í Lambanesi var um tíma mikill vinur og saman smíð
uðum við grindarbát sem klæddur var segli og róið var
með tveimur árum. Auðvitað hjálpaði pabbi Erlings,
Jón frá Lambanesi sem var mikill völundur. Báturinn
var það léttur að við gátum borið hann niður í kjallara í
Túngötunni milli ferða.
Fermingarárið eignaðist ég og Gunnar Friðriksson heitinn
litla trillu. Vorum með kolanet og dorguðum innanfjarðar.
Réri á trillu með Gísla Jóns pabba Palla Gísla en gafst upp
á miðri vertíð enda alltaf sjóveikur.
Ég fór 16 ára á síldarbát, Frigg frá Vest manna eyjum. Við
vorum með nótabát og drógum nótina með höndunum en
þá voru flestir komnir með blökk.
Um tvítugt réð um við félagarnir, ég og Gísli Kjartansson
okkur á Haf örninn og fórum til Þýskalands til að ná
í skipið. Það var mjög skemmtilegt sumar og mikil
lífsreynsla. Ég var lengi viðloðandi Haförninn bæði að taka
túra og eins að vinna í tönkunum við lempun á síld sem
var mikil óþrifavinna.
Sjórinn heillaði mig alltaf þótt sjóveikur væri en síðar
keyptum við nokkrir félagar seglskútuna Uglu í Svíþjóð
sem nú er komin til Akureyrar. Uglu var siglt um
Danmörku og Noreg nokkur sumur en síðan til Íslands.
Það er enn minnisstætt þegar ég svo kom frá Vest fjörðum á
Uglu til Siglufjarðar, að snemma morguns í brakandi blíðu
og sól var rennt inn fjörðinn. Síðar fórum við með Uglu í
Miðjarðarhafið og gerðum út frá Majorka.
Síðar eignaðist ég hlut í mun stærri skútu 50 feta EVA IV
sem við gerðum út frá Slóveníu og Króatíu. Þá var enn eitt
ævintýrið að sigla um eyjarnar á Adríahafinu. Eftir hrun
var skútan seld. Lengi átti ég kajak og á enn.
Háholti 7, 270 Mosfellsbæ
Siglfirðingar ávallt velkomnir. S: 566 8822
Albert S. Rútsson
Endurskoðun | Skattur | Ráðgjöf
Ernst & Young ehf. Borgartúni 30, 105 Reykjavík
ey.is