Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - maj 2022, Side 20

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - maj 2022, Side 20
Siglfirðingablaðið20 Mats Wibe Lund var í síldinni árið 1956 Mats Wibe Lund þarf vart að kynna fyrir Íslendingum. Myndir hans og þjóðin hafa verið samofin í áratugi. Á Cessnu Skyhawk hefur hann flogið vítt og breitt um landið og myndað alla helstu þéttbýlisstaðina. Mats varð 85 ára um daginn og við höfðum spurnir af Siglufjarðarferð hans 1956. Hann brást vel við að lána myndir og sagði jafnframt að hann hefði komið hér í síldina og að vinna það sem bauðst. Ferðin með Búdda norður var viðburðarík. Með í förinni var Hafnfirðingurinn, Bjarni Guðmundsson, sem gekk undir listamannanafninu Barrelhouse Blacky. Hann kom fram í gervi negra og söng rokklög. Skemmti í Alþýðuhúsinu í þessari ferð. Mats gisti þetta sumar í Sjómannaheimilinu eldra þar sem lengi var fiskbúð Eysteins og Abbýjar. Hann fékk fljótlega vinnu við að mála þakið á ferlíkinu sem gengur undir nafninu Mjölhúsið. Ekki tókst betur til en það að hann steig á stiga sem var laus og rúllaði fram af þakinu með málningarföturnar í fossi yfir sig! Hann var svo leiddur eins og bronsaður geimfari gegnum bæinn og settur í hendurnar á líklega Rögnu Bachman sem þvoði hann upp úr efni, sem hefur haldið honum glansandi fínum síðan! Mats var svo við uppgröft við Skálholt með Jökli Jakobssyni ofl. Með Jökli og fleirum tók hann sér á hendur ferð norður í Mývatnssveit og var svo heillaður í Gjástykki að hann gætti ekki að sér og steig í hitahver, kippti upp löppinni og steig í annan hver með hinn fótinn. Honum var komið í aðhlynningu í Reynihlíð þar sem húsfreyjan tók olíudúk af eldhúsborðinu og klippti niður og bjó um og þaðan fór hann til Húsavíkur. Þá segist Mats hafa verið kominn það austarlega að hann hafi afráðið að halda áfram. Þegar hann kom í Lónið að bænum Krossi þá var honum tjáð að allar ár væru ófærar enda óbrúaðar. Þegar hann segir gömlu hjónunum hrakfallasögur sínar tóku þau ekki annað í mál en að hann svæfi í hjónarúminu en bjuggu sjálf um sig í eldhúsinu! Mats kom hingað ungur maður og starfaði sem frétta­ ritari margra blaða og tímarita í Skandinavíu. Hann kynntist konu sinni Arndísi Ellertsdóttur (1938­2015), geðhjúkrunarfræðingi. Þau kynntust í Osló og fluttu hingað og giftu sig 1966. Siglfirðingablaðið þakkar Mats fyrir myndirnar og spjallið og sendir þessum geðþekka Nossara glansandi bronskveðjur! Gaman að sjá þessa mynd af Siglufjarðarprentsmiðjuhúsinu með sínum bogadregnu gluggum og Sjómannaheimilinu.

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.