Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - maj 2022, Qupperneq 26

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - maj 2022, Qupperneq 26
Siglfirðingablaðið26 Ásdís Jóna Sigurjónsdóttir er fædd á sjúkrahúsinu á Siglufirði 26.8.1984. Foreldrar mínir eru Guðrún Kjartansdóttir og Sigurjón Jens Erlendsson, ég á tvo eldri bræður Guðmund Einar og Kjartan, ég er því örverpið í fjölskyldunni. Ég æfði gott sem allt sem hægt var að æfa á Sigló með misgóðum árangri þó. Heppin að hafa pabba sem þjálfara í fótboltanum, þó okkur hafi ekki alltaf samið í hita leiksins. Vann ýmis störf, Elín og Kobbi tóku við mér þegar það var verkfall í skólanum og var sá tími mjög skemmtilegur. Ég vann líka hjá Bás nokkur sumur. Sá tími er mér mjög dýrmætur, enda fékk ég að vinna ýmiskonar störf, hvort sem það var að draga í steypu á bryggjunni eða græða upp Stóra Bola. Ég kláraði mína grunnskólagöngu á Sigló og fór síðan í FNV í nokkrar annir, kláraði síðan framhaldsskólann í Ármúla í Reykjavík. Eftir útskrift fór ég til Austurríkis í nokkra mánuði áður en ég byrjaði í Háskóla Íslands í stjórnmálafræði. Eftir stjórnmálafræðina fór ég síðan í meistaranám í opinberri stjórnsýslu og skilaði ritgerðinni minni loksins inn 2019. Í dag starfa ég hjá BL bílaumboði. Í höfuðið á hverjum heitir þú? Ég heiti í höfuðið á tveimur æðislegum konum Ásdísi Kjartansdóttur systur mömmu (Nöfnu) og Jónu Þuríði Guðmundsdóttur systur afa. Maki? Atli Björn E. Levy. Bifreið? Land Rover Discovery 4 Fyrsti bíllinn? Fór ekki að skilja bíl fyrr en ég fór að vinna hjá BL, þannig að það er engin leið fyrir mig að muna það. Fallegasta land sem þú hefur ferðast til? Sviss og þá sérstaklega svæðið í kringum Genfarvatn. Algjör paradís. Mesta gleði í lífinu? Stelpurnar mínar. Mestu vonbrigðin? Öll þau skipti sem ég datt í brautinni á skíðum. Besta bók? Skuggar vindsins. Besta plata? Eina sem mér dettur í hug er Shore með Fleet Foxes. Hvað myndir þú gera ef þú yrðir ósýnileg einn dag? ­ Fara upp á heiði og skjóta í matinn. ­ Fara í kastalann og ná í allt gullið. ­ Laumast inn á löggustöð og taka hattinn af öllum löggunum. Svipmynd: Ásdís Jóna Sigurjónsdóttir

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.