Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - May 2022, Page 27

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - May 2022, Page 27
Siglfirðingablaðið 27 Áhugamál? Þau eru nokkur, en það er kannski aðallega útivera, hlaup og labb. Finnst samt fátt skemmtilegra en að fara á skíði og gleyma mér. Hlakka til þegar stelpurnar mínar verða orðnar sjálfbjarga í brekkunni, þannig að ég geti skilið þær eftir og farið mína leið. Helsti veikleiki og helsti kostur? Er með mjög sterka réttlætiskennd sem getur verið erfitt að eiga við. Myndi ekki vilja vera án hennar. Uppáhaldsmatur? Lambalærissneiðar í raspi hjá mömmu. Uppáhaldsdrykkur? Mexikó lime kristall. Uppáhaldsfréttamiðill? Það er meira af vana en einhverju öðru sem ég fer inn á fréttamiðla. Finnst þetta allt vera eins og því enginn einn uppáhalds. Versti matur? Hákarl – þó ég hafi borðað hann eins og smarties þegar ég var lítil Uppáhalds tónlist? Má segja að ég sé alæta, en er á sama tíma gömul sál þegar kemur að tónlist og finnst því ekkert slæmt að setja gamla plötu með Ellý Vilhjálms á fóninn. Uppáhaldsíþróttamaður? Sterkir karakterar sem þora að taka afstöðu. Í gamla daga þá fannst mér Roy Keane vera maðurinn. En núna væri það eflaust Simon Biles, Sara Björk og Naomi Osaka. Besta kvikmynd? The Blind side Besti leikari og besta leikkona? Á ekki svoleiðis. Verst í fari annarra? Öfundsýki og hroki. Best í fari annarra? Samkennd og að viðkomandi komi hreint fram. Uppáhaldsfélag í íþróttum? Skytturnar frá Siglufirði. Fallegasti maður fyrir utan maka? David Beckham. Uppáhaldssjónvarpsefni? The Queen’s Gambit. Af Aðalfundinum. Rakel frænka með dætur Ásdísar, Valdísi Unni og Heiðdísi Birnu. Alli Rúts: Siglfirski braskarinn, skemmtikrafturinn og prakkarinn nú á storytel Saga Alla Rúts er óvenjuleg • Lesblindur drengur flosnar upp úr námi á Siglufirði og verður mesti braskari landsins, rekur stærstu bílasöluna, flytur út hesta í tugatali og kemur sér bæði í og úr vandræðum • Sprúttsali festir tappana ekki vel. • Þekktur danskennari hrekktur • Jeppi er pikkfastur í Meyjarhafti • Tunnu- verksmiðjan brennur • Rangur brandari er sagður á réttum stað. Hér er skyggnst inn í heim sem fáir þekkja til – heim Alla Rúts, sem fékk ódrepandi sjálfstraust og dugnað í vöggugjöf og lætur ekkert buga sig. Hér í frábærum lestri Hinriks Ólafssonar. Höfundur: Helgi Sigurðsson

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.