Fréttablaðið - 14.06.2022, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 14.06.2022, Blaðsíða 30
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Andrés Bertelsen andres@frettabladid.is, Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/ SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is Sem dansari hefur maður alltaf trúað því að þetta sé mjög mikil- væg listgrein. Erna Ómarsdóttir danshöfundur www.husgagnahollin.is Sími: 558 1100 YORK Borðstofustóll. Svart eða brúnt gervileður eða grátt áklæði. Nú 18.893 kr. 26.990 kr. RICHMOND Borðstofuborð með fiskibeinamynstri. Olíuborin eik. Ø120 cm. Nú 59.994 kr. 99.990 kr. 25% AF MEDUSA BLUE KLINT 3ja sæta sófi. Olíuborin eik og svart bonded leður. 193 x 81 x 80 cm. Nú 351.992 kr. 149.990 kr. PARIS Hornsófi með hægra eða vinstra horni. Appelsínugult eða grænt áklæði. 247 x 195 x 92 cm. Nú 202.493 kr. 269.990 kr. Verð og vöru upp lýsingar í auglýs ingunni eru birtar með fyrirvara um prentvillur. ÚTSALA SUMAR Íslensku sviðslistaverðlaunin sem kennd eru við Grímuna verða afhent í Þjóðleikhúsinu í kvöld þar sem dansinn mun duna sem aldrei fyrr, enda er Íslenski dansflokkurinn með fimmtán tilnefningar. Þetta er metfjöldi hjá dansflokknum, sem er meðal annars með tvær af þeim fjórum sýning­ um sem tilnefndar eru sem sýning ársins. toti@frettabladid.is Grímuverðlaunin, uppskeruhátíð sviðslistafólks, bera með sér að Íslenski dansflokkurinn á grósku­ mikið ár að baki en samtals hlýtur f lokkurinn fimmtán tilnefningar til verðlaunanna sem verða afhent í kvöld. Þar af á dansflokkurinn tvær af þeim fjórum sýningum sem eru tilnefndar sem sýning ársins; Ball, eftir Alexander Roberts og Ásrúnu Magnúsdóttur, og AIŌN, eftir Önnu Þorvaldsdóttur og Ernu Ómars­ dóttur, sem einnig er með tvær til­ nefningar sem danshöfundur ársins fyrir AIŌN og Rómeó <3 Júlía. „Það er mjög gaman. Við eigum það líka alveg skilið,“ segir Erna hlæjandi og bendir á að henni finnist fólk undanfarið hafa verið að átta sig betur á mikilvægi dansins sem sviðslistargreinar. Gefandi gróska „Það er allavega búið að vera mjög gefandi að sjá gróskuna í sköpun­ inni vegna þess að sem dansari hefur maður alltaf trúað því að þetta sé mjög mikilvæg listgrein og það er alltaf gaman að fá viðurkenn­ ingu fyrir það.“ AIŌN var sett upp í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Íslands og er Anna Þorvaldsdóttir tilnefnd fyrir bestu tónlistina. Rómeó <3 Júlía er með fjórar Grímutilnefn­ ingar; fyrir danshöfunda ársins, búninga ársins og tvær tilnefn­ ingar í f lokknum dansari ársins. Sýningin hlaut einnig tilnefningu til FAUST verðlauna árið 2019 í uppsetningu Gärtnerplatz leik­ hússins í München. Auk þess að vera tilnefnd sem sýning ársins er Ball einnig til­ nefnd fyrir danshöfund ársins, búninga ársins og dansara ársins, en í þeim flokki er Emilía B. Gísla­ dóttir með tvær tilnefningar þar sem hún er einnig tilnefnd fyrir frammistöðu sína í Hvíla sprungur. Falleg verkefni Íslenski dansf lokkurinn hefur verið á f leygiferð í sýningarferðum og sýndi í vor meðal annars fimm sinnum í Noregi, tvisvar á Spáni og tvisvar í Þýskalandi. Einnig tók dansflokkurinn þátt í samstarfs­ verkefninu Orpheus + Eurydice með Theater Freiburg sem var frumsýnt fyrir jól. „Þegar maður lítur til baka er maður kannski aðallega stoltur yfir því hversu miklu var áorkað á árinu. Ekki síst miðað við alla erfiðleikana vegna Covid. Þetta var frjósamt ár þrátt fyrir allt og ég held við höfum gert góða hluti. Falleg og mjög ólík verkefni.“ Ekkert lát verður á sýningar­ ferðum dansf lokksins í nánustu framtíð en um helgina sýnir dans­ f lokkurinn hið sígilda verk Black Marrow, eftir Ernu og Damien Jalet, á Mannheimer Sommer­ hátíðinni í Þýskalandi. Ferðinni verður svo haldið áfram með hið grímutilnefnda verk AIŌN á Arc­ tic Arts­hátíðina í Noregi í lok mánaðarins. n Margar Grímutilnefningar renna á Dansflokkinn Íslenski dansflokkurinn var á fullu við æfingar í gær, enda frekari ferðalög fram undan. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Grímutilnefningar Íslenska dansflokksins 2022 Sýning ársins n AIŌN - eftir Ernu Ómarsdóttir og Önnu Þorvaldsdóttur. n BALL - eftir Alexander Roberts og Ásrúnu Magnúsdóttur. Leikmynd ársins nJúlíanna Lára Steingrímsdóttir fyrir Hvíla sprungur. Búningar ársins nErna Guðrún Fritzdóttir fyrir BALL. nKaren Briem og Sunneva Weisshappel fyrir Rómeó <3 Júlía. Lýsing ársins nPálmi Jónsson fyrir Hvíla sprungur. Tónlist ársins nAnna Þorvaldsdóttir fyrir AIŌN. Dansari ársins n Emilía B. Gísladóttir fyrir BALL og Hvíla sprungur. nSaga Sigurðardóttir fyrir Rómeó <3 Júlía. nShota Inoue fyrir Rómeó <3 Júlía. Danshöfundur ársins nErna Ómarsdóttir fyrir AIŌN. nAlexander Roberts og Ásrún Magnúsdóttir fyrir BALL. nErna Ómarsdóttir og Halla Ólafsdóttir fyrir Rómeó <3 Júlía. nInga Maren Rúnarsdóttir fyrir Hvíla sprungur. 18 Lífið 14. júní 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.