Fréttablaðið - 14.06.2022, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 14.06.2022, Blaðsíða 2
Ég held að við þurfum að minna fólk á þetta sé ekki búið. Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir Undirbúa hvalveiði sumarsins Hvalveiðiskipið Hvalur 9 heldur út á sjó til þess að stilla kompásinn. Verið er að undirbúa túra sumarsins eftir langt hlé á hvalveiðum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Þórólfur Guðnason sótt- varnalæknir segir Covid- faraldurinn ekki búinn og hvetur alla til að sinna áfram sóttvörnum og þiggja bólu- efni. Í gær lágu þrettán manns á Landspítala með sjúkdóm- inn, þar af einn á gjörgæslu. birnadrofn@frettabladid.is COVID-19 Enn greinast daglega um 150–200 einstaklingar með Covid- 19 hér á landi og að meðaltali eru tekin um þúsund sýni. Í gær lágu þrettán sjúklingar með sjúkdóminn inni á Landspítala, þar af voru ellefu í einangrun og einn á gjörgæslu. 153 andlát vegna Covid höfðu á föstudaginn verið skráð hérlendis. Þórólfur Guðnason sóttvarna- læknir segir stóran hluta þeirra sem greinast með Covid hér á landi ferðamenn eða fólk sem ekki er búsett hérlendis, suma daga fari hlutfall þeirra upp í 50 prósent þeirra sem greinast. „Við vitum ekki nákvæmlega hvaða fólk þetta er en líklegast eru þetta mikið Bandaríkjamenn, sem eru mikil uppistaða í ferða- mennsku hér og þeir hafa þurft að sýna fram á neikvætt próf við komuna heim en sú regla var þó afnumin þann 12. júní,“ segir Þór- ólfur. Hann segir þó að hópurinn sem er að greinast með Covid nú sé fjöl- breyttur en algengast sé að fólk sé að smitast í fyrsta sinn. „Við fylgj- umst náið með endursmitum en þau eru sjaldgæf,“ segir Þórólfur og bætir við að um 20 prósent þeirra sem eru að greinast séu með BA5 af brigðið sem greindist fyrst hér á landi í maí. „Sem betur fer eru ekki margir að veikjast alvarlega þótt það ein- hverjir á spítala og einn á gjör- gæslunni. Þetta er bara enn þá með okkur og faraldurinn er ekki búinn,“ segir Þórólfur. Hann hvetur alla til að þiggja bóluefni og þá sem eru með undir- liggjandi sjúkdóma eða hafa náð áttræðisaldri hvetur hann til að þiggja fjórðu sprautuna. „Sjúk- dómurinn er klárlega miklu vægari hjá bólusettum en óbólusettum,“ segir Þórólfur. „Læknar sem taka á móti þessum sjúklingum, sjá þá og fást við þá, segjast sjá greinilegan mun þarna á milli og það getur enginn greint það betur þó að einhverjir úti í bæ sem hafa aldrei komið nálægt Covid- sjúklingum hafi aðra skoðun á því,“ bætir Þórólfur við. Samkvæmt tölum á vefsíðunni Covid.is, sem uppfærðar voru síðastliðinn föstudag, hafa 50,5 prósent íbúa landsins greinst með Covid-19. Tíðni endursmita er 2,2 prósent. Þórólfur segir að þrátt fyrir að hlutfall þeirra sem hafa smitast sé hátt sé mikilvægt að fólk sinni enn persónubundnum sóttvörnum. „Ég held að við þurfum að minna fólk á að þetta sé ekki búið. Við hvetjum fólk sem er með Covid til að halda sig til hlés í fimm daga og vera ekki á meðal fólks til að minnka líkur á útbreiðslu og við hvetjum fólk til að gæta vel að sótt- varnaráðstöfunum sem við þekkj- um svo vel,“ segir Þórólfur. ■ Fjöldi fólks smitast enn og veikist af Covid hér á landi Mörg þeirra sem greinist með Covid eru ferðamenn. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR Steinhella 17a / 221 Hafnarfjörður / s. 577 5050 / www.gluggasmidjan.is gæða veka PLaSTgLuggar • Útlit eins og timburgluggar • Henta mjög vel í gluggaskipti! • Þarf ekki að skrapa og mála eins og timburglugga! Gott verð og stuttur afhendingartími! kristinnhaukur@frettabladid.is MENNING Íslenska rokkhljómsveitin Sigur Rós mun vera með tónlist í nýjum tölvuleik um Múmínálfana. Leikurinn heitir Snufkin: Melody of Moominvalley og er gefinn út af fyr- irtækinu Hyper Games. Leikurinn kemur út á þessu ári bæði á leikja- veitunni Steam sem og á Playstation og Xbox. Í leiknum verða lög af plötunni () frá árinu 2002. Einnig verða nýjar útgáfur af lögum Sigur Rósar sem tónlistarmaðurinn Oda Tilset hefur blandað. „Við viljum að leikurinn sé mjög norrænn og Sigur Rós spilar þá nor- rænustu tónlist sem ég veit um,“ sagði Are Sundnes, hinn norski stjórnarformaður Hyper Games, í tilkynningu. Múmínálfarnir voru skapaðir af hinni finnsku Tove Jans- son. ■ Sigur Rós verða í Múmínálfaleik Sigur Rós hefur í nógu að snúast. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR birnadrofn@frettabladid.is VIÐSKIPTI Velta íslenskra greiðslu- korta erlendis nam í apríl síðast- liðnum 21,5 milljörðum króna og hefur ekki verið hærri frá upphafi mælinga sem hófust árið 1997. Í nýliðnum maímánuði nam kortavelta Íslendinga hér á landi tæpum 87,7 milljörðum og jókst hún um 8,6 prósent á milli ára. Mest aukning í innlendri kortaveltu var í kaupum á þjónustu en í maí greiddu Íslendingar 41,1 milljarð fyrir þjón- ustu með kortum. Það er 20 prósent- um meira en í sama mánuði í fyrra. Kortavelta erlendra ferðamanna hérlendis nam nítján milljörðum í maí og jókst um 35 prósent á milli mánaða. Rúm 37 prósent erlendrar kortaveltu hér á landi var á ábyrgð ferðamanna frá Bandaríkjunum. Þjóðverjar koma næstir með 7,6 pró- sent og því næst Bretar, 7,1 prósent kortaveltu. ■ Íslendingar hafa aldrei eytt meira í útlöndum en nú emd@frettabladid.is SAMFÉLAGSMÁL Lúsmý herjar nú á landsmenn í þremur landshlutum, Vesturlandi, Suðurlandi og Norður- landi. Gísli Már Gíslason skordýra- fræðingur segir lúsmýið aðeins fyrr á ferðinni í ár en áður. „Við tölum venjulega um að þetta komi um miðjan júní og sé út ágúst, en það er augljóst að lúsmýið er að koma einhverjum dögum fyrr.“ Hann segir mikilvægt að gleyma ekki bitmýinu. „Fólk ruglar oft þessu tvennu, lúsmýi og bitmýi. Bitmýið er mjög sjáanlegt. Það er tíu millimetrar að lengd og sækir mikið í andlit, er ágengt og mjög pirrandi. Lúsmýið verður maður ekki var við. Það er einn og hálfur millimetri að lengd. Maður sér það varla,“ segir Gísli. Nánar á frettabladid.is. ■ Lúsmý og bitmý herja á landann 2 Fréttir 14. júní 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.