Fréttablaðið - 14.06.2022, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 14.06.2022, Blaðsíða 4
Það veit enginn hvern­ ig á að nota það, því það hefur ekkert verið fjallað um það. Íris Guðnadóttir, landeigandi við Reynisfjöru Ég er ekki til búinn að taka undir það að Vinstri græn séu hætt að vera ein hver náttúru verndar­ flokkur. Kári Gautason, varaþingmaður Vinstri grænna ser@frettabladid.is ORKUMÁL Sala á eldsneyti á fyrsta ársfjórðungi 2022 var átján pró­ sentum meiri en á sama tíma á síðasta ári, að því er nýjar tölur Hag­ stofunnar bera með sér. Eldsneytissalan fyrstu tvo mán­ uði ársins var þó áberandi minni en sala á þeim tíma á fyrri árum, enda var mikið um lokanir vegna uppgangs kórónaveirufaraldursins á þeim tíma. Greitt var fyrir hálft fimmta pró­ sent af sölunni 2022 með erlendum greiðslukortum, en hlutfallið var innan við eitt prósent á fyrsta árs­ fjórðungi árið á undan. n Sala á eldsneyti hefur stóraukist Verð á bensíni hefur hækkað mikið. ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 590 2300 OPIÐ VIRKA DAGA 10-17 • LOKAÐ Á LAUGARDÖGUM Í SUMAR 100% RAFMÖGNUÐ ÍTÖLSK HÖNNUN Hvað nærðu að gera á fimm mínútum? Það tekur Fiat 500e aðeins fimm mínútur í hraðhleðslu að ná 50km akstursdrægni. Fiat 500e sameinar gæði og tímalausa ítalska hönnun sem hentar vel fyrir þá sem þurfa að komast örugglega á milli staða innanbæjar. Með 3+1 hurðum og allt að 433 km drægni FIAT.IS birnadrofn@frettabladid.is UMHVERFISMÁL Á síðasta ári sendi Lyfja 10.093 kíló af lyfjum, spraut­ um og nálum í örugga eyðingu, það er 5 prósentum meira en ári fyrr. Karen Ósk Gylfadóttir, sviðsstjóri hjá Lyfju, segir aukningu í öruggri eyðingu lyfja mikil gleðitíðindi. Örugg eyðing lyfja sé mikilvæg fyrir umhverfið. „Lyf geta valdið skaða á umhverf­ inu og mega aldrei fara í rusl, vask eða klósett,“ segir Karen. „Við höfum lagt áherslu á þetta undanfarið með því að stilla fram lyfjaskilakössum í apótekum Lyfju sem minna viðskiptavini á mikil­ vægi þess að sýna ábyrgð og skila lyfjum til eyðingar á réttan hátt.“ n Eyddu tíu þúsund kílóum af lyfjum Stillt hefur verið fram lyfjaskilaköss- um í apótekum Lyfju MYND/AÐSEND Auður Önnu Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Land­ verndar, segir að vinnubrögð meirihluta umhverfis­ og samgöngunefndar séu ófagleg. Kári Gautason, varaþingmað­ ur Vinstri grænna, segir nátt­ úruvernd enn aðaláherslumál flokksins. bene diktarnar@fretta bladid.is R A M M A Á Æ T L U N M e i r i h l u t i um hverfis­ og sam göngu nefndar sam þykkti um helgina breytingar­ til lögu þar sem lagt er til að virkjana kostir sem áður voru ýmist í nýtingar­ eða verndar flokki verði færðir í bið f lokk og rann sakaðir betur. Verk efna stjórn er klofin vegna málsins og ein hverjir hafa gagn­ rýnt Vinstri græna, sem eiga að vera flagg skip náttúru verndar á Ís landi, fyrir að styðja breytingarnar. Kári Gauta son, vara þing maður Vinstri grænna, segir að flokkurinn sé ekki hræddur við að takast á við erfið mál og leysa þau. Hann er ó sam mála því að Vinstri græn séu hætt að vera náttúru verndar flokkur. „Ég er sam þykkur því að af greiða þetta mál með þessum hætti og styð niður stöðu meiri hluta um­ hverfis­og sam göngu nefndar. Ég skil jafn framt gagn rýnina, því þetta eru oft og tíðum afar mikil til finninga­ mál þegar verið er að ræða virkjanir á þessum við kvæmu svæðum. Ég sýni þeim sjónar miðum mikla sam­ kennd. Ég er ekki til búinn að taka undir það að Vinstri græn séu hætt að vera ein hver náttúru verndar­ flokkur. Það er ekki þannig að mínu viti,“ sagði Kári. Hann segir að það sé í höndum Al þingis að taka loka á kvörðun um málið. „Ef það hefði verið hugsunin frá upp hafi að ein hver annar ætti að taka loka á kvörðun þá hefðu lögin Ó sætti með nýja ramma á ætlun verið skrifuð á annan veg. Ég styð þessa niður stöðu og mun tjá mig um hana með at kvæðinu mínu þegar að því kemur.“ Auður Önnu Magnús dóttir, fram­ kvæmdastjóri Land verndar, segir að verk efna stjórn hafi engar rann­ sóknir eða gögn sem styðji þessa á kvörðun. Hún segir vinnu brögðin ó fag leg. „Á kvarðanirnar eiga að vera teknar út frá fag legum for sendum og það þurfa að vera vísinda leg gögn á bak við það sem styður á kvarðanirnar. Meiri hlutinn kemur ekki með nein gögn til þess að styðja þessar á kvarðanir sínar. Það er virki­ lega ó fag legt,“ segir Auður. Hún segir að það verði að taka á kvarðanir út frá rann sóknum og gögnum sem hafa var úðar sjónar mið gagn vart náttúrunni að mark miði. „Það er búið að fara fram mat sem er auð vitað gallað að mörgu leyti og ramma á ætlun er ó full­ komin. Það er margt sem við myndum vilja gera öðru vísi,“ segir Katrín. Hún biður alla þing menn nú um að standa vörð um náttúru Ís lands og sam þykkja ekki til færslurnar. „Það að gera breytingar á ein­ hverju sem skiptir Ís lendinga miklu máli. Hvaða náttúru perlur á að eyði leggja og hverjum á að hlífa? Að koma fram með slíkar breyt­ ingar á þessari þings á lyktunar­ til lögu á laugar degi, þegar á að af greiða málið á þriðju degi eða mið viku degi, er mjög ó lýð ræðis­ legt og gefur okkur ekki tæki færi til þess að ræða hvað er raun veru lega í húfi eða kynna þing mönnum hvað þetta þýðir í raun og veru.“ n Urriðafossvirkjun er ein af þeim virkjunum í neðri hluta Þjórsár sem á að færa úr nýtingu í biðflokk. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK thorgrimur@frettabladid.is SUÐURLAND Framkvæmdasjóður ferðamannastaða hefur sett til hlið­ ar 20 milljónir króna síðan 2016 til þess að þróa spákerfi um öldugang í Reynisfjöru. Það hefur hins vegar ekki nýst sem skyldi. „Það er hægt að finna þetta spá­ kerfi á heimasíðu Vegagerðarinnar, en það eru engar leiðbeiningar um hvernig á að nota það eða hvernig það getur nýst fólki í f jörunni,“ segir Íris Guðnadóttir, landeigandi við Reynisfjöru. „Það veit enginn hvernig á að nota það, því það hefur ekkert verið fjallað um það. Þetta er bara einhver grænn, gulur, rauður áhættustuðull, en hann segir ekk­ ert um aðstæðurnar í fjörunni,“ segir hún. Umræða um öryggisráðstafanir í Reynisfjöru hefur tekið sig upp að nýju eftir að banaslys varð þar á föstudaginn síðasta þegar öldurnar hrifsuðu erlendan ferðamann á átt­ ræðisaldri í sjóinn. Þetta er fimmta banaslysið á sjö árum. Íris segir stjórnvöld skýla sér bak við stofnun starfshópa og gerð áhættumata. Áhættumat í Reynis­ fjöru hafi verið í vinnslu í þrjú ár. Íris þvertók aftur fyrir að hún eða aðrir landeigendur hefðu staðið í vegi öryggisráðstafana. Í nóvember hafði hún borið af sér ásakanir þess efnis af hálfu verkefnastjóra Lands­ bjargar og líkti þeim við „blauta tusku“. Nánar á frettabladid.is.n Segir lítið gagn af ölduspákerfi í Reynisfjöru 4 Fréttir 14. júní 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.