Fréttablaðið - 14.06.2022, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 14.06.2022, Blaðsíða 12
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Oddný Silja Friðriksdóttir er ljósmóðurfræðinemi og þriggja barna móðir sem stýrir Facebook- hópnum Umhverfisvænar brúð- kaupshugmyndir. Oddný ætlaði sjálf fyrst að gifta sig árið 2020, en svo kom heimsfaraldur sem hefur stoppað þær áætlanir. „Svo núna erum við komin í 2022 og erum með einn fjögurra mánaða dreng, þannig að brúð- kaupið frestast um alla vega eitt ár í viðbót, en við erum með óná- kvæmt plan um að þetta gerist á næstu 2–3 árum,“ segir hún. „Áður en við settum allt á ís vorum við bara búin að kaupa boðskort og við ætlum að sjálfsögðu að halda okkur við að nota þau, því annað væri óumhverfisvænt. Ég er reyndar líka komin með smávegis skraut, því ég tíndi blóm sem ég þurrkaði og ætla að nota í borð- skraut.“ Allt er betra en ekkert „Það er svo margt sem við gerum í daglegu lífi sem er óumhverfis- vænt, mörgu er ekki hægt að komast hjá, en þetta er dagur sem ég vil að snúist um að fagna okkar ást, sambúð og börnum og það sé minni áhersla á neysluhlutann og meiri áhersla á það sem skiptir í raun máli, sem er samvera með okkar nánustu,“ segir Oddný. „Ég komst að því að það er brjáluð neysla sem fylgir þessum dögum og það eru fjöldamörg brúðkaup yfir árið, svo ég held að kolefnisfót- spor þeirra sé ansi stórt og í dag er kominn tími til að reyna að hugsa meira um umhverfið. Ég ætla að hafa brúðkaupið eins umhverfisvænt og ég mögulega get. Auðvitað er aldrei hægt að gera það alveg 100% umhverfisvænt, en allt er betra en ekkert. Ákveðnar veitingar verða alltaf óumhverfis- vænar og svo þarf fólk líka að komast á staðinn, en við ætlum að hafa brúðkaupið fyrir utan höfuð- borgina,“ segir Oddný. „En ég ætla ekki að nota einnota borðbúnað og útrýma plasti eins og ég get.“ Blöskraði plastnotkunin „Þegar ég byrjaði að skoða skreytingar fyrst tók ég eftir því hvað þetta var allt svo svakalega dýrt, einnota og oft innflutt frá Kína, svo þetta er ótrúlega óum- hverfisvænt,“ segir Oddný. „Mér óx það mjög í augum að ætla að fara að fylla sal af einnota plasti sem væri svo bara hent eftir einn dag. Ef það verður eitthvert plast væri mjög gaman að geta fengið það lánað og reyna að finna þess háttar lausnir. Ég var að hugsa um að fara í Góða hirðinn og kaupa krukkur og blómavasa fyrir blómin og góðar konur ætluðu að hekla utan um einhverjar krukkur úr aukagarni sem fellur til,“ segir Oddný. „Ég hef líka ætlað mér að nota þurrkuð laufblöð og berjalyng til að kasta yfir brúðhjónin, í staðinn fyrir lit- ríkt plast eða eitthvað slíkt. Þá þarf ekkert að þrífa það, það brotnar bara niður. Ég var jafnvel að hugsa um að nota eitthvað svipað fyrir borðskraut líka. Ég var líka byrjuð að skoða kjóla en mig langar mikið að kaupa hann notaðan. Mér finnst rosa skrítið að kaupa kjól fyrir allt að hálfa milljón, jafnvel sérsaumaðan, og nota hann svo bara í einn dag,“ segir Oddný. „Fatahönnuðurinn Eyrún Birna stakk líka upp á því í hópnum að fólk kæmi til hennar með fallegt efni að heiman til að sauma kjól úr, svo hann væri umhverfisvænni. Svo var ein frænka mín að hekla fjölnota veifur til að hengja upp sem ég get fengið lánaðar og það er aldeilis frábært að fá að nýta þær,“ segir Oddný. „Síðan ætlaði ég bara að reyna að fá sem mest lánað og föndra. Það er líka um að gera að reyna að nýta eitthvað úr náttúrunni og búa til dæmis til heimagerðan Oddur Freyr Þorsteinsson oddurfreyr @frettabladid.is Oddný segist hafa áttað sig á því að brúðkaupum fylgi mikil neysla og þar sem þau séu fjöldamörg yfir árið sé um að gera að reyna að gera þau sem umhverfisvænust. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Oddný ætlar að nota þurrkuð laufblöð og berjalyng til að kasta yfir brúð- hjónin. FRÉTTABLAÐIÐ/ GETTY vönd, það eru til ótal slíkar hug- myndir, það er þess vegna hægt að gera hann úr gamalli bók,“ segir Oddný. „Svo er líka gott að reyna að fá allt innanlands sem hægt er.“ Umhverfisvænt líf er einfaldara „Þegar ég fór að hugsa um að reyna að gera þetta umhverfisvænna fannst mér eiginlega einfaldara að sleppa því að kaupa hluti eins og hægt er, það sparar bæði áhyggjur og tíma. Það er nógu mikið annað sem þarf að hugsa um. Það þarf að ákveða hvernig athöfnin á að vera, hve löng hún á að vera, hvernig mat á að kaupa, hvernig skemmti- atriði á að hafa og allt þetta sem skiptir raunverulega máli,“ segir Oddný. „Það fylgir því líka óþarfa andlegt áreiti að ætla að fara að kaupa flottustu skreytingarnar og flottasta kjólinn, sem setja ekki sitt mark á daginn. Fólk man miklu frekar eftir athöfninni og slíkum hlutum. Upphaflega var það líka hug- myndin að aðalatriðið væri samvera með fólkinu manns og að hafa fallegan sal. Við vorum búin að leigja okkur sal í Kjós og okkur langar að hafa þetta tveggja daga brúðkaup svo fólk geti verið með okkur á staðnum í smá tíma,“ segir Oddný. „Hugmyndin er að daginn fyrir brúðkaupið sjálft förum við og gestirnir saman að tína blóm og búum jafnvel til krans á höfuðið. Það er ótrúlega skemmtileg sam- vera sem fylgir því. Ég ætla líka að fara með börnunum að Vífils- staðavatni og finna plöntur til að skreyta með, sem verður líka skemmtileg samvera.“ Vantaði íslenskan vettvang fyrir þessa umræðu „Ég ákvað að stofna Facebook-hóp- inn Umhverfisvænar brúðkaups- hugmyndir því mér datt í hug að reyna að hafa mitt brúðkaup umhverfisvænna en mér fannst mörg brúðkaup sem ég sá á netinu og ýmsum sölusíðum virðast vera. Það var mikið af skemmtilegum hugmyndum á Pinterest, en lítið af umræðuhópum um þetta á Íslandi og mér fannst þennan vettvang vanta,“ segir Oddný. „Hugmyndin var bæði að það gætu skapast umræður og nýjar hugmyndir gætu komið fram, og að fólk gæti jafnvel skipst á hlutum í gegnum þennan hóp og bæði gefið, lánað eða selt hluti sem það hefði notað í sínu brúðkaupi. Hópurinn var líflaus í Covid, en ég sé að hann hefur verið að lifna aftur við, það eru að koma fleiri innlegg og hugmyndir,“ segir Oddný. „Síðast þegar ég kíkti voru um 100 manns í hópnum en núna eru beiðnir um að vera með að koma inn og meðlimir eru orðnir rúmlega 400. Það er gaman að það sé að lifna yfir honum.“ n Þetta er dagur sem ég vil að snúist um að fagna okkar ást, sambúð og börnum og það sé minni áhersla á neyslu- hlutann. Oddný Silja Friðriksdóttir 2 kynningarblað A L LT 14. júní 2022 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.