Fréttablaðið - 27.07.2022, Page 8

Fréttablaðið - 27.07.2022, Page 8
Forsætisráðherra segir að huga þurfi að þjóðaröryggi þegar kemur að erlendri fjár- festingu en á sama tíma sé mikilvægt að vera ekki með óþarfa hömlur. Aðstoðar- framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir það nei- kvætt að erlend fjárfesting hafi farið minnkandi. magdalena@frettabladid.is Í samráðsgátt stjórnvalda liggur nú fyrir áformaskjal um rýni á erlend- um fjárfestingum vegna þjóðar- öryggis og allsherjarreglu. Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra segir í samtali við Markaðinn að ástæðan fyrir því að áformin séu lögð fram sé að Ísland sé með úrelta löggjöf þegar kemur að erlendum fjárfestingum. „Staðreyndin er sú að öll okkar nágrannalönd hafa verið að setja lagaramma um rýni erlendra fjár- festinga. Þannig að Ísland sker sig úr hvað þetta varðar þar sem við erum með löggjöf frá 1991,“ segir Katrín og bætir við að sú löggjöf gefi stjórnvöldum heimild til að stöðva erlenda fjárfestingu en skilyrðin fyrir því séu ekki nægjanlega skýr. „Þetta eru áform sem sett hafa verið í samráðsgátt stjórnvalda þannig að það er ekki komið fram neitt heildstætt frumvarp. Við vilj- um fá athugasemdir og viðbrögð til að hægt sé að vinna þetta sem best.“ Samtök at vinnulífsins hafa skilað inn umsögn um lagasetn- ingu um rýni á erlendum fjár- festingum vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu. Í umsögninni segir að samtökin fagni því að verið sé að endurskoða löggjöfina en gera athugasemdir við áformin í núver- andi mynd. Að sögn samtakanna virðist sem svo að gengið sé lengra en í öðrum löndum þegar kemur að sambærilegri löggjöf. Anna Hrefna Ingimundardóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri Sam- taka atvinnulífsins, bendir á í sam- tali við Markaðinn að fá ríki séu með meiri hömlur hvað varðar beina fjárfestingu erlendra aðila en Ísland. „Enda mælist erlend fjárfest- ing lítil hér á landi og hefur farið minnkandi á undanförnum árum. Það er ekki jákvæð þróun, enda ætti það að vera sérstakt markmið þjóða að laða til sín erlenda fjárfestingu sem eykur fjölbreytni atvinnulífsins og áhættudreifingu meðal annarra kosta,“ segir Anna Hrefna og bætir við að ekki sé ljóst hvaða áhrif laga- setningin geti haft á möguleika og vilja erlendra fjárfesta til að taka þátt á íslenskum hlutabréfamark- aði. „Við stöndum nú frammi fyrir einstöku tækifæri til að auka erlenda þátttöku og þar með upp- færslu í f lokk nýmarkaðsríkja hjá FTSE. Nasdaq Iceland hefur áætlað að þessi breyting gæti þýtt innflæði upp á 50 milljarða króna. Við viljum ekki senda þau skilaboð að slík fjár- festing inn í íslenskt atvinnulíf sé óvelkomin.“ Katrín bætir við að mikilvægt sé að huga að þjóðaröryggi en á sama tíma sé mikilvægt að efla erlenda fjárfestingu á sumum sviðum. „Það er vissulega vandmeðfarið að finna jafnvægi í þessu. Erlend fjárfesting getur verið af hinu góða og með þessu er alls ekki verið að segja að hún sé slæm að neinu leyti. Frekar er hugsunin sú að íslensk stjórnvöld fái tæki og tól til þess að rýna erlendar fjárfestingar með full- nægjandi hætti þannig að við séum örugg um það, einkum þegar kemur að innviðum.“ Anna Hrefna gagnrýnir jafn- framt að svo virðist sem við ætlum að ganga lengra en önnur ríki sem hafa nýlega innleitt sambærilega löggjöf án rökstuðnings og þrátt fyrir að afar takmörkuð reynsla sé komin á löggjöfina í öðrum löndum. „Það er alveg ljóst að þær kvaðir sem lagðar eru til munu hafa fæl- andi áhrif á erlenda fjárfesta, sér- staklega ef til staðar verða mjög víðtækar heimildir til upplýsinga- öflunar og synjunar fjárfestinga sem gætu byggst á geðþóttaákvörðunum frekar en skýrum, vel rökstuddum og fyrirfram afmörkuðum mæli- kvörðum.“ Katrín bætir við að það sé verðugt verkefni að greiða leið fyrir erlenda fjárfestingu hér á landi. „Ég held utan um þessa vinnu sem við erum í núna sem formaður Þjóðaröryggisráðs og öryggishags- munir verða að vera til staðar. En að sjálfsögðu eigum við að velta fyrir okkur hvort það séu óþarfa hindranir þegar kemur að erlendri fjárfestingu. Það er á verksviði viðskiptaráðherra en raunar hafa nokkur ráðuneyti komið að þessari vinnu, þar á meðal menningar- og viðskiptaráðuneyti.“ Anna Hrefna segir að gagnrýni á þessi áform stjórnvalda þýði alls ekki að samtökin vilji ekki sjá lög- gjöf um erlenda fjárfestingu út frá sjónarhóli þjóðaröryggis. „Þvert á móti en þessi áform eru einfaldlega ótímabær í ljósi þeirra augljósu vankanta sem ég nefndi. Yfirvöld þurfa að tryggja að sú lög- gjöf sem lögð er fram sé í samræmi við aðra löggjöf, stefnu yfirvalda í málaflokknum og að hún fórni ekki meiri hagsmunum fyrir minni með því að ganga mun lengra en þörf krefur.“ Katrín segir að gott sé að horfa til nágrannalandanna í þessu sam- hengi og finnst eðlilegt að beðið sé með gagnrýni þangað til eftir að endanlegt frumvarp sé komið fram. „Við sjáum það alls staðar í kring- um okkur að þjóðir eru að leita leiða til að rýna erlenda fjárfestingu og velja til þess ólíkar leiðir. Við erum að sjá erlenda aðila í löndunum í kringum okkur fjárfesta í innviðum sem hafa gildi fyrir þjóðaröryggi og almannaöryggi. Þannig að það er nauðsynlegt fyrir okkur að endur- skoða okkar löggjöf sem er úrelt miðað við löggjöf annarra ríkja og kröfur samtímans.“ n Það er vissulega vand- meðfarið að finna jafnvægi í þessu. Katrín Jakobs- dóttir, forsætis- ráðherra Það er alveg ljóst að þær kvaðir sem lagðar eru til munu hafa fælandi áhrif á erlenda fjárfesta. Anna Hrefna Ingimundar- dóttir, aðstoðar- framkvæmda- stjóri SA Magdalena Anna Torfadóttir n Skoðun Að kaupa eða ekki kaupa Þátttaka almennings á hluta- bréfamarkaði hefur stóraukist á undanförnum misserum. Í lok síðasta árs áttu 30 þúsund Íslendingar skráð hlutabréf í Kauphöllinni en í því samhengi má nefna að þeir voru 9 þúsund í lok árs 2019. Sú mikla fjölgun sem hefur átt sér stað er vissulega fagn- aðarefni enda hafa vextir verið sögulega lágir að undanförnu og r au návöx t u n i n n lá n s- reikninga verið neikvæð. Því er eðlilegt og jákvætt að almenn- ingur hafi leitað betri leiða til að ávaxta sinn sparnað eins og til að mynda í hlutabréfum eða sjóðum. Það er óhætt að segja að að undanförnu hefur áhugi fólks og einkum ungs fólks á fjárfest- ingum aukist til muna. Krafan um að meiri áhersla verði lögð á fjármálalæsi í menntakerfinu verður sífellt háværari og við sjáum að áhugi fyrir þátttöku í hlutafjárútboðum fyrirtækja hefur verið mikill. Allt er þetta í sjálfu sér jákvætt en þó er vert að hafa í huga að varasamt er að menn séu ekki meðvitaðir um áhættuna sem felst í því að fjárfesta í hluta- bréfum. Á síðasta ári var erfitt og í rauninni ekki hægt að tapa á því að fjárfesta í innlendum hlutabréfum. Úrvalsvísitalan hækkaði um rétt tæp 33 pró- sent og fjárfesting í langf lest- um fyrirtækjum á innlenda markaðnum gaf virkilega vel af sér. En nú er farið að syrta í álinn. Markaðsaðstæður hafa sjaldan verið jafn kref jandi og nú. Úrvalsvísitalan hefur lækkað um rétt rúm 17 prósent frá áramótum og vísbendingar eru um að markaðurinn stefni í bjarnarmarkað. Það þýðir ekki endilega að fólk eigi að hætta að fjárfesta í hlutabréfum heldur er staðan aðeins áminning um það hversu mikilvægt það er að taka upplýsta ákvörðun um tilhögun sparnaðar. Það að f járfesta í einstök- um hlutabréfum getur verið áhættusamt og krefst yfirgrips- mikillar þekkingar sem verður ekki lærð á örskotsstundu. Því er oft mælt með að þeir sem hvorki hafa menntun né þekk- ingu á fjármálum ættu fremur að fjárfesta í sjóðum heldur en einstökum hlutabréfum, að minnsta kosti til að byrja með. En jafnvel þótt einungis sé fjár- fest í sjóðum er mikilvægt að fylgjast vel með mörkuðum og efnahagsumræðunni til að geta brugðist við atburðum í tíma. Undirrituð vonar að áhugi fólks á því að fjárfesta í hluta- bréfum muni aukast enn frekar þegar fram líða stundir og traust almennings á hlutabréfamark- aðnum ef list. Til að svo megi verða er mikilvægt að ef la fjár- málalæsi í menntakerfinu en einnig að fólk haldi áfram að af la sér þekkingar á því sviði. Því fjárfesting í þekkingu gefur yfirleitt mest af sér. n Fá ríki með meiri hömlur á beina erlenda fjárfestingu en Ísland Forsætisráðherra segir að markmiðið sé að uppfæra úrelta löggjöf frá 1991 sem snýr að rýni erlendra fjárfestinga. Nú liggur áformaskjal fyrir í samráðsgátt. FRÉTTABLADID/ERNIR MARKAÐURINN 27. júlí 2022 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.