Fréttablaðið - 27.07.2022, Qupperneq 20
Þrátt fyrir að hafa ekki
verið fastráðin atvinnu-
flugmaður né loftsiglinga-
fræðingur átti Erna að
baki 217 klukkustundir
sem flugmaður og 462
klukkustundir sem loft-
siglingafræðingur.
Erna fékk ung mikinn áhuga á flugi. MYND/FLUGAKADEMÍA ÍSLANDS
Erna Hjaltalín verður heiðruð á
Reykjavíkurflugvelli á fimmtu-
daginn.
arnartomas@frettabladid.is
Á fimmtudaginn stendur Flugakademía
Íslands fyrir athöfn á Reykjavíkurflug-
velli þar sem Erna Hjaltalín verður
heiðruð. Erna var mikill frumkvöð-
ull í íslenskri f lugsögu og varð fyrsta
konan til að taka einkaflugmannspróf,
atvinnuflugmannspróf og öðlast rétt-
indi sem loftsiglingafræðingur.
Erna fæddist 12. mars 1932, dóttir
Svönu og Steindórs Hjaltalíns, sem var
mikill f lugáhugamaður. Hún fékk fljótt
mikinn áhuga á flugi og hóf sextán ára
gömul formlegt f lugnám. Að loknu
einkaflugmannsprófi, á 18 ára afmælis-
degi sínum, eignaðist hún sína eigin eins
hreyfils Piper Club.
Allir samnemendur Ernu voru karl-
menn og fengu fastráðningu hjá Loft-
leiðum að loknu atvinnuf lugmanns-
prófi. Erna fékk því miður ekki sömu
tækifæri en hélt samt áfram að fljúga og
hóf nám í loftsiglingafræði árið 1952 og
fékk réttindi sem loftsiglingafræðingur
1956. Hún hóf störf sem flugfreyja hjá
Loftleiðum 1952 og varð yfirflugfreyja
félagsins árið 1960.
Þrátt fyrir að Erna hafi hvorki verið
fastráðin atvinnuf lugmaður né loft-
siglingafræðingur átti hún þó að baki
217 klukkustundir sem f lugmaður,
462 klukkustundir sem loftsiglinga-
fræðingur og sem flugfreyja flaug Erna í
f leiri tugi þúsunda klukkustunda. Hún
lést þann 14. maí 2021.
Afkomendur í heiðursflugi
Við athöfnina á fimmtudag verður ein
af kennsluvélum skólans nefnd eftir
Ernu en Flugakademían hefur áður
heiðrað f lugfrumkvöðla með sama
hætti. Þar á eftir mun Óskar Pétur Sæv-
arsson, forstöðumaður akademíunnar,
taka afkomendur Ernu í stutt f lug um
borð í vélinni.
„Það er svona draumur að það verði
ágætisveður, við getum verið úti með
vélina og haft fána yfir nafninu, og svo
smá kaffi og kökur,“ segir Óskar Pétur.
Frá því að Erna hóf flugferil sinn hefur
jafnrétti innan stéttarinnar batnað til
muna og í dag eru kynjahlutföll f lug-
manna á Íslandi með þeirra bestu í
heiminum.
„Það skiptir engu máli í f lugi með
hverjum þú flýgur. Við erum með staðl-
aðar vinnureglur og vinnum öll að sama
markmiði,“ útskýrir Óskar Pétur. „Sem
flugmönnum skiptir kyn eða litarháttur
þess sem við fljúgum með okkur engu
máli. Það er bara ekki boðið upp á það í
flugi þar sem öryggi og samvinna skiptir
langmestu máli.“ ■
Heiðursathöfn Ernu Hjaltalín
Árið 1903 komu Norðmaðurinn Rasmus
Hallseth og Svíinn David Fernander til
Íslands til að sýna kvikmyndir. List-
greinin var á þeim tíma enn kornung
og urðu Reykvíkingar því augljóslega
spenntir þegar auglýst var að þeir gætu
séð „stórkostlegustu, fegurstu og fróð-
legustu lifandi myndir sem nokkru sinni
hafa verið búnar til“ í Iðnó. Myndefnið
var meðal annars fengið úr dýragarði
London, borgarastríðinu í Suður-Afr-
íku og frá krýningu Játvarðar konungs
sjöunda.
Þessi sýning markaði upphaf bíó-
menningar í höfuðstaðnum en fyrsta
kvikmyndahúsið sem starfrækt var í
Reykjavík var Reykjavíkur Biografthea-
ter sem sett var upp í Aðalstræti 8, sem
síðar var þekkt sem Fjalakötturinn. Það
var eina kvikmyndahús Reykjavíkur
fram til 1912 þegar Nýja bíó var sett upp
í sal Hótel Íslands. ■
Þetta gerðist 27. Júlí 1903
Fyrsta kvikmyndasýning Reykjavíkur haldin í Iðnó
Reykvíkingar kynntust fyrst lifandi myndum í Iðnó.
1821 Perú fær sjálfstæði frá Spáni.
1895 Vígð brú á Þjórsá við Þjótanda að viðstöddu fjöl-
menni. Sú brú var notuð í rúmlega hálfa öld.
1896 Tólf læknar og þrír læknanemar sækja fyrsta lækna-
fund á Íslandi, sem haldinn er í Reykjavík og stendur
í fjóra daga.
1898 Holdsveikraspítalinn í Laugarnesi, sem Oddfellow-
reglan í Danmörku gaf Íslendingum, er vígður með
viðhöfn.
1957 Vígð kirkja í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd og nefnd
Hallgrímskirkja, til minningar um sálmaskáldið
og prestinn Hallgrím Pétursson, sem þjónaði þar
síðustu áratugi sína í embætti.
1960 Norðurlandaráð heldur þing sitt í fyrsta sinn á Ís-
landi.
1974 Þjóðhátíð til minningar um 11 alda byggð á Íslandi
er haldin á Þingvöllum. Þangað streymdi um fjórð-
ungur þjóðarinnar. Alþingi hélt hátíðarfund og sam-
þykkti ályktun um gróðurvernd og landgræðslu.
1983 Fyrsta breiðskífa Madonnu, Madonna, kemur út.
1985 Íslandsmet sett í fallhlífarstökki á Akureyri er fimm
fallhlífarstökkvarar mynduðu stjörnu og héldu
henni í 45 sekúndur.
Merkisatburðir
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi,
langafi og langalangafi,
Hólmsteinn Þórarinsson
loftskeytamaður,
lést á HSN á Siglufirði 16. júlí sl.
Útförin fer fram frá Siglufjarðarkirkju
föstudaginn 29. júlí kl. 13.00.
Jóninna Hólmsteinsdóttir Grímur Laxdal
Sigurður Hólmsteinsson Sigurlaug Þórhallsdóttir
Díana Hólmsteinsdóttir Viðar Konráðsson
Oddný Hólmsteinsdóttir Markús Ingason
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn.
Ástkær bróðir minn,
Ólafur Þór Friðriksson
verslunarmaður,
áður til heimilis að Krummahólum 6,
lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu
Grund þann 16. júlí.
Útförin fer fram frá Fossvogskapellu
fimmtudaginn 28. júlí kl. 11.
Páll Friðriksson
Elskulegur faðir okkar, stjúpfaðir,
tengdafaðir og afi,
Kjartan Jónsson
innanhússarkitekt,
lést á krabbameinsdeild Landspítalans
þann 20. júlí síðastliðinn í faðmi
dætra sinna. Útför hans fer fram frá
Langholtskirkju fimmtudaginn 28. júlí klukkan 13.
Helga Sjöfn Kjartansdóttir G. Magni Ágústsson
Margrét Una Kjartansdóttir Kristinn J. Magnússon
Helgi Birgisson Margrét Agnarsdóttir
og barnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Sigurður Pálsson
Þverbraut 1, Blönduósi,
áður til heimilis við Kálfshamarsvík
á Skaga,
lést á HSN Blönduósi laugardaginn 16. júli. Útför hans fer
fram frá Blönduóskirkju laugardaginn 30. júlí kl. 14.00.
Hægt verður að nálgast streymi frá útförinni á Facebook
síðu Blönduóskirkju.
Alda Dagbjört Friðgeirsdóttir
Guðbjörg Sigurðardóttir Kristján Þröstur Jónsson
Gerður Eyrún Sigurðardóttir Sigurjón Kjartansson
Heiðdís Björk Sigurðardóttir Marías Bjarni Viggósson
Guðný Sigurðardóttir Kjartan Már Kjartansson
barnabörn og barnabarnabörn.
TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 27. júlí 2022 MIÐVIKUDAGUR