Skessuhorn


Skessuhorn - 06.04.2022, Page 2

Skessuhorn - 06.04.2022, Page 2
MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 20222 Skessuhorn næstu vikur VESTURLAND: Vegna páskanna færist útgáfa Skessu- horns í næstu viku fram um einn dag. Blaðið verður prent- að mánudagskvöldið 11. apr- íl og fer í dreifingu næsta dag. Því þarf efni og auglýsingar til birtingar í blaði dymbilviku að berast ritstjórn í allra síðasta lagi á hádegi mánudaginn 11. apríl. Sumarblað verður svo gefið út eftir páska og kemur það út miðvikudaginn 20. apr- íl, á síðasta degi vetrar. -mm Dróni fastur í fjalli BORGARBYGGÐ: Hringt var í Neyðarlínuna seint síð- asta sunnudagskvöld þar sem tilkynnt var um hvítt ljós sem blikkaði á einkennilegum stað í Hafnarfjalli. Staðfesti lögregla ljósið sem blikkaði reglulega og var kannað hvort þyrla væri tiltæk. Landhelgis- gæslan lét vita að enginn þyrla væri á lofti og fór því lögreglan að kanna málið betur. Þá var rannsóknadeild lögreglunnar á Vesturlandi kölluð út til að skoða þetta með dróna en ekki reyndist hægt að fljúga honum vegna veðurs. Óskað var aftur eftir útkalli þyrlu og fór rann- sóknadeildin á staðinn. Þyrlan kom síðan á vettvang skömmu síðar og staðfest var að ljósið kæmi frá dróna sem var fastur í klettum í hlíðum fjallsins. Málið sem þykir alvarlegt er í rannsókn en eigandi drón- ans hefur ekki gefið sig fram. -vaks Stærsti get- raunavinningur frá upphafi LANDIÐ: Íslenskur tippari, búsettur í Kópavogi, vann 104 milljónir króna þegar hann fékk 13 rétta á Enska get- raunaseðilinn á laugardaginn og er þetta hæsti vinningur sem unnist hefur hjá Íslensk- um getraunum frá upphafi. Síðasti leikurinn á getrauna- seðlinum var viðureign Man. Utd. og Leicester og áður en sá leikur fór fram var ljóst að tipparinn myndi fá 13 rétta ef leikurinn færi jafntefli og 104 milljónir króna í vinning. Sig- ur Leicester myndi líka þýða 13 rétta og vinning upp á 65 milljónir króna. Sigur Man. Utd. þýddi hins vegar að tipp- arinn fengi aðeins 12 rétta og ríflega 200.000 krónur í sinn hlut. Það lá því ljóst fyrir með hvoru liðinu tipparinn hélt. Úrslit leiksins voru jafntefli 1-1 og tipparinn 104 millj- ón krónum ríkari. Hinn get- spaki Kópavogsbúi tvítryggði átta leiki, þrítryggði einn leik og fjórir leikir voru með einu merki og kostaði getraunaseð- illinn 10.752 krónur. -mm Kuldabolinn er kominn aftur í heim- sókn en það er víða kalt. Á Alþingi undanfarið hefur andað köldu á milli þingmanna og virðist oft vera um persónulegan núning að ræða. Stundum hefur læðst að manni kjánahrollur að horfa upp á ráðherra og þingmenn vera að karpa um eitt- hvað allt annað en það sem tengist þingstörfum. Þá hafa varaþing- menn sem hafa komið inn nýver- ið lýst furðu sinni yfir andrúmsloft- inu en sem betur fer er góð stemn- ing í matsalnum. Vonandi er þessi vinnustaðakúltúr á Alþingi ekki lýsandi fyrir aðra vinnustaði lands- ins því þarna virðist einelti, dóna- skapur, vanvirðing og ókurteisi vera of algengt. Á fimmtudag má búast við hægri norðlægri eða breytilegri átt, víða þurrt og bjart veður en stöku él norðaustan til á landinu. Kalt í veðri og sums staðar talsvert næturfrost. Á föstudag er gert ráð fyrir breyti- legri átt 3-8 m/sek. Skýjað verður með köflum og stöku él, einkum við ströndina. Frost 0 til 6 stig að deg- inum en frostlaust við suðvestur- ströndina. Á laugardag og sunnudag er útlit fyrir austlæga átt 8-15 m/s en mun hægari vindur austan til. Snjó- koma eða slydda um landið suðvest- anvert en annars dálítil él. Hiti breyt- ist lítið. Í síðustu viku var spurt á vef Skessu- horns: „Finnst þér að leggja eigi nið- ur píptestið í grunnskólum lands- ins?“ 46% sögðu „Já,“ 39% sögðu „Nei“ og 15% sögðu „Hef ekki skoðun á þessu.“ Í næstu viku er spurt: Hvað á að gera af sér í sumar? Anna Rósa Guðmundsdóttir fv. blaðamaður Skessuhorns lauk störf- um um síðustu mánaðamót eftir sex ára farsælt starf á ritstjórn. Fyrr- um vinnufélagar hennar þakka fyr- ir samstarfið og vona að hún sakni okkar ekki of mikið. Framvegis ætl- ar hún að byggja sér nýtt íbúðarhús á Leirá og selja tryggingar hjá Sjó- vá í Borgar nesi. Anna Rósa er Vest- lendingur vikunnar að þessi sinni. Til minnis Vestlendingur vikunnar Veðurhorfur Hafrannsóknastofnun ráðlegg- ur að veiðar á grásleppu fiskveiði- árið 2021/2022 verði ekki meiri en 6.972 tonn en það er 23% lækkun milli ára. Ráðgjöfin byggir að mestu á stofnvístölu úr stofnmælingu botnfiska í mars 2022 en hún var nálægt langtíma meðaltali. „Stofn- vísitölur hrognkelsa sveiflast milli ára sem endurspeglar að hluta til óvissu í mælingunum. Vegna þessa vegur stofnvísitala sama árs 70% á móti 30% vægi vísitölu fyrra árs við útreikning ráðlagðs hámarksafla, en vísitala síðasta árs var sú hæsta frá upphafi mælinga 1985. Haf- rannsóknastofnun leggur jafnframt til að upphafsaflamark fiskveiðiárið 2022/2023 verði 1627 tonn,“ segir í tilkynningu frá Hafró. Veiðar á grásleppu eru eins og kunnugt er bundnar leyfum og eru þau nú um 400 í landinu. Heimilt Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar samþykkti á fimmtudaginn ályktun þess efnis að gerð verði sú krafa að hluti þeirra fjármuna sem fengust með nýlegri sölu eignarhluta rík- isins í Íslandsbanka hf. verði nýtt- ir til uppbyggingar á grunnneti samgöngukerfisins. Í því sambandi er bent á nauðsyn þess að full- fjármagna endurbætur á Skógar- strandarvegi og að ríkið fjárfesti í nýrri og öflugri Breiðafjarðarferju sem uppfylli allar nútíma öryggis- kröfur. „Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar vill benda á að með sölu 22,5% af hlutafé ríkisins í Íslandsbanka hf., en söluandvirðið nam 52,65 millj- örðum króna, gefst aukið svigrúm til fjárfestingar í innviðum sam- félagsins í samræmi við stjórnar- sáttmála ríkisstjórnarflokkanna Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs þar sem lögð er áhersla á að nýta það fjármagn sem fæst með sölunni til uppbyggingu innviða.“ Þá er bent á það í ályktun bæjar- stjórnar að mikilvægt sé að byggja upp þá samgönguinnviði í grunn- neti samgöngukerfisins sem eru í óboðlegu ástandi í dag, líkt og Snæ- fellsnesvegur nr. 54 um Skógar- strönd og Breiðafjarðarferjan Bald- ur eru. „Sé það markmiðið að sölu- andvirðið verði nýtt til samfélags- lega arðbærra fjárfestinga þá er ljóst að þeir grunninnviðir sem eru í óboðlegu ástandi, á alla mæli- kvarða, eigi að vera í forgangi hvað varðar ráðstöfun fjármuna. Minn- ir bæjarstjórn á að umræddar fjár- festingar eru forgangsmál sam- kvæmt samgönguáætlun Vestur- lands sem samþykkt hefur verið af sveitarfélögum á Vesturlandi. Þá var í nýafstöðnum kosningum um sameiningu Helgafellssveitar og Stykkishólmsbæjar, sem var sam- þykkt af íbúum beggja sveitarfélaga, umrædd innviðauppbygging með- al þeirra áhersluatriða sem lágu til grundvallar þeirri sameiningu og forgangsröðun ríkisstjórnar ætti jafnframt að taka mið af þeim.“ mm Sveitarstjórn Dalabyggðar hef- ur ákveðið að samhliða sveitar- stjórnarkosningum í vor skuli fara fram skoðanakönnun meðal íbúa um afstöðu þeirra til sameiningar við önnur sveitarfélög. Málið var fyrst rætt á fundi í janúar og var byggðarráði falið að útfæra íbúa- könnun varðandi málið og leggja fyrir sveitarstjórn til umfjöllun- ar. Þar var málið síðan rætt og tók Róbert Ragnarsson ráðgjafi þátt í þeim fundi gegnum fjarfundarbún- að, en hann hefur víða komið að slíkum verkefnum og starfar nú hjá KPMG. Í framhaldinu tók sveitar- stjórn formlega ákvörðun um að könnun um sameiningarmál yrði lögð fyrir íbúa samhliða sveitar- stjórnarkosningum í vor. Þar verður spurt hvort fólk telji að Dalabyggð ætti að hefja skoðun á kostum og göllum sameiningar og um mat þess á þremur valkostum í því efni: A) Sameiningu við Húnaþing vestra B) Sameiningu við sameinað sveitarfélag Stykkishólmsbæjar og Helgafellssveitar. C) annað, hvað? Á næstunni verður kynningar- efni um valkostagreininguna sem var unnin 2021 dreift til íbúa svo þeir geti tekið afstöðu til framan- greindra kosta sem spurt verður um. gj Fjórðungi minni grásleppukvóti ráðlagður er að veiða í ákveðinn dagafjölda og þegar þeim dagafjölda er náð er hægt að hefja veiðar á nýju leyfi, en nokkur dæmi eru um að útgerðar- menn geri út tvo báta á sínum veg- um. Bátum á grásleppuveiðum hef- ur fækkað síðustu ár. Voru 174 í fyrra, en 249 árið 2019. Almennt er fremur dauft hljóð í grásleppu- veiðimönnum varðandi væntingar til vertíðarinnar í sumar. Á síð- asta ári varð metvertíð í áratug, en þrátt fyrir það skiluðu hrogn minna útflutningsverðmæti en árið á und- an. Magnið sem barst á land í fyrra hafði áhrif til verðlækkunar þegar leið á vertíðina. Mörgum er í fersku minni að sökum þess að vel veiddist norðan við land þurfti að stöðva veiðar nokkru áður en byrja mátti veiðar í Breiðafirði. Þar fékkst þó tímabundið leyfi sem grásleppusjó- menn í Stykkishólmi nýttu sér. Talsverðar birgðir loðnuhrogna eru til í landinu og gæti það haft neikvæð áhrif á söluhorfur á þessu ári og afkomu í greininni. mm Vilja að bankapeningar fari til uppbyggingar í samgöngukerfinu Vegurinn um Skógarströnd. Ljósm. úr safni/ bj. Frá Búðardal. Vilji íbúa til sameiningar verður kannaður

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.