Skessuhorn - 06.04.2022, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 20228
Bjóða út
tjaldsvæðið
AKRANES: Akraneskaup-
staður hefur auglýst eftir til-
boðum í rekstur tjaldsvæð-
is bæjarins við Kalmansvík.
Samningstími er 1. júní 2022
til 30. apríl 2024. Svæðið í
heild er 2,2 ha að flatarmáli en
tjaldsvæðið sjálft er u.þ.b sjö
þúsund fermetrar að meðtöld-
um bílastæðum. Á svæðinu
eru tvær þjónustubyggingar
og eitt leiksvæði. Tilboðum
skal skila fyrir 26. apríl nk.
-mm
Ný gata við
Kveldúlfshöfða
BORGARNES: Á fundi
skipulags- og byggingarnefnd-
ar Borgarbyggðar 28. mars
síðastliðinn voru lögð fram
drög að nýju deiliskipulagi
til kynningar fyrir nefndina
vegna nýrrar íbúagötu við
Kveldúlfshöfða í Borgarnesi.
Gert er ráð fyrir 23 íbúðar-
húsalóðum sem raðast við
götu sem liggur við Kveld-
úlfshöfðann og tengir saman
Fjóluklett við nýtt íbúðar-
svæði í Bjargslandi II. Aðal-
skipulagsbreyting verð-
ur gerð samhliða. Skipulags-
og byggingarnefnd tók vel
í framkomna tillögu á nýrri
íbúagötu við Kveldúlfshöfða.
-vaks
Heimastjórnar-
flokkurinn
hættir við
BORGARBYGGÐ: Hætt
hefur verið við framboð
Heimastjórnarflokksins til
sveitarstjórnar í Borgar-
byggð. Þetta tilkynnti Eirík-
ur Þór Theodórsson stofn-
andi flokksins í aðsendri
grein sem birtist m.a. hér aft-
ar í blaðinu. „Við stofnend-
ur Heimastjórnaflokksins í
Borgar byggð fundum í upp-
hafi ríkan meðbyr og áhuga.
En ekki nægjanlegan, þegar
á leið, til að halda áfram að
þessu sinni og því var einboð-
ið að draga sig til hlés,“ skrif-
aði Eiríkur. -mm
Vinnuvél með
blá blikkljós
HVALFJ.SVEIT: Á þriðju-
dagsmorgunn í liðinni viku
var lögreglan með eftirlit á
Vesturlandsvegi þegar þeir sáu
vinnuvél með blá blikkandi
ljós. Stöðvuðu þeir ökumann-
inn og ræddu við hann. Hann
vissi af þessum ljósum en taldi
það ekki vera ólöglegt og fékk
sekt upp á 20 þúsund krónur.
-vaks
Mæðrastyrks-
nefnd hafnað
AKRANES: Styrkbeiðni
Mæðrastyrksnefndar Akraness
vegna húsaleigu var tekin fyr-
ir á fundi hjá bæjarráði Akra-
neskaupstaðar síðastliðinn
fimmtudag. Í beiðni nefndar-
innar segir að til boða standi
að flytja með Rauða krossin-
um í nýtt húsnæði við Kirkju-
braut 12. Þar myndi nefndin
fá skrifstofu og aðgang að
opnum rýmum í húsinu
eins og var í gamla húsnæð-
inu við Skólabraut. Leigan
er áætluð 50 þúsund krón-
ur á mánuði sem nefndin ráði
ekki við að greiða. Því vildi
nefndin leggja fram beiðni um
að Akraneskaupstaður styrkti
nefndina um leiguna svo hún
gæti áfram verið með fastan
samastað fyrir starfsemina. Í
svari bæjarráðs segir að það
geti ekki orðið við erindinu
en muni eftir sem áður styrkja
árlega jólaúthlutun félagsins
og leggja félaginu lið eins og
kostur er í hennar störfum.
-vaks
Beiðni vegna
tækjakaupa
hafnað
AKRANES: Á fundi bæjar-
ráðs síðasta fimmtudag var
umsókn Sundfélags Akraness
um styrk vegna tækjakaupa
í Jaðarsbakkalaug tekin fyr-
ir. Beiðnin var vegna fyrir-
hugaðra kaupa á búnaði sem
er félaginu mikilvægur til að
geta haldið lögleg sundmót á
Akranesi og var heildarfjár-
hæðin samtals kr. 2.720.000.
Um er að ræða kaup á svoköll-
uðum pödsum sem er búnað-
ur sem settur er í báða enda
sundlaugar þegar mót eru til
að mæla tíma keppenda. Þá
þarf nýjan ræsibúnað sem er
kominn mjög til ára sinna og
að endingu þarf að endurnýja
hvítu grindurnar sem notað-
ar eru á sundmótum sem upp-
hækkun fyrir padsana. Í bók-
un segir að bæjarráð geti ekki
orðið við erindinu því fjár-
hagsáætlun Akraneskaupstað-
ar er sem kunnugt er unnin
að hausti og samþykkt í des-
ember ár hvert vegna kom-
andi árs sem og áætlun til
næstu þriggja ára þar á eft-
ir. Erindinu var því vísað til
fjárhagsáætlunargerðar vegna
ársins 2023. -vaks
Tekinn á
141 km hraða
HVALFJ.SV: Lögreglan var
með eftirlit síðasta þriðju-
dag í liðinni viku við Kirkju-
ból á Akrafjallsvegi og varð
vitni að ofsaakstri. Mældist
ökumaðurinn á 141 km hraða
eftir skekkjumörk og á hann
von á 150 þúsund króna sekt
og þremur punktum í ökufer-
ilsskrá. Ekki var um óvanan
ökumann að ræða heldur var
þarna á ferðinni maður á sjö-
tugsaldri sem var eitthvað að
flýta sér. -vaks
Byggðarráð Borgarbyggðar hef-
ur falið sveitarstjóra að staðfesta
riftun leigusamnings ginframleið-
andans Martin Miller’s á Gríms-
húsinu í Brákarey. Leigusamningur
til 25 ára var undirritaður um hús-
ið árið 2019. Í húsinu hugðist fyrir-
tækið byggja upp gestastofu fyrir
gináhugafólk um allan heim.
Grímshús í Brákarey á sér merka
sögu. Það var reist árið 1942 og
var það útgerðarfélagið Grímur
hf. sem stóð fyrir byggingu þess en
húsið átti að hýsa búnað félagsins.
Eftir eldsvoða á níunda áratugn-
um stóð húsið í mikilli niðurníðslu
í árafjöld, allt þar til árið 2013 sem
hollvinafélag hússins, Grímshúss-
félagið, ákvað af miklum myndar-
skap að safna peningum og hefja
framkvæmdir við að gera húsið
upp og koma því aftur í notkun.
Borgarbyggð var þó áfram eigandi
hússins og ákvað að yfirtaka hús-
ið af Grímshússfélaginu og leigja
Martin´s Miller það til aldarfjórð-
ungs í ljósi fagurra fyrirheita um
að þar yrði starfsemi sem laðaði að
þúsundir gesta. Þær vonir hafa nú
að engu orðið.
Fram kemur í fundargerð
byggðar ráðs frá síðasta fimmtudegi
að eftir að ljóst var að ginframleið-
andinn myndi ekki hefja starfsemi
í húsinu, hafi margir og mismun-
andi aðilar lýst yfir áhuga á að nýta
það. „Byggðarráð telur mikilvægt
að litið verði til húsnæðisins í þeirri
vinnu sem er að hefjast varðandi
framtíðarskipulag Brákareyjar, sem
hluta af þeim innviðum sem hægt
er að vinna með við skipulagningu
og framtíðarsýn Brákareyjar,“ seg-
ir í bókun byggðarráðs síðastliðinn
fimmtudag.
mm
Slökkvilið Borgarbyggðar hef-
ur fest kaup á nýjum bíl í flotann.
Bíllinn er Bens Sprinter árgerð
2015 sem keyptur var af Dagleið
ehf og merktur í Þorlákshöfn. Að
sögn Bjarna Kr Þorsteinssonar
slökkviliðsstjóra er bíllinn hugsað-
ur bæði sem tækjabíll og til flutn-
ings á mannskap en í honum eru
tólf sæti. Verður bíllinn staðsettur á
slökkvistöðinni í Reykholti. Í bíln-
um verður m.a. búnaður á renni-
brautum til reykköfunar auk klippi-
búnaðar. Bjarni segir að í bílnum
verði hafður til taks fatnaður og
búnaður þeirra slökkviliðsmanna
sem hafa aðsetur í Reykholti og geti
þeir þá eftir atvikum farið beint á
vettvang útkalls en búnaður þeirra
verður í bílnum og honum ekið af
þeim sem býr næst slökkvistöðinni.
Slíkt geti sparað tíma þegar mik-
ið liggur við. Kostnaður við bílinn
er að sögn Bjarna um tólf milljón-
ir króna.
mm
Íslenskir skátar ákváðu um helgina
að nota styrktarsjóð sinn til að
styðja börn og skáta í Úkraínu á
þessum erfiðu tímum. Þetta var
samþykkt með standandi lófaklappi
á Skátaþingi sem haldið var nú um
helgina á Bifröst.
Harpa Ósk Valgeirsdóttir, sem
nú tekur við sem skátahöfðingi
af Mörtu Magnúsdóttur, kynnti
ákvörðun styrktarsjóðs skáta í fram-
haldi af ósk sem barst um að sjóður-
inn styrkti Skátabandalag Úkraínu,
Unicef í Úkraínu og Rauða kross
Úkraínu. Sjóðurinn samþykkti að
veita 700.000 kr. styrk. Íslenskir
skátar hafa auk þess verið virkir að
undanförnu í þátttöku í fatasöfnun
og flokkun.
„Ég vil gera skátastarfið aðgengi-
legt öllum,“ segir Harpa og þar vís-
ar hún m.a. til verkefna um að gera
börnum af erlendum uppruna auð-
veldara að sækja skátastarf, sem og
til fjölgunar skátafélaga á lands-
byggðinni. Hún segir að með skýr-
ari dagskrárgrunni sem var kynntur
á skátaþingi sé einnig skref stig-
ið til að gera starfið aðgengilegra.
Stærsta breytingin sem var kynnt er
nýtt aldursbil í dagskránni, svokall-
aðir Hrefnuskátar fyrir börn 5 – 7
ára og þar taka skátarnir þátt með
foreldrum sínum, samhliða fjöl-
skylduskátastarfi. mm
Ginframleiðandi fær riftun
leigusamnings um Grímshús
Nýr tækja- og mannskapsbíll
til slökkviliðsins
Nýkjörin stjórn Bandalags íslenskra skáta: Harpa Ósk Valgeirsdóttir, Jón Halldór
Jónasson, Guðrún Stefánsdóttir, Þórhallur Helgason, Unnur Líf Kvaran, Huldar
Hlynsson og Sævar Skaptason. Ljósm. BÍS.
Skátar og börn í Úkraínu fá stuðning