Skessuhorn


Skessuhorn - 06.04.2022, Side 17

Skessuhorn - 06.04.2022, Side 17
MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 2022 17 VR óskar eftir að ráða einstakling í þjónustu á skrifstofu félagsins á Akranesi. Helstu verkefni felast í þjónustu við félagsfólk okkar í gegnum síma og netspjall. Samskiptin fara fram á íslensku og ensku. Um er að ræða 100% starf og er vinnutíminn frá klukkan 8:30-16:00 alla virka daga. Við leitum að einstaklingi sem er afar fær í að tala og skrifa bæði íslensku og ensku. Viðkomandi þarf að hafa reynslu af og njóta þess að sinna þjónustuhlutverki, hafa jákvætt viðmót, vera lausna miðaður og búa yfir góðri samskiptahæfni. Eins er mikil- vægt að búa yfir góðri tölvufærni og reynslu af notkun helstu tölvuforrita. VR er stærsta stéttarfélag landsins með um 37.000 félaga. Skrif- stofur félagsins eru á Akranesi, Suðurnesjum, Selfossi, Egils- stöðum, í Reykjavík og Vestmannaeyjum. Þjónustufulltrúi Hefur þú gaman af að taka vel á móti fólki, aðstoða, upplýsa og leiðbeina? Ert þú góð tungumála­ manneskja og tölvufær? Upplýsingar veitir Rósmarý Andersen Úlfarsdóttir. Umsóknir sendist á netfangið umsokn@vr.is. Umsóknarfrestur er til og með 19. apríl nk. • Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS Sími: 860-0708 • bv.sprautun@gmail.com Vinnum fyrir öll tryggingafélög tíma fá börnin ekki þá aðstoð sem þau þurfa.“ Kjörið tækifæri til að breyta „Þegar leitað var til mín með að taka sæti á lista ákvað ég eiginlega strax að demba mér í þetta. Þarna sá ég kjörið tækifæri að reyna að breyta kerfi sem er orðið of þungt í vöfum. Ég veit að ég er ekk- ert meiri kraftaverkamanneskja en aðrir sem hafa gengið þennan veg á undan mér og ég er væntan- lega ekki að fara að breyta öllu en ég held að ég hafi reynslu og sýn á kerfið sem gæti hjálpað. Það er margt hægt með góðum vilja,“ seg- ir Bjarney. Spurð hver séu stóru málin í hennar huga segir Bjarney skóla- og velferðarmál vera hennar hjartans mál. „Stóru málin eru held ég mis- jöfn eftir því við hvern þú talar. Ég brenn fyrir skóla- og velferðarmál- um. En við sem erum í efstu þrem- ur sætunum á listanum komum öll úr ólíkum áttum, Logi Sigurðsson í 2. sæti er vel inni í landbúnaðar- málum og Kristján Rafn Sigurðs- son sem er í 3. sæti hefur 20 ára reynslu sem atvinnurekandi og því vel inn í þeim málum,“ segir hún og heldur áfram. „Eitt af því sem mér finnst skipta miklu máli er að það er alveg ólíðandi að það fari eftir fjár- hag sveitarfélaga hversu góða þjón- ustu skólar geti veitt börnum. Ríkið þarf að grípa inn í þarna. Ég var að kenna í Kópavogi þar sem öll börn frá 5. bekk voru með sína spjald- tölvu. Hér er það ekki svoleiðis og á sama tíma er verið að hamra á því við kennara að við séum að undir- búa börnin fyrir störf framtíðarinn- ar en við erum engan veginn tækj- um búin til þess. Öll börn ættu að sjálfsögðu að fá bestu þjónustu sem völ er á og það er frábært að sum sveitarfélög geti veitt þeim það en það er líka ósanngjarnt fyrir börn í sveitarfélögum þar sem það er ekki hægt. Hér í Borgarbyggð er samt margt mjög gott og það sem fleytir okkur áfram er hvað allir eru af vilja gerðir. Borgarbyggð býr að mjög góðum mannauði í skólakerfinu þar sem allir leggjast á eitt til að vinna í þágu nemenda,“ segir Bjarney. Grunnskólar í Borgarbyggð En hvernig sér Bjarney fyrir sér að Borgarbyggð geti bætt þjón- ustu við börn í grunnskólum? „Við þurfum meiri aðkomu fagfólks. Ég veit ekki hvað ég hef fundað með mörgum fagaðilum sem gefa mér góð ráð en svo er það á mínum herðum sem kennara að búa til og finna verkefni, muna hvaða ráð eru fyrir hvaða barn og sjá til þess að þeim sé beitt rétt og þegar þú ert með mörg börn með mismunandi þarfir er þetta ógjörningur. Ofan á námsörðugleika og raskanir bætast við vandamál sem kannski tengj- ast heimilisaðstæðum eða líðan og þá erum við farin að sinna störfum félagsráðgjafa og sálfræðinga. Það er augljóst að þetta gengur ekki upp og við getum ekki veitt þá þjónustu sem börnin eiga rétt á og því vil ég sjá aðkomu fleira fagfólks inn í skólana,“ svarar Bjarney. Skólamálin í Borgarbyggð hafa lengi verið til umræðu í sveitarfé- laginu þar sem deilt hefur verið um hvort fækka eigi starfsstöðvum Grunnskóla Borgarfjarðar. Hver er sýn Bjarneyjar á skólamál í dreif- býlinu? „Það eru vissulega margar yfirbyggingar en það þýðir ekki endilega að við eigum að fara að loka skólum. Ég held að það þurfi að stíga mjög varlega til jarðar þar. Að loka skóla getur komið í veg fyr- ir frekari uppbyggingu á því svæði þannig að það má ekki fara út í neinar vanhugsaðar aðgerðir. Það er mjög mikilvægt að skoða mál- in frá öllum hliðum og taka sam- talið við fólkið á svæðinu. Hins vegar getur þurft að taka erfið- ar og jafnvel óvinsælar ákvarðanir en það verður þá gert að mjög vel ígrunduðu máli,“ svarar Bjarney. Gott að vera í Borgarbyggð Aðspurð segir Bjarney íbúafjölg- un í sveitarfélaginu vera eitt af stóru málunum fyrir komandi kjör- tímabil. „Það vantar gríðarlega hús- næði í sveitarfélaginu. Það er samt ekki nóg því við þurfum að vera með leik- og grunnskóla til að taka á móti þeim börnum sem flytja hingað. Það eru nú þegar pælingar í gangi til að byggja upp húsnæði og ég er mjög spennt að sjá hvernig fer með byggð við Borgar voginn. Það er töluverð áskorun þegar kemur að þjónustu í Borgar byggð hversu víðfeðmt sveitarfélagið er en íbú- ar ekki svo margir. En með fjölg- un íbúa eykst tekjustofn sveitarfé- lagsins og getan til að bæta þjón- ustu í öllu sveitarfélaginu. Ég held því að það verði eitt af forgangsmál- um nýrrar sveitarstjórnar að fjölga íbúum,“ segir Bjarney og held- ur áfram. „Ég hugsa að það gæti orðið mjög eftirsóknarvert að flytja í Borgarbyggð. Hér er falleg nátt- úra og mikil kyrrð auk þess sem hér er frekar hátt þjónustustig þó vissu- lega sé svigrúm til bætinga á ýms- um sviðum. Í Borgarnesi er allt í göngufæri og margar fallegar nátt- úruperlur í sveitarfélaginu. Ég held að fólk sem er að hugsa sér til hreyf- ings af höfuðborgarsvæðinu myndi horfa hingað ef húsnæðið væri til staðar. Kyrrðin er eftirsóknarverð og samfélagið hér er alveg einstakt. Við fengum hlýjar og góðar mót- tökur þegar við komum fyrir þrem- ur árum og hér er mjög gott að vera,“ segir Bjarney ánægð. Stærra íþróttahús „Við þurfum líka að stækka íþrótta- húsið. Fólk er orðið langþreytt eftir bættri íþróttaaðstöðu en mér skilst líka að það sé eitthvað að gerast í því núna. Ný sveitarstjórn verð- ur svo að fylgja því eftir. Ég vil sjá að hér verði byggð upp aðstaða til framtíðar, ekki bara næstu tíu ára,“ segir Bjarney. En hvaða öðrum málum vill hún beita sér fyrir? „Ég vil fyrst og fremst hlusta á fólk og fá að heyra hvaða mál skiptir íbúa mestu. Fyrir sumum eru það vind- myllur á meðan aðrir vilja hugsa um staðsetningu á þjóðveginum. Ég held það fari eftir hagsmunum hvers og eins hver eru stóru málin. Ég brenn fyrir velferðarmálunum og vil búa í samfélagi án aðgrein- ingar. Ég vil að allir geti tekið þátt í samfélaginu á sínum forsendum og að aðgengismál, atvinnumál og velferðarmál séu í lagi. Það er fullt sem ég veit ekki og á eftir að koma mér inn í en ég er óhrædd við að viðurkenna það og leita til þeirra sem hafa vit á málaflokknum. Ég er líka heppin með fólkið á list- anum okkar, þar er fólk með heil- mikla reynslu og þekkingu sem ég get leitað til. Ég ætla ekki að þykjast hafa vit á hlutum sem ég veit ekk- ert um. Ég veit að ég á eftir að læra margt og er spennt fyrir því að soga í mig allar þær upplýsingar sem ég get frá fólki með vit og reynslu,“ segir Bjarney og brosir. Uppbygging í Brákarey Eitt af stóru málefnum núver- andi sveitarstjórnar var að tak- ast á við lokun á húsnæði sveitar- félagsins í Brákarey þar sem ýmis félög og fyrirtæki voru með starf- semi. En hvernig sér Bjarney fyr- ir sér framtíð Brákareyjar? „Ald- an er komin með varanlegt hús- næði á Sólbakka og púttið er með aðstöðu í Menntaskólanum núna og svo skilst mér að golfklúbburinn ætli í uppbyggingu hjá sér, þannig að aðstaðan mun færast þangað, sem er frábært. Varðandi eyjuna, þá er hún brjálæðislega spennandi. Eitt af stóru verkefnum næstu ára er að fjölga íbúum í Borgarbyggð, til þess þarf auðvitað lóðir og hús- næði. En varðandi eyjuna þá sjá- um við fyrir okkur einhvers konar blandaða byggð, og möguleikarn- ir í rauninni endalausir. Einhver léttur iðnaður í bland við jafnvel íbúðarhúsnæði, og þar sem störf án staðsetningar eru að ryðja sér til rúms þá mögulega skrifstofuhús- næði og/eða nýsköpunarsetur í líkingu við Breiðina á Akranesi. Einnig væri gaman að geta sett upp einhvers konar tómstundaað- stöðu. En auðvitað er þetta samtal sem þarf að eiga sér stað með íbú- um Borgarbyggðar og það þarf að sýna skynsemi í öllum fjárfesting- um en að sama skapi þarf að ýta undir verðmætasköpun og það kostar stundum töluvert í upphafi en skilar sér svo margfalt til baka og við þurfum að horfa til framtíð- ar, ekki bara eitt kjörtímabil held- ur til næstu 20-30 ára, jafnvel 100. Gera Borgarbyggð að aðlaðandi kosti fyrir fólk að flytja til, til þess þarf að hafa sterka innviði og hátt þjónustustig til að geta veitt öðrum sveitarfélögum samkeppni,“ segir Bjarney að endingu. arg

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.