Skessuhorn


Skessuhorn - 06.04.2022, Qupperneq 21

Skessuhorn - 06.04.2022, Qupperneq 21
MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 2022 21 Athafna- og iðnaðarlóðir Grundartanga Faxaflóahafnir sf. óska eftir umsóknum um leigu á athafna- og iðnaðarlóðum á Grundartanga í Hvalfjarðarsveit. Á Grundartanga eru aðstæður góðar til uppbyggingar á fjölbreyttri athafna- og iðnaðarstarfsemi; úrval lóða, iðnaðarhöfn, góðar samgöngur innan svæðis og góðar tengingar við Þjóðveg 1. Atvinnustarfsemi á svæðinu þarf að falla vel að markmiðum græns hringrásargarðs eins og lýst er á heimasíðu Grundartanga: www.grundartangi.is Upplýsingar um stærðir lóða, staðsetningu og afhendingarskilmála er hægt að nálgast á heimasíðu Faxaflóahafna sf.: www.faxafloahafnir.is Umsóknarfrestur er til 22. apríl 2022 Klifur í öryggislínu Söngstund kl. 11.30 Opinn hljóðnemi Páskamyndir að lita Aðgangseyrir: 1200 kr. Frítt fyrir fullorðna í fylgd með börnum. Smiðjuloftið afþreyingarsetur á Akranesi, Smiðjuvöllum 17. S. 6239293 smidjuloftid.is http://smidjuloftid.is Páska - Fjölskyldutími sunnudaginn 10. apríl kl. 11-14 Rannsóknarskipið Árni Friðriksson HF 200 kom til hafnar í Grundar- firði miðvikudaginn 22. mars síð- astliðinn. Marsrallið var þá í full- um gangi og þurfti skipið að koma til löndunar þar sem mikið af karfa hafði komið í veiðarfærin, en alla jafna þarf ekki mikinn afla til að fylla geymslur skipsins. Skipið hafði verið að toga vestan- og norðvest- an við landið en alls eru fjögur skip í togararallinu hringinn í kring- um landið. Auk Árna Friðriksson- ar voru skipin Bjarni Sæmundsson, Breki VE og Gullver NS að veið- um. Togað var á tæplega 600 stöðv- um á 20-500 metra dýpi umhverf- is landið segir á vef Hafrann- sóknastofnunnar. tfk Árni Friðriksson kom inn til löndunar Eftir langan og erfiðan vet- ur er aftur að færast líf yfir höfn- ina á Arnarstapa. Lítið hefur verið um landanir í vetur en nú síðustu daga hefur lifnað við. Framund- an er strandveiðitímabilið, en það hefst 2. maí og er útlit fyrir að tugir strandveiðibáta haldi á miðin und- an Jökli eins og síðustu ár. Línubátar hafa verið að landa afla sínum á Arnarstapa að undan- förnu og aflinn verið dáldið mis- góður hjá bátunum. Nú er komið að hrygningarstoppi að fjórum sjó- mílum en 11. apríl fer þorskurinn í langt fæðingarorlof til 21. apríl en þá mega bátar ekki vera nær landi en 12 mílur. af Kíkt á hafnarlífið á Arnarstapa Arnarstapahöfn þykir ein fallegasta höfn hér á landi. Þegar nær dregur strand­ veiðitímabilinu mun höfnin smekkfyllast af bátum enda er stutt þaðan á fengsæl og skjólgóð mið. Halldór Brynjarsson starfsmaður Fiskmarkaðs Snæfellsbæjar að sturta þorski úr körum af línubátnum Kristni HU. Svavar Kristmundsson að laga karfann til í karinu.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.